Fréttablaðið - 04.08.2018, Side 54
Patty Spyrakos og Baldur Helgason sýna verk sín í Gallerý Port á Lauga-vegi. Yfirskrift sýning-arinnar er Skemmtilegs og þar er að finna olíu-
málverk og teikningar Baldurs og
keramikskúlptúra Pattyar.
Patty og Baldur unnu flest verkin
á sýningunni í vinnustofu sinni í
Chicago þar sem þau búa og starfa.
„Ég flutti til San Francisco 2008 og
fór í nám í myndskreytingu. Þar
kynntist ég Patty og við giftum
okkur og eignuðumst börn. Við
fluttum síðan til Chicago til að geta
verið nær fjölskyldu hennar,“ segir
Baldur. Hann segir að það hafi tekið
sig smátíma að koma sér á framfæri
sem listamaður í Bandaríkjunum.
„Þegar ég komst að með fyrstu
sýninguna mína þá fóru hlutirnir
að fara í gang, önnur gallerí höfðu
samband og vildu sýna verk mín og
það gengur vel þessa dagana. Ég hef
verið búsettur erlendis í tíu ár og
finnst gaman að sýna hér á landi,
maður vill sýna fólkinu sína hvað
maður hefur verið að gera. Það er
líka skemmtilegt að sýna í í galleríi
eins og þessu. Gallerý Port er perla
á Laugaveginum, í miðri túrista-
þvögunni,“ segir Baldur.
Olíumálverk hans og kolateikn-
ingar eru í skopmyndastíl. „Þetta
eru skopmyndir, svolítið expressj-
ónískar týpur,“ segir hann. „Í skop-
myndastíl er ég að túlka ýmislegt
eins og angist, kímni og mannúð.“
Týpurnar eru með áberandi stórar
varir og Baldur er spurður um skýr-
inguna á því. „Ég var mjög lítill sem
krakki, ekkert nema augu og varir
og það hefur fest sig í myndmáli
mínu.“
Skúlptúrar Pattyar eru úr keramík
og sýna naktar konur í skoplegum
stíl, með þykkar varir og áberandi
hárgreiðslu. Patty segist þarna
vera að leggja áherslu á hlutverk
konunnar sem viðfangs. „Ég er ekki
að skapa gallalausa og tímalausa
nakta ímynd heldur endurspegla
innri togstreitu. Þessar verur eru
oft með slaufur og bólgna kvenlega
hárgreiðslu til þess að sýnast en það
undirstrikar að það er útilokað að
dæma fólk einungis eftir útlitinu,“
segir hún.
Í sumar hefur Patty sýnt verk sín
á fjórum sýningum í Chicago, þar
á meðal eru skúlptúrar álíkir þeim
sem hún sýnir í Gallerý Porti, en
sumir mun stærri. Skúlptúrarnir
hafa slegið í gegn í Chicago og einn-
ig í Gallerý Porti þar sem búið er að
selja langflesta þeirra. Auk kven-
skúlptúra sýnir Patty matarverk úr
keramík, og má þar nefna sviða-
haus, en sviðahausa hefur hún aldr-
ei smakkað en séð eiginmann sinn
gófla þeim í sig. Hún sýnir einnig
pulsu, pulsusinnep, kleinu, kókó-
mjólk og sundkort, allt úr keramík.
Þetta er önnur sýning Baldurs í
Gallery Port og fyrsta sýning Pattyar
á Íslandi. Hjónin segjast vilja eyða
meiri tíma hér á landi. „Við komum
hingað einu sinni á ári, helst á sumr-
in og eyðum góðum tíma hérna. Við
erum að reyna að finna út úr því
hvernig við getum verið helming
af árinu hérna og hinn helminginn
úti,“ segja þau.
Túlkanir í skopmyndastíl
Hjónin Patty Spyrakos og Baldur Helgason sýna olíumálverk, teikningar og ker-
amíkskúlptúra í Gallerý Port. Búa í Chicago en vilja eyða meiri tíma á Íslandi.
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR
www.skornirthinir.is
ÖRUGG SKREF
ÚT Í LÍFIÐ
í fyrstu skónum frá Biomecanics
Stærðir: 18–24
Verð: 7.995
Margir litir
Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka
fyrstu skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum
bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Börnin
komast auðveldar áfram og af meira öryggi þökk
sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá.
Patty og Baldur sýna fjölbreytt úrval verka í Gallerý Port. Þetta er önnur sýning hans þar en hún sýnir þar í fyrsta skiptið. FréttaBlaðið/Þórsteinn
Meðal verka
Patty eru
pulsa í pulsu-
brauði, sinn-
ep og kókó-
mjólk. allt úr
keramík.
FréttaBlaðið/
Þórsteinn
skopmyndir
Baldurs
prýða veggi
gallerísins.
lengst til
hægri er
sviðahaus
með til-
heyrandi
eftir Patty.
FréttaBlaðið/
Þórsteinn
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
4 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R34 m e n n i n g ∙ F R É t t A B L A ð i ð
menning
0
4
-0
8
-2
0
1
8
0
3
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
8
8
-5
8
F
0
2
0
8
8
-5
7
B
4
2
0
8
8
-5
6
7
8
2
0
8
8
-5
5
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K