Fréttablaðið - 04.08.2018, Side 2

Fréttablaðið - 04.08.2018, Side 2
Veður Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 í dag, skýjað á N- og A-landi og lítils háttar rigning eða súld fram eftir morgni, en skýjað með köflum og stöku síð- degisskúrir S- og V-lands. Hiti 9 til 18 stig. sjá síðu 32 Bir t m eð fyr irv ara um pr en tvil lur . H eim sfe rði r á ski lja sé r r étt til le iðr étt ing a á slí ku . A th. að ve rð ge tur br eys t á n f yri rva ra. 595 1000 FLUGSÆTI Frá kr. 14.950 VALDAR BROTTFARIR Í ÁGÚST & SEPTEMBER ÖNNUR LEIÐ MEÐ TÖSKU OG FLUGVALLARSKÖTTUM ALICANTE Ítalir í lausu lofti Hin glæsilega ítalska seglskúta Amerigo Vespucci lagði að bryggju í Reykjavíkurhöfn í gær. Herskipið, sem á heimahöfn í La Spezia á Ítalíu, verður í Reykjavík til mánudags. Almenningi gefst tækifæri til að skoða sig um í skipinu í dag milli klukkan 11.00 og 12.30 og milli 15.00 og 17.30 og á morgun milli klukkan 11.00 og 12.30 og aftur á milli 15.00 og 21.00. Sjóliðarnir voru í gær að fínstilla flókið samspil ráa og reiða. Fréttablaðið/Sigrtyggur ari ferðalög „Við héldum að það yrðu það margir á leið í strætóinn í Landeyjahöfn að við mættum 40 mínútum fyrir brottför,“ sögðu vin- konurnar Vigdís Kristín Rohleder og Stefanía Helga Sigurðardóttir sem voru mættar í Mjóddina vel tíman- lega fyrir áætlaða brottför strætis- vagns númer 52 í Landeyjahöfn. Úr Landeyjahöfn áttu Vigdís og Stefanía bókað far með Herjólfi til Eyja þar sem þær ætluðu á Þjóð- hátíð. Báðar er þær nýorðnar nítj- án ára gamlar. Hvorug þeirra hefur farið áður á Þjóðhátíð og kváðust mjög spenntar að fara. Fimmtán mínútum fyrir brottför voru aðeins sex manns að bíða eftir strætisvagninum en rétt fyrir brott- för hafði hópurinn stækkað upp í ríflega tuttugu. „Vinir okkar eru þegar komnir út í Eyjar og tóku fyrir okkur tjöldin og ýmislegt annað. Ég held reyndar að margir hafi annaðhvort ekið sjálfir í Landeyjahöfn eða hreinlega fengið einhvern til þess að skutla sér,“ sagði Vigdís. Auk Þjóðhátíðar í Eyjum eru fjöl- margar útihátíðir um allt land nú um helgina að venju. Þær helstu eru Neistaflug í Neskaupstað, Norðan- paunk á Laugarbakka, Innipúkinn í Reykjavík, Halló Akureyri, Mýrar- bolti í Bolungarvík, Sæludagar í Vatnaskógi, Kotmót Hvítasunnu- kirkjunnar í Fljótshlíð og Flúðir um versló. Þá er ótalið Unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn þar sem búist er við margmenni í miklu stuði. Kort af úthátíðum helgarinnar er á á síðu 12. Suðurlandsvegi var lokað við Landvegamót, austan við, um klukkan þrjú í gær vegna umferðar- slyss og ekki opnaður aftur fyrr en rúmum tveimur tímum síðar. Öku- mönnum var beint um hjáleið og olli slysið nokkrum töfum á umferð. Um var að ræða árekstur bifhjóls og jepplings. Slasaðist einn bifhjóla- maður töluvert en annar minna. sigtryggur@frettabladid.is gar@frettabladid.is Bjuggust við fleirum í strætisvagninn til Eyja Vinkonurnar Vigdís og Stefanía voru á leið á sínu fyrstu Þjóðhátíð í gær og tóku enga áhættu og mættu fjörutíu mínútum fyrir brottför strætó í Landeyjahöfn. Útihátíðir í boði víða um land og virtist straumurinn í gær liggja í allar áttir. Farþegar stigu spenntir um borð í vagn númer 52. Fréttablaðið/Sigtryggur ari Stefanía Helga Sigurðardóttir og Vig- dís Kristín rohleder í miklu stuði. Vinir okkar eru þegar komnir út í Eyjar og tóku fyrir okkur tjöldin og ýmislegt annað Vigdís Kristín Rohleder stangveiði „Þegar áin er komin á yfir- fall er allt agn leyfilegt í Blöndu. En alls ekki fyrr!“ segir á vef Lax-ár sem selur laxveiðileyfi í Blöndu. Landsvirkjun gaf út á fimmtudag að miðlunarlón fyrir virkjanir fyrirtæk- isins væru að fyllast eftir rigningartíð. Það vantaði tíu sentimetra upp á að Blöndulón fylltist. Áin færi þar með á yfirfall. Það gerir laxveiðimönnum erfitt fyrir. Búast má við að veiði verði dræm eftir þetta. Það eru ekki góð tíð- indi því aðeins hafði veiðst 771 lax í Blöndu í lok júlí. Meðalveiði síðustu fimm ár er 2.638 laxar. – gar Allt agn leyft á yfirfalli í Blöndu Á blöndubökkum. Fréttablaðið/gVa náttúra Lúmskasta hættan af Skaft- árhlaupinu stafar af brennisteins- vetni í hlaupvatninu. Þetta segir Snorri Zóphóníasson, sérfræðingur í mælarekstri hjá Veðurstofunni. „Það er þannig að ef maður er of nálægt þá fer það í tárin í augunum og slímhúðina í lungunum og breytir vökvanum þar í sýru. Menn fá brunasár á augu og lungu. Það verður hreinlega til brennisteins- sýra úr vökvanum,“ segir Snorri. Snorri segir að enginn ætti að koma nálægt upptökum árinnar og að minnsta kosti tuttugu kílómetra niður með henni. Einnig þurfi að huga að vindátt. „Síðan rýkur þetta úr vatninu. Þegar maður kemur neðar er þetta ekki svona magnað.“ Að sögn Snorra var farið að draga úr þeirri miklu hækkun sem varð á vatnshæð hlaupsins skömmu eftir að það braust undan jökl- inum stuttu eftir hádegi í gær, fyrr en vísindamenn höfðu spáð, þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gærkvöld. Snorri segist hafa skoðað mörg hlaup aftur í tímann og segir þennan bratta ekki óvenjulegan við upphaf hlaups. Ríkisútvarpið greindi frá því í gær að björgunarsveitarfólk hafi fundið um kvöldmatarleytið tvo hópa göngumanna á svæðinu þar sem hlaupið fór um þegar unnið var að rýmingu svæðisins og hjálpað þeim við að komast leiðar sinnar. – þea Gasið lúmskasta hættan Skaftá við Kirkjubæjarklaustur í gær- kvöldi. Fréttablaðið/anton brinK 4 . á g ú s t 2 0 1 8 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 0 4 -0 8 -2 0 1 8 0 3 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 8 8 -3 1 7 0 2 0 8 8 -3 0 3 4 2 0 8 8 -2 E F 8 2 0 8 8 -2 D B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.