Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.07.2018, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 04.07.2018, Qupperneq 27
Við aðstoðum frumkvöðla við að koma viðskipta- hugmyndum í framkvæmd með skjótvirkum hætti og styðjum íslensk sprotafyrirtæki til vaxtar á alþjóðlegum vettvangi. Vilt þú kynna þér sprotaumhverfið á Íslandi? Sendu okkur línu á hello@icelandicstartups.is! Icelandic Startups hefur árum saman leitt frumkvöðla og lykil­aðila úr atvinnulífinu saman til að skapa verðmæti. Hlutverk félagsins er að efla frumkvöðla­ starf á Íslandi, gera nýsköpun eina af lykilstoðum hagkerfisins og hraða ferlinu frá viðskiptahug­ mynd til arðbærra viðskipta,“ segir Jarþrúður Ásmundsdóttir, við­ skiptaþróunarstjóri hjá Icelandic Start ups. „Félagið skapar vettvang til tengslamyndunar og byggir þannig upp innviði fyrir frum­ kvöðlastarf og nýsköpun á Íslandi. Icelandic Startups er stærsti einka­ rekni stuðningsaðili frumkvöðla og sprotafyrirtækja hér á landi, en félagið er ekki rekið í hagnaðar­ skyni.“ Metfjöldi umsókna í ár Icelandic Startups stendur fyrir viðskiptahröðlum þar sem fólki býðst að senda inn viðskipta­ hugmyndir og viðskiptaáætlanir. „Inntökuferlið er mjög vandað og aðeins bestu verkefnin valin áfram,“ segir Jarþrúður. „Fyrir vikið njóta fyrirtæki sem hafa farið í gegnum viðskiptahraðla á okkar vegum og tekið þátt í frumkvöðlakeppninni Gullegginu meiri trúverðugleika, ekki síst gagnvart fjárfestum. Icelandic Startups hefur starfrækt frumkvöðlakeppnina Gulleggið í tíu ár, en keppnin hefur verið eftirsóttur vettvangur fyrir sprota og er vel þekkt,“ segir Jarþrúður. „Á hverju ári eru tíu verkefni valin úr hópi þátttak­ enda eftir metnaðarfulla þjálfun og vandað ferli og þeim veittur stuðningur. Félagið stendur fyrir viðskipta­ hröðlunum Startup Reykjavík, Startup Energy og Startup Tourism. „Í Startup Reykjavík eru tíu fyrirtæki valin á hverju sumri til að njóta ráðgjafar og leið­ sagnar þaulreyndra sérfræðinga til að hraða þróunarferlinu,“ segir Jarþrúður. „Við fáum að meðal­ tali um 500 viðskiptahugmyndir til okkar á ári, en í fyrra bárust 270 viðskiptahugmyndir bara í Startup Reykjavík, sem er met. Það sem af er ári hafa hins vegar um 400 hugmyndir borist, svo það stefnir í metfjölda umsókna í ár. Startup Energy Reykjavík byggir á sama grunni og Startup Reykja­ vík, en þar er lögð er áhersla á viðskiptahugmyndir tengdar jarðvarma og orku,“ segir Jar­ þrúður. „Startup Tourism er svo viðskiptahraðall fyrir ný fyrirtæki í ferðaþjónustu.“ Metfjárfesting og sóknarfæri „Á fyrstu sex mánuðum ársins hefur fjárfesting í nýsköpunar­ fyrirtækjum náð rúmlega 6,5 milljörðum króna samkvæmt okkar úttekt,“ segir Jarþrúður. „Það er meira en tvöfalt meiri fjár­ festing en var gerð í sprotafyrir­ tækjum á síðasta ári, en þá var hún tæplega þrír milljarðar. Stærstu fjárfestingarnar koma nú nær allar frá útlöndum, svo sprotafyrirtæki eru að draga erlent fjármagn til landsins,“ segir Jarþrúður. „En aftur á móti er það áskorun fyrir íslensk nýsköpunar­ fyrirtæki að laða til sín stærri innlendar fjárfestingar. Við sjáum tækifæri fyrir íslenska fjárfesta til að fylgja eftir þessum fyrirtækjum sem eru að vaxa erlendis,“ segir Jarþrúður. „En til að það geti gerst þurfa hugmyndir um afléttingu þaks á þróunarkostnaði til skatta afsláttar að verða færðar í lög. Í dag miðast þakið við 300 milljónir og það er ljóst að til að halda vaxtar­ fyrirtækjum á landinu verður að aflétta því.“ Mikil sóknarfæri í nýsköpun Icelandic Startups hjálpar sprotafyrirtækjum að komast á legg. Félaginu hafa aldrei borist eins margar umsóknir, fjárfesting hefur sjaldan verið meiri og tækifærin hafa aldrei verið jafn mikil. Það er gríðarleg gróska í nýsköpun hér á landi, segir Jarþrúður Ásmundsdóttir hjá Icelandic Startups. MYND/ERNIR KYNNINGARBLAÐ 5 M I ÐV I KU DAG U R 4 . j ú l í 2 0 1 8 NýSKöpUN Á íSLANDI 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 0 -E 3 2 8 2 0 5 0 -E 1 E C 2 0 5 0 -E 0 B 0 2 0 5 0 -D F 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.