Fréttablaðið - 04.07.2018, Síða 41

Fréttablaðið - 04.07.2018, Síða 41
 Síðustu þrjú ár hafa farið í að þróa örmerkjalesarann Anitar Bullet sem fer í fram- leiðslu í sumar. Margt spennandi er á döfinni hjá hugbúnaðar-fyrirtækinu Anitar en fyrir síðustu helgi gaf það út smáforritið LH Kappa í samstarfi við Lands- samband hestamanna. „Þetta er viðburðaapp fyrir öll aðildar- félög Landssambandsins og geta notendur þess fylgst með öllum mótum í rauntíma, bæði séð ráslista og niðurstöður. Við settum þetta í gang fyrir Landsmótið sem stendur yfir og fór notkun þess langt fram úr okkar björtustu vonum,“ segir Karl Már Lárusson, stofnandi Anitar. „Þetta er því stórgóð próf- raun á appið sem byggt er á kerfinu Sportfeng og er í eigu Landssam- bandsins.“ Anitar er hugbúnaðar- og tækni- fyrirtæki sem þróar sérhæfðar lausnir fyrir landbúnaðinn og hefur undanfarin ár sett fókusinn á íslenska hestinn. Stefnt er aftur á móti að því að færa út kvíarnar og hanna einnig ítarlegri bústjórn- unarkerfi. „Síðustu þrjú ár hafa farið í að þróa örmerkjalesarann Anitar Bullet sem er að fara í framleiðslu í sumar. Við fórum í forsölu með Anitar Bullet haustið 2017 og söfn- uðum einhverjum 40 þúsund doll- urum. Hann verður svo afhentur kaupendum í haust.“ Anitar Bullet er tengdur beint við síma og snjall- símaapp og veitir upplýsingar um dýrið á einfaldan og fljótvirkan hátt. Samhliða framleiðslu á Anitar Bullet hyggst fyrirtækið setja í gang nýja þjónustu sem nefnist Regis Horse og standa prófanir á kerfinu yfir um þessar mundir. Regis Horse má nota samhliða Anitar Bullet og einfaldar það nýskráningu og örmerkingu á hrossum. Í lok árs 2015 hlaut Anitar verk- efnastyrk frá Tækniþróunarsjóði RANNÍS og tryggði hann þróun og starfsemi fyrirtækisins. Karl Már segir að styrkurinn hafi verið ómetanlegur fyrir Anitar enda hafi hann meðal annars nýst til að kynna vörur fyrirtækisins á erlendri grundu. Anitar Bullet hefur fengið mjög góðar viðtökur þar sem varan hefur verið kynnt og segir Karl Már að lesarinn muni einfalda vinnu dýra- lækna, hrossaeigenda og í raun allra sem vinna með dýr. Þá hefur mikill áhugi verið erlendis og næsta skref hjá Anitar er að finna fjárfesta til að vinna með að útrás fyrirtækisins. Karl Már segir að áhugasamir fjárfestar geti sett sig í samband við fyrirtækið til þess að fá frekari upplýsingar um fyrirtækið og fram- tíðaráætlanir þess. Nánari upplýsingar má finna á anitar.is. Auðvelda skráningu dýra Hugbúnaðarfyrirtækið Anitar þróar sérhæfðar lausnir fyrir landbúnaðinn. Örmerkjalesarinn Anitar Bullet fer í framleiðslu í sumar og hyggst fyrirtækið sækja á erlenda markaði í kjölfarið. Karl Már Lárusson, stofnandi Anitar. MYND/ÞÓRSTEINN „Við erum að bregðast við og taka þátt í þeirri þróun sem er alls staðar í okkar samfélagi, að nota nýja tækni við samþætt- ingu vísinda, listsköpunar og menningar,“ segir Kjartan Ólafsson, stofnandi Erki- Tónlistar. MYND/ANTON BRINK Calmus, eða Calculated Music, er þverfaglegt rannsóknar-verkefni sem byggir á tón- smíðum og tölvunarfræði svo úr verður hugbúnaður sem semur tónlist með aðstoð gervigreindar,“ útskýrir Kjartan Ólafsson, tón- skáld og eigandi nýsköpunarfyrir- tækisins Calmus. „Calmus er afrakstur mikillar vinnu og rannsókna. Þarna bland- ast saman raunvísindi og listsköp- un og við köllum það stundum hið nýja renaissance þar sem listir og tækni og ýmsir þættir mannlífsins tengjast. Leonardo da Vinci var á kafi í þessu á sínum tíma og fleiri gegnum tíðina, að tengja saman vísindi og listgreinar, menningu og sögu með nýrri tækni.“ Kjartan segir grunnhugmyndina hafa orðið til þegar hann stundaði doktorsnám í tónsmíðum í Finn- landi. Hann fékk styrk frá Tækni- þróunarsjóði árið 2013 og þá fóru hjólin að snúast fyrir alvöru. Nú er hann í samstarfi við stór fyrirtæki innan tölvuleikjageirans. „Styrkurinn gerði okkur kleift að ráða fólk og auka vöxt verk- efnisins til muna. Nú liggja eftir okkur nokkrar afurðir til dæmis forritið Calmus Composer en ný uppfærsla á því kemur á App Store eftir nokkrar vikur. Þá erum við í samstarfi við CCP um þróun forritsins CalmusGaming þar sem við tengjum tónsmíðakerfið við tölvuleikjakerfið í rauntíma. Við erum að gera tilraunir með leikinn Eve Online. Calmus Gaming virkar þannig að leikurinn sendir Tónsmíðar með gervigreind Raunvísindi og listsköpun mætast í nýsköpunarfyrirtækinu ErkiTónlist sf. með rannsóknarverkefn- inu CALMUS, hugbúnaði sem semur tónlist með gervigreind. Tækniþróunarsjóður styrkir CALMUS. ákveðin skilaboð inn í tónsmíða- kerfið sem semur tónlist í sam- ræmi við það sem er að gerast í leiknum. Þetta gerist í rauntíma þannig að sá sem spilar leikinn heyrir tónlistina breytast í takt við það sem hann er að gera, til dæmis ef hann er í hættulegum aðstæðum í leiknum spilast tónlist sem eykur þá upplifun,“ útskýrir Kjartan. „Þá erum við einnig í sam- starfi við kanadíska fyrirtækið Audiokinetics, eitt aðalfyrirtækið í tölvuleikjahljóðum og -tónlist í heiminum, en þar eru menn mjög spenntir fyrir því að fá Calmus Gaming inn enda hugbúnaður sem getur sparað þeim tíma, fyrir- höfn og peninga og eykur tón- listarlega fjölbreytni. Við reiknum með að prótótýpa af Calmus Gaming verði klár í byrjun næsta árs. Við erum að bregðast við og taka þátt í þeirri þróun sem er alls staðar í okkar samfélagi, að nota nýja tækni við samþættingu vís- inda, listsköpunar og menningar,“ segir Kjartan. KYNNINGARBLAÐ 19 M I ÐV I KU DAG U R 4 . j ú L í 2 0 1 8 NýSKöpUN á íSLANDI 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 0 -F 6 E 8 2 0 5 0 -F 5 A C 2 0 5 0 -F 4 7 0 2 0 5 0 -F 3 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.