Fréttablaðið - 04.08.2018, Side 8

Fréttablaðið - 04.08.2018, Side 8
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Gunnar Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Það er eins og enginn sé á staðnum því allir eru uppteknir í tækjunum sínum og telja sig eiga þar í mikil- vægum samskiptum við aðra. Framlagning kjörskrár Kjörskrá vegna íbúakosningar um miðbæjarskipulag Sveitarfélags ins Árborgar, sem haldnar verða laugardag- inn 18. ágúst 2018, skal lögð fram eigi síðar en 8. ágúst 2018. Kjörskrá skal leggja fram á skrifstofu sveitarstjórnar eða á öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn ákveður. Þeim sem vilja koma að athugasemdum er bent á að senda þær sveitarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar. Dómsmálaráðuneytinu, 4. ágúst 2018 Einu sinni var lífið list. Nú er það listi.Óopinber endalok sumars eru handan horns-ins. Að lokinni verslunarmannahelgi vaknar raunveruleikinn af sumardvala. Verkefni vetrarins skjóta frjóöngum, vaxa og verða að löngum listum: Það vantar nýja kuldaskó á börnin; er búið að skrá Siggu litlu á fótboltanámskeiðið og Jón litla í píanótímana? Yfirmaðurinn er kominn heim úr fríinu. Hann var að senda tölvupóst. Þarf að svara. Set það á listann. Hvar eru skólatöskurnar aftur? Síminn pípar. Sms. Stíla- bækurnar; hvað þarf að kaupa margar? Ekki gleyma blýöntunum. Síminn pípar. WhatsApp. Siggu er boðið í afmæli hjá Jónu. Beint í Kringluna. Ha, er mjólkin búin? Ókei: Afmælisgjöf, mjólk, brauð, bananar, ostur. Tölvupóstur. Yfirmaðurinn. Fundur á morgun. Set það á listann. Fréttirnar. Þarf að kíkja á fréttirnar. Og Facebook. Ekki gleyma Instagram. Skúra gólfið. Eru að koma jól? Gjafalisti. Jólakortin. Síminn pípar. Tölvu- póstur. Þarf að svara. Set það á listann. Listinn. Hvar er listinn? Þarf að finna listann. Set það á listann. Umbun sýndarathafna Innkaupalistar. Minnislistar. Aðgerðalistar. Við þekkj- um öll sæluna sem fylgir því að leysa verk af höndum; strika yfir atriði á lista. Rannsóknir sýna að í hvert sinn sem við ljúkum verkefni eykst magn taugaboðefnisins dópamíns í heila. Dópamín framkallar ánægju, veldur með okkur vellíðan og orsakar jafnvel sigurtilfinningu. Listar eru mikilvæg líflína á annasömum tímum. Þeir fleyta okkur gegnum daginn, halda okkur á floti. Eða það höldum við. Æ fleiri eru þeirrar skoðunar að listar séu þvert á móti þungt farg sem sökkvir okkur í hyldýpi tilgangsleysis og leiðir okkur á glapstigu. Fall okkar er falið í efnafræði ánægjunnar. Vegna gleðinnar sem það veitir okkur að klára verkefni sækjum við ítrekað í litlu og auðveldu verkin á aðgerðalistanum: svara tölvupósti, hringja símtal, halda fund. Könnun sem Microsoft gerði meðal skrif- stofufólks í Bretlandi sýnir að 77% þess telur sig hafa átt árangursríkan dag hafi það ekki áorkað öðru en að svara öllum ólesnu tölvupóstunum í innhólfinu. Slíkur árangur er þó aðeins tálsýn. Því á meðan við sitjum við tölvuna í dópamín-vímu og svörum fleiri og fleiri tölvupóstum er eiginlegur afrakstur oft enginn. Í stað þess að byrja á stóru skáldsögunni förum við út í búð og kaupum nýja stílabók. Í stað þess að skrifa efnis- grein í hundrað síðna skýrslu höldum við fund. Í stað þess að forrita nokkrar línur af kóða í margra ára hug- búnaðarverkefni dútlum við með Post-it miða. Í stað þess að setjast niður og spjalla við börnin um daginn og veginn kaupum við handa þeim límmiðabók. Í stað þess að klára viðskiptaáætlunina endurskipuleggjum við aðgerðalistann. En hvernig getum við brotist undan þessari fíkn í tafarlausa umbun slíkra sýndarathafna? Á dánarbeðinum Ímyndum okkur að lífið sé dagatal. Við horfum inn í framtíðina. Hver einasti númeraði ferningur er tómur. Það er ekkert á dagskrá, við höfum ekkert að gera. Það er þetta viðhorf sem kemur okkur í klandur. Þegar við skráum fund í dagatalið teljum við okkur skipuleggja viðburð á tíma sem ekkert stóð til. Ferningurinn var jú tómur. Slíkt er rökvilla. Þegar við skráum fund í dagatalið stelum við stund frá stóru verkefnunum: Skáldsögunni sem á að skrifa, forritinu sem stendur til að smíða, börnunum sem þarf að koma til manns. Því dagatalið er aldrei tómt. Það er fullt af lífi – það er fullt af lífi þangað til við kaffærum það í svo mörgum sýndarathöfnum að ekki gefst tími til að horfa á sólarlagið, lesa bók, fara í fjallgönguna, veiðiferðina, matarboðið, göngutúrinn … Á dánarbeðinum mun enginn líta til baka og hugsa til þess með stolti að hafa svarað öllum tölvupóstunum í innhólfinu áður en kallið kom. Njótið verslunarmanna- helgarinnar, kæru landsmenn – og munið þegar þið snúið til baka í veruleika listanna að fríi loknu að það er aðeins einn listi sem skiptir máli. Sá listi kallast lífið. Lífið er listi Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Stórfyrirtæki keppast við að laða til sín við-skiptavini og beita meðal annars lokkandi auglýsingum. Ekkert skal til sparað þegar kemur að því að sannfæra viðskiptavininn um að vara fyrirtækisins sé nokkuð sem neytandinn þurfi mjög nauðsynlega á að halda. Slík fyrirtæki eru sannar- lega ekki líkleg til að auglýsa: Ekki eyða of miklum tíma hjá okkur því þið gætuð tapað vitglórunni! Þetta gerðu forsvarsmenn Facebook þó nýlega í bloggfærslu þar sem þeir viðurkenndu slæm áhrif þess að dvelja lengi á sam- félagsmiðlinum. Hver rannsóknin á fætur annarri sýnir að það hefur slæm áhrif á andlega heilsu einstaklinga að eyða miklum tíma á samfélagsmiðlum. Forsvarsmenn Facebook hefðu auðveldlega getað leitt þessar niðurstöður hjá sér, ekki græða þeir stórkostlegar upphæðir á því að viðurkenna að miðillinn sé ekki sú sáluhjálp sem dyggustu notendur hans ætla. Það er stórmerkilegt að fyrirtæki sem hefur hag af því að viðskiptavinirnir eyði sem mestum tíma hjá því skuli áminna fólk um að gera ekki of mikið af slíku þar sem það geti skaðað andlega heilsu þess. Nú hafa forsvarsmenn Facebook og Instagram ákveðið að koma með viðbót á samfélagsforrit sín þar sem notendur geta áttað sig á því hversu lengi þeir hafa verið á viðkomandi samfélagsmiðli. Þetta er viðleitni, en engin lausn. Neytendur eiga auðveldlega að geta áttað sig á því sjálfir hversu miklum tíma þeir eyða á samfélagsmiðlum. Stór hópur fólks er mjög meðvitaður um að eyða þar ekki óhóflegum tíma. Svo er hinn hópurinn sem kann hvergi betur við sig en á samfélagsmiðlum. Í þau fáu skipti sem þessir einstaklingar eru fjarri þeim miðlum þjást þeir nánast af aðskilnaðarkvíða. Sumir eru orðnir svo háðir miðlunum að þeir eru í hálfgerðu leiðsluástandi við notkun á þeim og glata öllu tímaskyni. Ekki er líklegt að þeir læknist af fíkninni þótt Facebook og Instagram gefi þeim vísbendingar um að þeir séu að eyða hættulega miklum tíma þar. Samfélagsmiðlar hafa margt til síns ágætis og gera lífið óneitanlega oft þægilegra. Þar er fólk leitt saman og deilir sögum, myndum og skilaboðum. Slík samskipti koma þó ekki í staðinn fyrir hin raunverulegu samskipti þar sem fólk hittist augliti til auglitis. Raddblær skiptir máli í samskiptum fólks. Það gerir snerting einnig, faðmlag, handaband eða vinalegar strokur sem eru til marks um vinarþel og flokkast ekki undir káf. Broskallar eru ágætir til síns brúks en koma ekki í staðinn fyrir bros sem fólk sem nær vel saman sendir hvað öðru. Hin raunverulega nánd skiptir máli en samt eru ansi margir sem forðast hana. Dag hvern sjást fjölskyldur og vinahópar sitja saman, en það er eins og enginn sé á staðnum því allir eru uppteknir í tækjunum sínum og telja sig eiga þar í mikil- vægum samskiptum við aðra. Um leið veita þessir sömu einstaklingar nánast enga athygli fólkinu sem þeir sitja með. Það er engin nánd milli fólks því allir eru heillaðir af tækjunum sínum. Meira að segja forsvarsmenn Facebook sjá að þetta er ekki í lagi. Raunveruleg nánd 4 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 4 -0 8 -2 0 1 8 0 3 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 8 8 -6 C B 0 2 0 8 8 -6 B 7 4 2 0 8 8 -6 A 3 8 2 0 8 8 -6 8 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.