Fréttablaðið - 04.08.2018, Side 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil-
helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson,
olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
Sækja þarf þriggja vikna grunnnámskeið áður en fólk fer að æfa CrossFit.
Kennt er þrisvar í viku og hefst næsta grunnnámskeið þann 8. ágúst.
Aðstaðan verður öll hin glæsi-legasta. Nýja Reebok Fitness stöðin er u.þ.b. 2.400 fermetrar
að stærð og þar af fara 350 fermetrar
undir CrossFit,“ segir Ágúst Ágústs-
son hjá Reebok Fitness og CrossFit
Kötlu en ný stöð verður opnuð í
september í Lambhaga 15 (við rætur
Úlfarsfells, rétt við Bauhaus). Fyrir
er CrossFit Katla í Reebok Fitness
í Holtagörðum. Í Lambhaga er
undirbúningur í fullum gangi og
segir Ágúst nýju stöðina bjóða upp á
aukið úrval tíma og æfinga. CrossFit
Katla Lambhaga er systurstöð Cross-
Fit Katla Holtagarðar og mun sama
æfingaprógramm vera á báðum
stöðvum. Meðlimir í CrossFit Kötlu
greiða eitt gjald en geta síðan valið
hvort þeir mæti á æfingu í Lamb-
haga eða Holtagörðum, allt eftir því
hvað hentar þeim. Meðlimir Kötlu
geta einnig nýtt sér alla almenna
tíma og aðstöðu í Reebok Fitness
stöðvunum.
Fjölbreyttir tímar
Hér verður sérstakur salur með inn-
rauðum hita en innrauður hiti fer
dýpra inn í líkamann og mýkir alla
vöðva og liði. Þá geta CrossFittarar til
dæmis brotið upp rútínuna með því
að fara Hot yoga, Triggerpoint Pilates
eða sótt teygjutíma. Hér verður
boðið upp á hjólreiðatíma þar sem
hjólað er eftir vöttum og einnig
hægt að fara í spinning. Eftir æfingar
getur fólk svo slakað á í gufubaði og
dýft sér í heita og kalda potta,“ segir
Ágúst. Þá verður barnapössun í boði
í Lambhaga.
Ekkert sé til sparað við nýju stöð-
ina og meðal annars hafi sérstaklega
verið hugað að hljóðvist við hönnun
CrossFit salarins.
„CrossFit æfingunum getur fylgt
hávaði frá lóðaköstum. Helmingur-
inn af gólfinu í nýja CrossFit salnum
er sérstaklega útbúinn til að bregðast
við því. Þegar við steyptum gólfið
skildum við hundrað fermetra svæði
eftir sem fyllt var af sandi, stuð-
kantur settur meðfram veggjum
og svo steypt yfir. Flöturinn er því
ekki járnabundinn við veggi og með
því vonumst við til að hávaða leiði
ekki eins um húsið. Í Holtagörðum
er salurinn á 2. hæð og þar má ekki
kasta lóðum, þótt það hendi öðru
hvoru í hita leiksins,“ segir Ágúst.
Tímar fyrir unglinga
(8.-10. bekk)
Fljótlega eftir opnun Reebok
stöðvarinnar verður boðið upp á
tíma fyrir unglinga (8.-10. bekk) í
Reebok Fitness og svo yngri börn í
kjölfarið. Ágúst leggur áherslu á að
tímarnir snúist ekki um keppnis-
æfingar heldur heilbrigðan lífsstíl til
langframa.
„Ég hef lengi átt mér þann draum
að ná fyrr til krakka og kynna fyrir
þeim þetta fjölbreytta og skemmti-
lega æfingaform sem tengist ekkert
endilega keppni, heldur því að
hreyfa sig rétt, viðhalda liðleika og
styrk og passa upp á góða næringu.
Tilgangurinn er ekki „sixpack“
heldur lífsgæðin sem fylgja hraustum
líkama sem endist lengur og er
sterkari gagnvart sjúkdómum. Með
því að gera krakka og unglinga með-
vitaða um heilbrigt líferni snemma á
ævinni fjárfestir maður í heilsunni til
framtíðar,“ segir Ágúst.
Unglingatímarnir verða kenndir í
æfingaaðstöðu Kötlunnar í Lamb-
haga og þjálfari verður Marion
Fennö Muyingo.
Alhliða þjálfun hentar öllum
Brynjar Ingólfsson, annar yfirþjálfari
hjá CrossFit Kötlu, segir alla geta
stundað CrossFit. Áhersla sé lögð á
heimilislegt andrúmsloft og passað
upp á að iðkendur framkvæmi
æfingarnar rétt.
„Iðkendur í CrossFit Kötlu eru á
mjög breiðu aldursbili eða frá 16 til
65 ára. Kynjahlutfallið er 60% konur,
40% karlar. Ég er búinn að vera svo
lengi í þessu að nú sé ég foreldra
vera farna að taka unglingana með
sér á æfingar. CrossFit er sport sem
fólk á ólíku getustigi getur stundað
saman en á jafningjagrundvelli,“
segir Brynjar. „Við viljum að fólki
líði vel og höfum frekar lagt áherslu
á heimilisbrag og góðan anda en
keppnisæfingar þó við séum alltaf að
vinna að því að fólki nái sínu besta
formi. CrossFit er alhliða styrktar- og
úthaldsþjálfun sem er byggð upp á
breytilegum æfingum sem undirbúa
líkamann fyrir áskoranir af hvaða
tagi sem er. Það ættu allir að geta
stundað CrossFit. Það er alltaf hægt
að finna æfingar og hreyfingar sem
henta hverjum og einum,“ segir
Brynjar. Byrja ætti á að sækja grunn-
námskeið í CrossFit til að læra undir-
stöðuatriði og rétta tækni.
Grunnnámskeið að hefjast
„Það þarf að taka þriggja vikna
grunnnámskeið í CrossFit áður
en fólk fer að æfa. Námskeiðið er
kennt þrisvar í viku þar sem farið
yfir helstu atriði í CrossFit, beitingu
líkamans í hinum ýmsu æfingum
og hvernig fólk geti „skalað“ æfingar
sem framkvæmdar eru. Eftir það
getur fólk mætt í Wod (Workout of
the day),“ útskýrir Brynjar.
Næsta grunnnámskeið hefst 8.
ágúst, kostar 19.900 krónur og er
septemberaðild innifalin.
„Tíu þjálfarar starfa á stöðinni,
fimm karlar og fimm konur, sem öll
eru með Level 1 eða Level 2 kennslu-
réttindi. Við stefnum á að fjölga
þjálfurum með haustinu,“ segir
Davíð Ólafsson, annar yfirþjálfari hjá
CrossFit Kötlu, og bætir við að í boði
verða rúmlega 50 tímar í viku þegar
opnað verður í Lambhaga. „Þeir sem
eru meðlimir í CrossFit Kötlu geta
komið og notað aðstöðuna (svo-
kallað open box), og æft sjálfir þegar
engir tímar eru í sölunum. Stöðvarn-
ar verða opnar til klukkan 22 mánu-
daga til fimmtudaga, til klukkan 21
á föstudögum og til klukkan 20 um
helgar,“ segir Davíð.
Heimasíða Crossfit Kötlu er www.
Crossfitkatla.is og Facebook-síðan
www.facebook.com/CrossfitKatla/
Framhald af forsíðu ➛
Aðstaðan verður öll hin glæsilegasta í nýja húsnæðinu, gufa, heitir og kaldir pottar og barnagæsla svo fátt eitt sé
nefnt. Í boði verða rúmlega 50 tímar í viku þegar opnað verður í Lambhaga í september. MyndIR/SIGTRyGGUR ARI
Þeir sem eru meðlimir í CrossFit Kötlu geta komið og notað aðstöðuna og æft sjálfir þegar engir tímar eru í söl-
unum. Stöðvarnar verða opnar til klukkan 22 mánudaga til fimmtudaga, 21 á föstudögum og 20 um helgar.
„CrossFit er sport sem fólk á ólíku getustigi getur stundað saman en á jafningjagrundvelli,“ segir Brynjar. Áhersla er
lögð á heimilislegt andrúmsloft þó að ávallt sé unnið að því að fólk nái sínu besta formi.
2 KynnInGARBLAÐ FÓLK 4 . ÁG Ú S T 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
4
-0
8
-2
0
1
8
0
3
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
8
-7
6
9
0
2
0
8
8
-7
5
5
4
2
0
8
8
-7
4
1
8
2
0
8
8
-7
2
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K