Fréttablaðið - 04.07.2018, Qupperneq 37
Þorbjörg Jensdóttir lagði stund á doktorsnám í Danmörku þar sem hún rannsakaði glerungs-
eyðingu tanna. Þær rannsóknir
leiddu af sér molana HAp+ sem eru
kalkbættir og byggja á klínískum
rannsóknum. Tannlæknafélag
Íslands mælir með HAp+ til að við-
halda heilbrigði tanna með öflugri
munnvatnsframleiðslu. HAp+ er
íslenskt hugvit og einkaleyfisvarið á
heimsvísu.
Átján ára þróun á HAp+
„HAp+ var upphaflega þróað sem
lausn við vandamáli,“ segir Þor-
björg Jensdóttir, framkvæmda-
stjóri og stofnandi IceMedico
sem framleiðir HAp+ vörulínuna.
„Vandamálið var munnþurrkur
sem 10-30% fólks á við að etja og
lausnin varð HAp+, ferskur moli
sem örvar munnvatnið tuttugufalt
án þess að valda glerungseyðingu
á tönnum. Þannig var HAp+ kynnt
fyrst til leiks, en nú hefur HAp+
rutt sér til rúms sem lífsstílsvara,“
segir Þorbjörg, „enda bragðgóður,
sykurlaus, kalkbættur, hitaeininga-
lítill moli, sem viðheldur heilbrigði
tanna.“
HAp+ á sér langa sögu, en rann-
sókna- og viðskiptaþróunin nær
yfir 18 ára tímabil. Þorbjörg segir
HAp+ hafa vaxið með sér í gegnum
árin en vera nú loks komið þangað
sem stefnt var að og skírskotar
meðal annars í útlit umbúða og
hönnun á vörumerkinu. „IceMe-
dico er í vexti hérna heima og næsta
skref er að byggja upp erlenda
markaði með markvissum hætti.“
Þorbjörg bendir á að nýsköpun
taki tíma. „Það tekur bæði tíma að
þróa nýja vöru en einnig að byggja
upp traust meðal neytenda sem er
nauðsynlegt fyrir allar nýjar vörur,
ekki síst vörur með virkni. Næsta
verkefni er því að stækka markað-
inn okkar en meðal annars erum
við að vinna að því að bæta við
sölustöðum hérna heima og þann-
ig bæta aðgengi að HAp+ sem við
vitum að margir af okkar viðskipta-
vinum hafa verið að bíða eftir.“
HAp+ í bílinn
Eins og áður kom fram þá var HAp+
upphaflega þróað fyrir einstaklinga
með munnþurrk en HAp+ hefur
hins vegar einnig sýnt jákvæða við-
bótarvirkni gegn bílveiki, sjóveiki,
flugveiki, einstaka morgunógleði og
ógleði af völdum lyfjameðferðar.
Moli eftir máltíð – borða,
drekka, sjúga HAp+
Mælt er með HAp+ mola eftir
máltíð og drykk og í dagsins önn,
en Þorbjörg leggur áherslu á að
bursta tennur alltaf morgna og
kvölds og nota tannþráð reglulega.
HAp+ gegnir svipuðu hlutverki og
sykurlaust tyggjó, en það er klínískt
prófað að HAp+ er þrisvar sinnum
virkari en að tyggja tyggjó. Bæði
HAp+ og sykurlaust tyggjó aðstoða
okkur við að framleiða munnvatn,
en munnvatnið er ónæmiskerfi
munnholsins og sér meðal annars
um að fjarlægja matarleifar og bakt-
eríur úr munni og viðhalda þannig
heilbrigði tanna og munnhols og
ferskum andardrætti. „HAp+ fram-
leiðir einfaldlega þrisvar sinnum
meira munnvatn,“ segir Þorbjörg og
bætir við: „Einnig hafa tannlæknar
sýnt fram á sjúklingatilfelli þar sem
regluleg notkun HAp+ dregur úr
tíðni tannholdsbólgna og myndun
tannsteins og hefur hvíttunar-
virkni á tennur, þó sérstaklega hjá
einstaklingum sem eru með dökka
bletti eftir reykingar og mikla kaffi-
drykkju.“
Kólamolinn kemur á óvart
HAp+ vörulínan var kynnt nú á
dögunum með sex fjölbreyttum
bragðtegundum, sítrónubragði,
jarðarberja- og rabbarbarabragði,
engifer- og limebragði, mintu- og
tröllatrésbragði, kólabragði og
sjötti molinn er með lakkrísbragði,
allt með náttúrulegum bragðefn-
um. Allar tegundir HAp+ eru með
sömu virkni og viðhalda heilbrigði
tanna og munnhols. „Kólamolinn
kemur virkilega á óvart, en hann
ásamt lakkrís, engifer- og lime-
molunum er í mestu uppáhaldi hjá
mér þessa dagana,“ segir Þorbjörg
þegar hún er spurð út í hvaða HAp+
molar séu á milli sætanna í bílnum
hjá henni. En svo bætir hún við:
„Við hjónin eigum þrjú börn og
ef allir eiga að vera sáttir þá erum
við með að minnsta kosti fimm
bragðtegundir í gangi. Blái mintu-
og tröllatrésmolinn er svo alltaf til
heima ef einhver kynni að finna til
særinda í hálsi,“ segir Þorbjörg að
lokum.
Hægt er að fá nánari upplýsingar um
HAp+ molana og virkni þeirra á www.
happlus.is, Happlus á Facebook og á
instagram hapsmartcandy.
Moli eftir máltíð – má það?
Dr. Þorbjörg Jensdóttir stofnandi og framkvæmdastjóri IceMedico kynnti á dögunum HAp+ mol-
ann sem er árangur þrotlausra rannsókna og viðskiptaþróunar í átján ár. HAp+ molarnir voru upp-
haflega ætlaðir til að vinna á munnþurrki en hafa sýnt fram á ýmsa aðra heilsubætandi eiginleika.
Dr. Þorbjörg Jensdóttir hefur í átján ár unnið að því að koma HAp+ molunum
á markað og nú eru þeir loksins aðgengilegir neytendum. MYND/ANtoN briNK
HAp+ molarnir fást í sex bragðtegundum, jarðarberja og rabbarbara, minta og tröllaré, kóla, sítrónu, engifer og lime og
lakkrís, allir kalkbættir, tannvænir og með náttúrulegum bragðefnum.
Engifer- og
limemolarnir
eru í mestu
uppáhaldi hjá
Þorbjörgu sjálfri
þessa dagana en
bragðtegund-
irnar sex gera
það að verkum
að allir ættu að
geta fundið sinn
uppáhaldsmola.
Lakkrísmolinn
er líklegur til að
verða vinsæll en
HAp+ molarnir
hafa sýnt virkni
umfram vænt-
ingar, til dæmis
til að draga úr
ferðaveiki og
morgunógleði.
KYNNiNGArbLAÐ 15 M i ÐV i KU DAG U r 4 . J ú l í 2 0 1 8 NýsKöpUN Á ÍsLANDi
0
4
-0
7
-2
0
1
8
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
0
-D
E
3
8
2
0
5
0
-D
C
F
C
2
0
5
0
-D
B
C
0
2
0
5
0
-D
A
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K