Fréttablaðið - 04.07.2018, Side 31
Halla Eysteinsdóttir hjúkr-unarfræðingur fékk þá hugmynd að framleiða
léttar sjúkrabörur til notkunar á
hálendi og víðar. Hún segir að það
hafi verið kominn tími á léttari
lausnir því búnaðurinn sem hefur
verið í notkun er þungur. „Megin-
tilgangurinn var að draga úr álagi
í burði. Það er hins vegar langur
vegur að fullbúinni vöru á markað
og leita þarf á marga staði eftir ráð-
gjöf áður lagt er af stað,“ segir hún.
„Frumkvöðullinn var svo heppinn
að fá þróunarstyrk frá Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands svo hægt væri
að byrja verkefnið. Eftir alls kyns
kostnaðarsamar prófanir með efni,
tækni og fleira tóku við útgjöld
vegna skráninga, vottana og leyfa
vegna vörumerkis eða hönnunar.
Þar sem sjúkrabörur falla undir
lækningabúnað eru gerðar meiri
kröfur. Leyfi þarf frá Lyfjastofnun
og varan þarf að fara í gegnum
strangt vottunarferli British Stand-
ard Institution til að fá CE-vottun
eftir alþjóðlegum ISO-stöðlun. Það
tímabil tekur marga mánuði og
kostar tæpa milljón.
Þolinmæði og seigla borgar sig.
Þegar vottanir lágu fyrir var Hallas
ehf. stofnað og skráð vorið 2016.
Lagt var upp úr því að hafa sjúkra-
börurnar með hærri köntum en
gengur og gerist til að vernda ein-
staklinginn gegn vindi á köldum
svæðum í flutningi. Um leið og
líkaminn dregur úr hreyfingu eftir
slys eða veikindi fellur líkamshiti
um nokkrar gráður. Þegar vind-
kæling á hálendi eða bersvæði
bætist við eykst hættan töluvert.
Þess vegna var notast við einangr-
andi plötu í botni til að draga úr
frekara hitatapi og pakka þeim
sem liggur inn í segldúkinn. Til
frekari verndar var fest vatnsheld
yfirbreiðsla til fóta sem jafnframt
einangrar líkamann fyrir frekara
hitatapi í flutningi. Sjúkrabörurnar
koma sem „einar með öllu“ og í
bakpoka. Það sem gerir vöruna
frábrugðna öðrum sjúkrabörum
á markaði er að þær hafa 260 kg
burðarþol en vega aðeins 4,9 kg,“
útskýrir Halla.
„Þegar varan er tilbúin er ekki
þar með sagt að hún selji sig sjálf.
Byrjað var að auglýsa með dreifi-
pósti, í fjölmiðlum og með net-
póstum. Leitað var eftir stuðningi
og styrkjum víða en varan passar
ekki vel í einhvern hraðal eða
rafræna þróun sem gefur öðrum
tækifæri á að auðgast. Þetta er svo-
lítil barátta og á köflum mjög erfið.
Svo erfið oft á tíðum að maður
efast um ákvörðunina og finnur
til uppgjafar þegar ekkert gengur.
Grunnvinnan kostar margar millj-
ónir. Allt var handgert hér heima
en öll vinnan fer fram úr innfluttu
efni. Birgðir nægja til að anna inn-
lendum markaði en varan er enn á
því stigi að vera seld á kostnaðar-
verði. Þrátt fyrir það er hún jafnvel
ódýrari en verksmiðjuframleiddar
steyptar börur keyptar að utan.
Þegar horft er raunhæft á stöðuna
er kostnaður við innflutning á efni
og útflutning á vöru til sölu frá
Íslandi engan veginn að ganga upp
nema með stuðningi.
Til allra lukku veitti Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands styrkloforð
til markaðssetningar og blés lífi í
glæðurnar. Hallas ehf. bauð öllum
sem að björgun standa hérlendis
til kynningarfundar í Reykjavík í
mars. Þar á eftir var boðið upp á
kynningarfundi í öðrum fjórðung-
um landsins í apríl. Markhópurinn
er afmarkaður hópur samtaka og
félaga sem standa að björgun á
hálendi eða þeirra sem huga að
öryggi farþega um hálendið. Það
eru ferðafélög, skálaverðir, björg-
unarsveitarfólk, landverðir, aðilar
í bráðaflutningum, Slysavarna-
félagið Landsbjörg, skíðaskálar og
snjósleðafélög. Við tökum ekkert
fyrir að mæta því mikilvægt er að
allir hafi tækifæri til að æfa sig í
notkun þeirra, þar sem þær eru
þegar komnar í ferðafélagsskála á
hálendinu.
Markaðsherferð okkar náði
til Evrópu og var okkur boðið að
koma til Bolzano á Ítalíu 10. til
12. apríl sl. Við fórum með sjúkra-
börurnar á Prowinter sýningu á
Ítalíu meðal 10 sprotafyrirtækja
víða frá Evrópu. Þar var verið er að
kynna allan búnað fyrir vetrar-
íþróttir sem og björgunarbúnað á
fjöllum. Aðalmarkmið okkar var
að komast í kynni við framleið-
endur sem og að kynna vöruna á
alþjóðlegum markaði. Sjá hvernig
hún hentar á markaðnum og kom-
ast í kynni við ferðaþjónustuaðila
sem og björgunarsveitir á Alpa-
svæðinu. Við fengum aðeins 3 mín-
útur til að kynna okkur á sýning-
unni og fengum viðurkenninguna
„First Price Start-up winner“. Tekin
voru viðtöl og myndband gert út
frá því: https://www.facebook.
com/FieraBolzanoMesseBozen/
videos/vl.1711302265623544/
1816360641753900/?type=1
Við vorum að vonum ánægð
með þessa viðurkenningu. Nú þarf
ég bara að finna góðan og vand-
aðan framleiðanda að vörunni svo
að hún geti orðið ódýrari í fram-
leiðslu og því hægt að senda hana
um allan heim. Nú þegar hafa fjöl-
margir sýnt Hallas sjúkrabörunum
áhuga sem þýðir að þær eiga að
geta gert björgun léttari hvar sem
er í heiminum,“ segir Halla en hún
starfar sem hjúkrunarfræðingur á
gjörgæslu, með reynslu af sjúkra-
flutningum og björgun fyrr á árum.
Fjallamennska er hennar helsta
áhugamál og hún þekkir því vel til
þeirrar hættu sem getur skapast
ef einhver slasast á hálendinu og
hvað mikilvægt er að geta einangr-
að og skýlt gegn vindi og draga úr
vindkælingu, með sem skjótustum
hætti.
Nánari upplýsingar má finna á
www.hallas.is eða hafa samband
við info@hallas.is
Léttar íslenskar sjúkrabörur
Árið 2015 var farið af stað með þróun á sjúkrabörum sem hægt væri að brjóta saman og bera
á bakinu. Hvort heldur væri farið gangandi, á hestbaki, á fjórhjóli eða snjósleða. Hugmyndin að
hönnun á léttari sjúkraflutningabúnaði fyrir björgunaraðila á hálendi þróaðist með árunum.
Dómnefndin á Prowinter 2018 ásamt Lailu Sæunni Pétursdóttur sem annast markaðsmál Hallas og Höllu Eysteinsdóttur, eiganda Hallas (til hægri).
Verðlaunin sem Hallas fékk á Prowinter 2018.
Halla og Laila með verðlaunin. Íslensku sjúkrabörurnar.
KYNNINGARBLAÐ 9 M I ÐV I KU DAG U R 4 . j ú l í 2 0 1 8 NýSKöPUN á ÍSLANDI
0
4
-0
7
-2
0
1
8
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
0
-B
B
A
8
2
0
5
0
-B
A
6
C
2
0
5
0
-B
9
3
0
2
0
5
0
-B
7
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K