Fréttablaðið - 04.08.2018, Síða 10
frí heimsending
á fartölvum
á elko.is
GARMIN
VIVOSMART 3
0100175500 0100175503
AÐEINS
100 STK.
AÐEINS
85 STK.
AÐEINS
30 STK.
AÐEINS
25 STK.
-29% -32%
-10%
-30%
LOGIK
ÖRBYLGJUOFN
L17MW14E 184.495
verð áður: 204.995
APPLE
MACBOOK
Z0TZ
PHILIPS
49” UHD SNJALLSJÓNVARP
49PUS8303 119.995
verð áður: 169.995
14.995
verð áður: 21.990
7.695
verð áður: 10.995er hafin!
útsalan
Anton Sveinn
setti Íslandsmet
SUND Anton Sveinn McKee setti nýtt
Íslandsmet í undanúrslitum í 100
metra bringusundi á EM í 50 metra
laug í Glasgow í Skotlandi í gær.
Anton Sveinn synti á 1:00,45 mín-
útum og var í 7. sæti í sínum riðli.
Hann komst ekki áfram í úrslita-
sundið.
Gamla Íslandsmetið hans Ant-
ons Sveins, frá HM í 50 metra laug í
Kazan í Rússlandi 2015, var 1:00,53
mínútur.
Anton Sveinn hóf æfingar á ný í
byrjun ársins eftir að hafa tekið sér
frí eftir Ólympíuleikana í Ríó. – iþs
Valdís úr leik á
Opna breska
GOLF Valdís Þóra Jónsdóttir komst
ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna
breska meistaramótinu í golfi.
Valdís lék annan hringinn í gær
á fimm höggum yfir pari og endaði
samtals á sex höggum yfir pari.
Niðurskurðurinn miðaðist við eitt
högg yfir pari.
Valdís var á einu höggi yfir pari
eftir skrautlegan fyrsta hring og því
í fínni stöðu. Skagakonan byrjaði
hringinn í gær illa, fékk þrjá skolla á
fyrstu fjórum holunum og eftir það
var róðurinn þungur. Hún fékk alls
sjö skolla á hringnum í gær og tvo
fugla. – iþs
Anton Sveinn bætti eigið Íslandsmet
á EM í Glasgow. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI Kári Jónsson tók risa-
stórt skref á ferli sínum þegar hann
skrifaði undir sinn fyrsta atvinnu-
mannasamning og það var ekkert
smálið sem verður fyrsti vettvangur
hans í frumraun hans sem atvinnu-
maður. Hafnfirðingurinn samdi
nefnilega við spænska stórliðið
Barcelona, en hann mun æfa og
spila með B-liði félagsins sem leikur
í spænsku B-deildinni fyrst um sinn.
Kári, sem er tvítugur, lék undir
stjórn Finns Freys Stefánssonar
þegar hann sló í gegn með U-20
ára landsliðinu í fyrra og hittifyrra.
Íslenska liðið fór upp úr B-deild
mótsins árið 2016 og lenti svo í átt-
unda sæti í A-deildinni árið eftir.
Finnur Freyr telur að góð spila-
mennska hans þar hafi vakið athygli
útsendara Katalónanna.
„Það var fljótlega ljóst að Kári
hafði einstakar körfuboltagáfur
og að hann skildi leikinn afburða
vel. Ég byrjaði að kljást við hann í
yngri flokkunum og maður sá það
strax að hann myndi komast langt.
Hann hafði gríðarlegan leikskilning
og þegar ég þjálfaði hann í U-15 og
U-16 ára landsliðunum var hann
með mjög þroskaðar pælingar um
taktík og hvernig leikmenn myndu
blómstra inni á vellinum,“ sagði
Finnur Freyr um Kára.
„Kári sýndi það þegar hann spil-
aði með okkur á Evrópumóti leik-
manna yngri en 20 ára að hann er í
sama gæðaflokki og sterkustu leik-
menn í Evrópu í hans aldursflokki.
Þarna voru ekki þeir leikmenn sem
voru komnir að hjá NBA-liðum,
en sterkustu leikmenn sem leika
í Evrópu á þessum aldri og Kári
stóðst þeim fyllilega snúning. Það
kom honum á kortið og hann er að
njóta góðs af því. Auk þess sem sú
staðreynd að við fórum tvívegis á
EuroBasket í A-landsliðinu varð til
þess að útsendarar fóru að líta til
íslenskra leikmanna,“ sagði Finnur
um þróun Kára sem leikmanns.
„Það sem hann skortir aðallega er
líkamlegur styrkur og því mun hann
klárlega bæta við sig hjá Barcelona.
Hann mun fara í gegnum sama
módel og aðalliðið hjá B-liðinu og
vera í umhverfi þar sem hann á alla
möguleika á að taka næsta skref sem
leikmaður. Það er auðvitað mikill
munur á gæðum leikmanna í A- og
B-liðunum, en það er samgangur á
milli liða og hann er að fara að æfa
að einhverju leyti með aðalliðinu og
hann mun græða helling á því,“ sagði
Finnur um þetta skref Kára.
„Það er nokkuð langur vegur á
milli þess að leika með B-liði Barce-
lona og að koma sér að hjá aðal-
liðinu. En vonandi notar Kári þetta
sem stökkpall til þess að komast enn
lengra. Það er hins vegar ekkert slor
að vera farinn að leika í spænsku B-
deildinni á þeim aldri sem hann er
á og það verður spennandi að sjá
hann leika þar næsta vetur. Honum
eru allir vegir færir í framtíðinni ef
hann heldur rétt á spilunum,“ sagði
Finnur um komandi keppnistímabil
hjá Kára. hjorvaro@frettabladid.is
Sýndi ungur afburðagáfur
Kári Jónsson er búinn að semja við spænska stórliðið Barcelona. Hann mun leika með B-liði félagsins.
Finnur Freyr Stefánsson þjálfaði Kára í yngri landsliðum Íslands og þekkir vel til Hafnfirðingsins knáa.
Kári var með 19,9 stig, 4,6 fráköst og 4,9 stoðsendingar að meðaltali í leik með Haukum í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI
Það er nokkuð
langur vegur á milli
þess að leika með B-liði
Barcelona og koma sér að hjá
aðalliðinu. En vonandi notar
Kári þetta sem stökkpall til
þess að komast enn lengra.
Finnur Freyr Stefánsson
4 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
4
-0
8
-2
0
1
8
0
3
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
8
-6
7
C
0
2
0
8
8
-6
6
8
4
2
0
8
8
-6
5
4
8
2
0
8
8
-6
4
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K