Fréttablaðið - 04.07.2018, Síða 29

Fréttablaðið - 04.07.2018, Síða 29
Háskóli Íslands er uppspretta þekkingar og framfara og hefur undanfarið skorað hátt alþjóðlega hvað snertir gæði þeirra vísinda sem stunduð eru á fjölmörgum sviðum,“ segir Einar. „HÍ gegnir eðlilega mikilvægu hlutverki fyrir íslenskt samfélag og er ein af þeim stofnunum sem njóta mests trausts í samfélaginu. Háskólinn er meðal annars aðili að Vísinda- og tækniráði sem ásamt stjórnvöldum og fleiri aðil- um leggur línurnar í áherslum og stefnumálum vísinda- og tækni- þróunar í landinu, sem hefur víð- tæk áhrif á ný sköp unar umhverfið og þar af leiðandi á samkeppnis- hæfni okkar á alþjóðavísu.“ HÍ býður upp á á fjórða tug námskeiða á grunn- og framhalds- stigi sem tengjast með beinum hætti nýsköpun auk allrar þeirrar sérmenntunar sem í boði er og gefur nýsköpun og sprota- fyrirtækjum nauðsynlega dýpt og færni. Ný þverfagleg námskeið í nýsköpun eru í farvatninu í sam- ræmi við stefnu háskólans. Fjölbreytt verkefni Starfsemi og rannsóknir innan HÍ kunna að skila margháttuðum ávinningi út í samfélagið og er fjölbreytnin lýsandi fyrir breidd starfsemi Háskóla Íslands. „Nefna má matvælatengd verkefni eins og ræktun wasabi-plöntunnar fyrir hágæða sushi-rétti en það eru Johan Sindri Hansen og Ragnar Atli Tómasson sem eru að fylgja því eftir í sínu sprotafyrir- tæki, öryggismál sjómanna með tengingu internets hlutanna við fjarskiptatækni en Sæmundur E. Þorsteinsson og Karl S. Guð- mundsson stjórna þeirri rann- sókn, bætta röðun skurðaðgerða með gagnvirku upplýsingakerfi í heilbrigðiskerfinu en það hafa þróað þeir Rögnvaldur Sæmunds- son og Tómas Rúnarsson, orku- myndun úr lífrænum úrgangi með gösun sem er á höndum Christi- ans Petrus Richter og Rúnars Unnþórssonar, endurnýtingu blóðflagna í verðmæta vöru en Sandra Jónsdóttir-Buch og Ólafur E. Sigurjónsson þróa það áfram í sprotafyrirtækinu Platome, og að veita blindum sýn með hátækni- búnaði sem er stórt verkefni unnið af Rúnari Unnþórssyni, Árna Kristjánssyni og Ómari I. Jóhannessyni og alþjóðlegu sam- starfsfólki.“ Sprotar frá HÍ HÍ hefur ásamt Landspítala Háskólasjúkrahúsi starfrækt Hugverkanefnd sem sinnir hug- verkavernd og tækniyfirfærslu frá árinu 2003. „Út úr háskólanum hafa komið mörg sprotafyrir- tæki sem byggja á hugmyndum sem verða til við vísindastarfið innan HÍ,“ segir Einar og nefnir sem dæmi Marel sem spratt út úr háskólanum. „Og nú síðast Oculis sem er bylting í augnlækningum og er í hröðum vexti, auk fjölda annarra sem hafa skilað samfélag- inu störfum, tækni og virðisauka.“ Hann segir að virk hugverka- vernd sé yfirleitt lykillinn að aðkomu fjárfesta að krefjandi verkefnum svo þau nái að dafna. „Innan Háskóla Íslands er stöðugt unnið að því að auka meðvitund um vægi hugverkaverndar við rannsóknastarf innan skólans en það er í samræmi við Hugverka- stefnu stjórnvalda sem kom út 2016 og stefnu háskólans. „Þá er rétt að hafa í huga að grunnrann- sóknir geta líka leitt til byltingar í hagnýtingu síðar meir, þó svo það hafi ekki verið fyrirsjáanlegt í upphafi. Þannig eru GPS-tæknin ( og þar með t.d. Uber-bílaþjón- ustan), örbylgjuofninn, geisla- spilarinn, ljósleiðarinn og segul- ómun á sjúkrahúsum allt afurðir grunnrannsókna við háskóla og rannsóknastofnanir svo eitthvað sé nefnt.“ Brú til atvinnulífsins Svo er það brúin! Tækniyfirfærsla er yfirfærsla vísindalegrar þekk- ingar til atvinnulífsins, stundum kölluð brúin á milli akademíu og atvinnulífs. „Á Íslandi höfum við verið sein að sinna þessu af krafti samanborið við aðrar þjóðir, sem getur komið niður á samkeppnis- hæfni okkar til lengri tíma litið. Nú verður breyting þar á!“ segir Einar enn fremur. „HÍ hefur leitt starf Auðnu, undirbúningsfélags háskóla, rannsóknastofnana og ann- arra ríkisaðila auk viðkomandi ráðuneyta um stofnun tækniyfir- færsluskrifstofu fyrir allar þessar stofnanir í landinu. Samstarf þessara aðila og samskiptin við fulltrúa atvinnulífsins hafa verið einkar ánægjuleg og árangurs- rík, enda um þjóðþrifamál og nauðsynlega lykilinnviði nýsköp- unar að ræða. Stefnt er að opnun þessarar þjónustu í haust og að fljótlega verði brúin opin fyrir umferð í báðar áttir.“ Nýsköpunarpöbbinn Á síðasta ári fór af stað Nýsköp- unarpöbb í frábærum salar- kynnum Stúdentakjallarans þar sem hittast reglulega áhugamenn um nýsköpun innan HÍ til að spjalla saman um allt milli himins og jarðar tengt nýsköpun og hlut- verki HÍ þar að lútandi. „Þarna er vettvangur fyrir afslappaða umræðu þar sem starfsmenn og nemendur hittast til að ræða málin. Nýsköpunarnefnd nemenda HÍ er frábært framtak þar sem krafturinn í nemendum nýtist í umræðuna um hvernig við getum gert betur í þessum efnum,“ segir Einar. „Nýsköpun snýst um miklu meira en nýja tækni, hún þarfnast samfélags opinna huga, umhverfis sem veitir innblástur, flæðandi samræðu á hugmynda og þróunarstigi, réttu aðstöð- unnar – og mikillar vinnu við alla framkvæmd. Háskóli Íslands hefur margt fram að færa í þessum efnum.“ Uppbygging í Vatnsmýri Háskóli Íslands kemur víðar við í nýsköpun en bara við kennslu og rannsóknir, hann er enn fremur bakhjarl Icelandic Startups sem heldur utan um og sinnir hvers kyns frumkvöðlaþjálfun og viðskiptahröðlum með öflugri starfsemi sinni. „Að auki standa Vísindagarðar Háskóla Íslands að gríðarmikilli uppbyggingu í Vatnsmýrinni þar sem er að rísa hjarta nýsköpunar í landinu. Þar er til staðar í húsnæði Vísinda- garða HÍ Íslensk erfðagreining, leiðandi mannerfðafræðistofnun í heiminum, þar eru einnig höfuð- stöðvar Alvogen og Alvotech sem þróa þar framleiðslu sam- heitalíftæknilyfja,“ segir Einar. „Á svæðinu er að rísa húsið Gróska sem mun meðal annars hýsa CCP og margháttaða aðra nýsköpunar- tengda starfsemi, og Félagsstofnun stúdenta er jafnframt að reisa þar íbúðir. Allt skipulag svæðisins, sem unnið er í nánu samstarfi við Reykjavíkurborg, er uppskrift að iðandi mannlífi og nýsköpunar- krafti þar sem saman koma allir hagaðilar nýsköpunar, vísindin, frumkvöðlar, nemendur, mennta- stofnanir, sprotafyrirtæki, fjár- festar, tengslin við atvinnulífið og framsækin fyrirtæki sem sjá sér hag í kraftinum og sambýlinu við háskólaumhverfið. Háskóli Íslands vinnur því með marg- víslegum hætti að því að koma bókvitinu í askana,“ segir Einar að lokum. Háskóli Íslands færir bókvitið í askana Háskóli Íslands sinnir fjölbreyttum nýsköpunaráherslum en meðal þeirra má nefna rannsóknir, ný þverfagleg námskeið í nýsköpun og yfirfærslu vísindalegrar þekkingar til atvinnulífsins. Einar Mäntylä er verkefnisstjóri nýsköpunar á vísinda- og nýsköpunarsviði Háskóla Íslands. Einar Mäntylä er verkefnisstjóri nýsköpunar á vísinda- og nýsköpunarsviði Háskóla Íslands en hann segir starfsemi og rannsóknir innan HÍ skila margháttuðum ávinningi út í samfélagið. MYND/SigtrYggUr Ari Nýsköpun snýst um miklu meira en nýja tækni, hún þarfnast samfélags opinna huga, umhverfis sem veitir innblástur og réttu aðstöðunnar meðal annars. Nýsköpunarnefnd nemenda HÍ er frábært framtak þar sem krafturinn í nemendum nýtist í umræðuna um hvernig við getum gert betur í þessum efnum. KYNNiNgArBLAÐ 7 M i ÐV i KU DAg U r 4 . j ú l Í 2 0 1 8 NýSKöpUN á ÍSLANDi 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 0 -C F 6 8 2 0 5 0 -C E 2 C 2 0 5 0 -C C F 0 2 0 5 0 -C B B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.