Fréttablaðið - 04.07.2018, Síða 36
Þetta byrjaði allt árið 2009,“ segir Kristján Guðmundsson, framkvæmdastjóri eTactica
ehf., spurður út í vöxt fyrirtækisins
á undanförnum árum. Hann segir
að þá hafi Hilmar Ingi Jónsson raf-
virki setið við eldhúsborðið heima
hjá sér og hugsað með sér að gott
væri að geta greint orkunotkun
betur en áður hafði verið gert.
Hann hafi viljað mæla orkuna og
skrá rafmangsnotkun fyrir hverja
grein í rauntíma. Í kjölfarið þróaði
hann vélbúnað sem aflaði upp-
lýsinga um orkunotkun. „Og okkar
verkefni fyrst og fremst í þessi níu
ár hefur verið að þróa og framleiða
vélbúnað sem mælir þessa notkun
og hugbúnað sem tekur á móti
mælingunum og vinnur úr þeim.“
Vörur eTactica gera viðskipta-
vinum kleift að sundurliða
rafmagnsnotkun og greina hana.
Kristján segir að það séu helst þrjár
ástæður fyrir því að stór fyrirtæki
í Evrópu sjái sér hag í að kaupa
vörur af eTactica. „Fyrsta ástæðan
er orkusparnaður. Til þess að sjá
hvers vegna viðskiptavinur okkar
er að nota meiri orku en sam-
keppnisaðilinn þarf að sundurliða
notkunina og greina hana. Með
þessum búnaði geta fyrirtækin
sparað allt að 40% raforku sem
þýðir hjá stjórum alþjóðlegum
fyrirtækjum sparnað upp á tugi ef
ekki hundruð þúsunda evra á árs-
grundvelli.“
Önnur ástæða segir Kristján að
sé rekstraröryggi. „Ef búnaðurinn
má ekki fara niður, til dæmis ef
standa tíu starfsmenn sitt hvorum
megin við framleiðslulínu þá eru
þeir aðgerðalausir ef búnaðurinn
bilar. Það að geta fylgst með því að
búnaðurinn vinni eðlilega kemur
í veg fyrir skemmdir sem verða
vegna of mikils álags. Með vörum
okkar er nefnilega hægt að læra að
þekkja hegðun rafmagnsnotkunar-
innar, hvernig hún er í eðlilegum
fasa og svo þau frávik sem verða í
kerfinu. Þá er hægt að grípa inn í
áður en skaðinn er skeður. Það má
segja að þetta sé forvarnaviðhald
því gripið er inn í þegar þess þarf,
hvorki fyrr né of seint.“
Þriðji þátturinn er umhverfis-
þátturinn en Kristján segir að hann
verði sífellt mikilvægari, ekki síst
utan landsteinanna. „Fyrir fyrir-
tæki í Evrópu sérstaklega þá þurfa
þau að sýna fram á hver orkunotk-
unin er og hvaða aðgerða gripið
hefur verið til þannig að hægt sé að
minnka hana.“ Búnaður eTactica
bætist við núverandi rafmagns-
öryggi og því er lítill tilkostnaður
fyrir fyrirtækin að notast við hann.
Kristján segir að eTactica selji
um 80% af vörum sínum úr landi
og enn séu gríðarleg sóknarfæri.
Nánar má lesa um eTactica á
heimasíðu fyrirtækisins, etactica.is.
Frá eldhúsborði til Evrópu
eTactica hefur þróað einstakar og öflugar vörur sem gera fyrirtækjum kleift að skilja og bæta orku-
notkun sína. Búnaðurinn getur sparað fyrirtækjum allt að 40% raforku og afstýrt skemmdum.
Kristján Guð-
mundsson,
framkvæmda-
stjóri eTactica
ehf.
Nokkrar rannsóknir, meðal annars hin margumtalaða McKinsey-skýrsla sem
gefin var út 2011, gefa til kynna
að án nýsköpunar er ólíklegt að
Ísland geti náð viðunandi hagvexti
og skapað þau atvinnutækifæri
sem þörf er á, sérstaklega störf
sem byggja á æðri menntun og
tækniþekkingu, að því er Gunnar
Óskarsson, lektor við Viðskipta-
fræðideild Háskóla Íslands og
kennari í alþjóðamarkaðssetningu,
alþjóðaviðskiptum, stjórnun
nýsköpunar og markaðssetningu á
netinu, greinir frá.
„Meðal dæma sem allflestir
þekkja eru Marel, Össur og Actavis,
fyrirtæki sem eru í fararbroddi
á sínu sviði á heimsmælikvarða
og sækja nánast allar sínar tekjur
á erlenda markaði. Nýsköpun
verður hins vegar ekki til af sjálfu
sér. Í fyrsta lagi þarf góða hug-
mynd, síðan þarf að þróa vörur
eða þjónustu til markaðshæfðrar
afurðar, en slíkt þróunarstarf krefst
mikillar þrautseigju og fjármagns,“
segir hann.
„Aðgangur að fjármagni til
nýsköpunar á Íslandi er hins vegar
afar takmarkaður. Á síðastliðnum
árum hefur Tækniþróunarsjóður
gegnt mikilvægu hlutverki í þessu
skyni, en sjóðurinn hefur veitt
styrki til margra verkefna sem hafa
náð eða eru u.þ.b. að ná athyglis-
verðum árangri. Í nýlegri skýrslu
um mat á áhrifum Tækniþróunar-
sjóðs kemur fram að styrkir sjóðs-
ins hafi gjarna verið forsendan
fyrir því að góð nýsköpunarverk-
efni nái fram að ganga. Áhrifa-
matið sýnir að styrkir sjóðsins
voru forsenda þess að farið var af
stað með nýsköpunarfyrirtæki,
sem sum hver standa framarlega
á sviði viðskipta, vöruþróunar og
rannsókna í íslensku atvinnulífi í
dag. Styrkirnir stuðla að áþreifan-
legum auði í formi aukinnar
þekkingar, sjálfbærni í nýsköpun,
fjölgunar starfa til skemmri og
lengri tíma, aukins útflutnings,
eflingar tengslanets, bæði innan-
lands og erlendis auk þess sem
aðgengi að fjármagni annars staðar
frá, bæði innlendu og erlendu,
eykst. Þessir þættir stuðla að bættri
samkeppnisstöðu íslenskra fyrir-
tækja og rannsóknarstofnana.
Styrkir Tækniþróunarsjóðs til
nýsköpunar skiluðu efnahags-
legum ávinningi í formi sölu
afurða og hagnaðar; velta jókst hjá
75% af styrkþegum og hagnaður
hjá 47% þeirra. Hjá 67% styrkþega
skiluðu verkefnin auknu aðgengi
að nýjum mörkuðum og aukinni
markaðshlutdeild erlendis. Auk
þeirra áhrifa sem tilgreind eru hér
að ofan kemur fram í áhrifamatinu
að styrkir sjóðsins hafa keðju-
verkandi áhrif á útbreiðslu færni
og þekkingar. Þannig má nefna
að einstakir eiginleikar hjóla-
gaffla sem Lauf Forks hafa þróað
eiga rætur að rekja til þekkingar
sem upprunnin er í stoðtækja-
fyrirtækinu Össuri. Þá má nefna
þróunarstarf á vegum Bláa lónsins
varðandi einangrun smáþörunga
úr náttúru Reykjaness sem leiddi
til framleiðslu á húð- og heilsu-
vörum sem búa yfir nýstárlegum
eiginleikum. Loks má nefna Oculis,
fyrirtæki sem hefur þróað einstaka
augndropa sem geta haft tölu-
verð áhrif á lífsgæði; þeir geta m.a.
komið í stað krefjandi læknismeð-
ferðar og tilheyrandi eftirmeð-
höndlunar algengra sjúkdóma,
eins og gláku, en verkefnið er
byggt á rannsóknum sem hófust í
Háskóla Íslands.
Nýlega lögðu erlendir fjárfestar,
sem búa yfir öflugu tengslaneti
og gríðarlega mikilli þekkingu í
markaðssetningu afurða í lækna-
vísindum, tvo milljarða króna
í fyrirtækið. Aðgangur að slíku
fjármagni krefst gríðarlegrar vinnu,
en einungis um eitt af hverjum 100
verkefnum sem koma til greina hjá
slíkum fjárfestum verða fyrir valinu.
Áhugi fjárfestanna byggir á því að
þeir telja mögulegt að verðmæti
fyrirtækisins muni tífaldast á næstu
tveimur árum, en samkvæmt frétt
sem birtist nýlega í Fréttablaðinu er
fyrirtækið nú þegar metið á fimm
milljarða króna. Það er gríðarlega
mikilvægt að við höldum áfram að
styðja við nýsköpun og er framlag
Fréttablaðsins með þessu sérriti
áhugaverður áfangi á þeirri veg-
ferð,“ segir Gunnar.
Nýsköpun skapar atvinnutækifæri
Nýsköpun er ein af mikilvægustu forsendum hagvaxtar. Hún skapar tækifæri til atvinnusköpunar,
opnar möguleika á að umbreyta þekkingu í verðmæti og afla tekna á erlendum mörkuðum. Fjöldi
fyrirtækja nær góðum árangri og aflar tekna sinna að mestum leyti erlendis, jafnvel 99% þeirra.
Gunnar Óskarsson, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
14 KYNNINGARBLAÐ 4 . j ú L Í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RNýsKöpuN á ÍsLANdI
0
4
-0
7
-2
0
1
8
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
0
-C
F
6
8
2
0
5
0
-C
E
2
C
2
0
5
0
-C
C
F
0
2
0
5
0
-C
B
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K