Fréttablaðið - 04.07.2018, Síða 50

Fréttablaðið - 04.07.2018, Síða 50
Markaðurinn instagram fréttablaðsins @frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 4. júlí 2018fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál | Stjórnar- maðurinn 28.06.2018 @stjornarmadur Ég taldi ástæðu til að skoða mál in bet­ ur og horfa á framtíð fyr ir tæk is ins áður en farið yrði svona bratt í þessa breyt­ ingu. Anna G. Sverrisdóttir, stjórnarmaður í HB Hringdu og við sýnum þér hvernig Sími : 5 27 27 87 eða inná www.regus.is Höfðatorg Turninn, Ármúli 4 & 6, Tryggvagata 11, Skútuvogur 3 Skipagata 9 - Akureyri Við getum hjálpað til við það Skrifstofurými okkar veitir þér fullkominn sveigjanleika og getur vaxið með rekstrinum þínum. Fyrirtæki eins og Google og Toshiba nota okkur til að fá rými sem getur stækkað á sama hraða og þau gera. Það er auðvelt í uppsetningu og við getum komið þér af stað í dag. Þarftu vinnurými sem getur vaxið með þér? Sæktu Appið okkar og byrjaðu strax í dag Icelandair Group hefur ráðið Íslandsbanka og HVS Hodges Ward Elliott til þess að veita ráðgjöf í söluferli Icelandair Hotels og þeirra fasteigna sem til heyra hótel­ rekstri sam stæðunnar. HVS Hodges Ward Elliott er ráðgjafar­ fyrirtæki sem er með aðsetur í Lundúnum og sérhæfir sig í hóteliðnaðinum. Það hefur víðtæka reynslu af sölu hótela og hótelkeðja um alla Evrópu. Greint var frá áformum Icelandair Group um miðjan maí en þau miða að því að selja meirihluta í Icelandair Hotels. Pétur Þ. Óskarsson, yfirmaður samskiptasviðs Icelandair Group, segir í samtali við Markaðinn að gætt hafi mikils áhuga bæði íslenskra og erlendra fyrirtækja á að taka að sér verkið. Mörg fyrirtæki hafi því komið til greina í ráðningar­ ferlinu. „Næsta skref er að safna upplýsingum og útbúa nauðsynleg sölugögn til þess að unnt sé að hefja formlegt söluferli,“ segir Pétur. – tfh icelandair fær alþjóðlega ráðgjafa við hótelsölu Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. Athyglisvert er að rýna í áhrif veðurfars á smásöluverslun. Þannig hefur einmuna veður­ blíða í Bretlandi verið smá­ sölugeiranum hliðholl. Bresku stórmarkaðirnir hafa selt býsnin öll af grillmat, íspinnum, sólar­ áburði og tilheyrandi. Sama staða hefur verið uppi á Norðurlönd­ unum þar sem frændur okkar og frænkur hafa legið í sólbaði frá því snemma í vor. Hvað Ísland varðar þá liggja svo sem ekki fyrir sölutölur um alla þá vætutíð sem að baki er þetta sumarið, að minnsta kosti hér syðra. Hins vegar má sjá stór­ útsölur á garðhúsgögnum í öllum helstu verslunum. Trampólín standa ónotuð og veðurbarin í ónotuðum görðum. Varla hefur heldur selst jafnmikið af grill­ mat og fyrri sumur. Íslendingar virðast hins vegar sólgnir í ís hvernig sem viðrar. Sala á regn­ fatnaði hlýtur sömuleiðis að vera með mesta móti. Vætutíðin gæti líka haft víð­ tækari langtímaáhrif. Fyrir liggur að hægst hefur á fjölgun erlendra ferðamanna. Vonandi hefur slæmt veðurfar ekki þó þau áhrif að enn frekar dragi úr. Eða kannski þveröfugt? Erlendir ferðamenn koma varla til landsins til að njóta einstakrar veðurblíðu? Svo er enn hægt að halda áfram bollaleggingum. Nú hefur veður­ far verið mun betra bæði norðan­ lands og austan. Kannski hefur vætutíðin bara þau æskilegu áhrif að dreifa ferðafólki, innlendu og erlendu, betur um landið. Túrist­ arnir flýi bleytuna sunnanlands í sólina nyrðra og eystra. Ein æskileg áhrif, að minnsta kosti í efnahagslegu tilliti, eru þau að ef til vill fer fólk síður í sumarfrí með tilheyrandi jákvæð­ um efnahagslegum áhrifum. Eða hvað? Kannski þarf fólk frí til að standa sig í vinnunni. Svo eru þessar pælingar kannski að æra óstöðugan. Að ætla að búa á Íslandi og láta veðrið stjórna sér er uppskrift að óhamingju. Veður og peningar 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 0 -B 1 C 8 2 0 5 0 -B 0 8 C 2 0 5 0 -A F 5 0 2 0 5 0 -A E 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.