Fréttablaðið - 04.08.2018, Page 6
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Straumhvörf
Audi A3 e-tron sameinar tvo heima
Tengiltvinnbíllinn Audi A3 e-tron hefur átt mikilli velgengni að fagna.
Hann var valinn besti rafbíll ársins 2015 af What Car? og er með
en með skilvirkri samþættingu rafdrifs og sparneytinnar bensínvélar
er samanlögð heildardrægni allt að 940 km.
Tilboðsverð: 4.090.000 kr.
SIMBABVE Nelson Chamisa, leiðtogi
Hreyfingarinnar fyrir lýðræðisum-
bætur (MDC), viðurkennir ekki úrslit
forsetakosninga Simbabve. Chamisa
laut í lægra haldi fyrir Emmerson
Mnangagwa, sitjandi forseta og fram-
bjóðanda Afríska þjóðarbandalags
Simbabve (ZANU-PF).
Tilkynnt var um úrslitin á fimmtu-
dagskvöld en kosið var á mánudag.
Chamisa fékk 44,3 prósent atkvæða,
Mnangagwa 50,8 prósent og slapp
þannig við aðra umferð kosninga.
„Þessi skandall landskjörstjórnar,
að birta ósannreyndar og falskar
niður stöður, er harmleikur. Kjör-
stjórn neitaði eftirlitsfulltrúum okkar
um aðgang að niðurstöðunum áður
en þær voru kynntar almenningi.
Kjörstjórn verður að birta raun-
verulegar og sannreyndar niður-
stöður sem báðir flokkar samþykkja.
Þessi skortur á gagnsæi, sannleika,
almennu siðferði og samfélagslegum
gildum er ótrúlegur,“ tísti stjórnar-
andstöðuleiðtoginn í gær.
Chamisa sagði á blaðamannafundi
að hann myndi leita allra leiða til þess
að fá niðurstöðunni hnekkt. Hann
væri tilbúinn að fara fyrir dómstóla
með málið. Flokkur hans, MDC, hafði
fullyrt eftir kosningarnar að Chamisa
væri sigurvegari. Chamisa sagði til að
mynda sjálfur að ef Mnangagwa hefði
í raun unnið hefðu niðurstöðurnar
verið kynntar fyrr. Landskjörstjórn
hafi tafið tilkynninguna til þess að
„eiga við tölurnar“.
Mnangagwa hafnaði öllum ásök-
unum um svindl í gær og sagðist ein-
faldlega hafa unnið á sanngjarnan
hátt. Hann gagnrýndi það þó að lög-
regla hafi komið í veg fyrir að blaða-
menn fengju að sækja blaðamanna-
fund andstæðingsins Chamisa. „Það
sem gerðist á Bronte-hótelinu á ekki
að eiga sér stað í okkar samfélagi og
við erum nú að rannsaka málið,“ tísti
Mnangagwa. Eftirlitsaðilar á vegum
Evrópusambandsins sögðu á mið-
vikudag að ýmislegt hefði mátt betur
fara. Fjölmiðlar hafi hvergi nærri
verið hlutlausir, hræðsluáróðri hafi
verið beint að kjósendum og þá sé
landskjörstjórn rúin trausti.
Simbabveski miðillinn Newsday
greindi frá því í gær að kjörstjórn hafi
til að mynda lýst þingframbjóðanda
ZANU-PF í Chegutu West sigurvegara
en eftir að hafa farið fram á að sjá töl-
urnar var frambjóðandi MDC lýstur
réttmætur sigurvegari.
Stræti Harare voru, samkvæmt
simbabveskum fjölmiðlum, óvenju
hljóðlát í gær þrátt fyrir að borgin sé
helsta vígi MDC. Lögreglumenn voru
á hverju strái en líklega voru MDC-
liðar hræddir við að mótmæla eftir
atburði miðvikudagsins. Brutust þá
út átök milli mótmælenda og lögreglu
sem kostuðu sex mótmælendur lífið.
thorgnyr@frettabladid.is
Hvergi af baki dottinn
Forsetakosningar í Simbabve draga dilk á eftir sér. Stjórnarandstæðingurinn
segir niðurstöðurnar falsaðar og ætlar í mál. Forsetinn vísar ásökunum á bug.
Nelson Chamisa er ekki par sáttur við kjörstjórn landsins. NORDICPHOTOS/AFP
ÚKRAÍNA Síðasta vestræna hótelið á
Krímskaga, Best Western Sevastopol
Hotel í eigu bandaríska fyrirtækisins
Best Western Hotels & Resorts, hefur
hætt rekstri. Reuters greindi frá þessu
í gær og hafði eftir tveimur starfs-
mönnum. Ástæðan er viðskipta-
þvinganir sem innleiddar voru eftir
að Rússar innlimuðu svæðið.
Hótel er enn þá starfrækt í bygg-
ingunni en það heitir nú einfaldlega
Sevastopol Hotel and Spa. Sam-
kvæmt Reuters var Best Western
hótelið eitt síðasta merkið um veru
alþjóðlegra fyrirtækja á skaganum
en þau hafa horfið á braut frá inn-
limuninni 2014. Á meðal þeirra stór-
fyrirtækja sem hafa farið af Krím-
skaga eru til að mynda McDonald’s
og Radisson Hotels.
Með þvingununum var banda-
rískum fyrirtækjum bannað að starfa
á Krímskaga og fjárfesta á svæðinu.
Ekki má eiga viðskipti við ein-
staklinga frá skaganum og fyrirtæki
þaðan og því er ómögulegt fyrir vest-
ræn fyrirtæki að skipta við banka á
svæðinu.
Best Western rekur sjálft engin
hótel heldur leigir fyrirtækjum víða
um heim afnotarétt af vörumerkinu,
líkt og til dæmis skyndibitakeðjan
Subway gerir auk margra ann-
arra. Heimildarmaður Reuters sem
starfar á hótelinu sagði við miðilinn
að fyrirtækið hafi einfaldlega hætt
að greiða fyrir afnotaréttinn. Annar
sagðist ekki vita hvort það hafi verið
ákvörðun Best Western eða rekstrar-
aðilans á Krímskaga.
Innlimun Rússa á Krímskaga, sem
alþjóðasamfélagið álítur enn hluta
Úkraínu, var fordæmd á alþjóðavett-
vangi. Evrópusambandið og Banda-
ríkin hafa innleitt þvinganir vegna
innlimunarinnar en Rússar sögðust
vera að vernda rússneskumælandi
íbúa skagans á Krímskaga og báru
það fyrir sig að þetta væri vilji meiri-
hluta íbúa hans. – þea
Síðasta vestræna hótelið
flýr burt af Krímskaga
Best Western Sevastopol Hotel er farið af Krímskaga. NORDICPHOTOS/GETTY
4 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
8
-2
0
1
8
0
3
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
8
-5
8
F
0
2
0
8
8
-5
7
B
4
2
0
8
8
-5
6
7
8
2
0
8
8
-5
5
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K