Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 28
Hárlos getur hent okkur öll og orsökin er ekki alltaf þekkt en algengt er þó að hármissi
megi rekja til veikinda, mikils
álags, vandamála með skjaldkirtil,
lyfjameðferða og barnsburðar.
Einnig skiptir miklu máli hvernig
við hugsum um hárið, t.d. hvernig
það er þurrkað og greitt, hvort
hitamótunartæki eru notuð og
hvort það er litað. Góðu fréttirnar
eru þó, að oftast getur hárið vaxið
aftur og við tamið okkur betri
hárumhirðu til að styðja við hár-
vöxtinn,“ segir Karen Elva Smára-
dóttir, markaðsstjóri hjá CU2 sem
flytur inn Nanogen hárvörurnar.
Heildstæð hárlína
Nanogen hárvörurnar eru heild-
stæð lína sem inniheldur virk efni
sem örva hárvöxt og hjálpa okkur
að halda hárinu heilbrigðu og fal-
legu. Virkni varanna hefur verið
vísindalega staðfest og formúlan er
einkaleyfisvarin.
Hárið hefur ákveðinn hár-
vaxtarhring en um leið og eitt hár
deyr byrjar annað að vaxa í þess
stað. Nanogen formúlan virkar á
þrjá vegu og hefur þannig áhrif á
þennan vaxtarhring. Formúlan
gefur hársekkjunum skilaboð um
að örva hárvöxt þannig að:
1. Ný hár myndast hraðar og koma í
stað deyjandi hára.
2. Hvert hár er lengur í vaxtarfasa
sem þýðir að það lifir lengur og
nær meiri sídd en ella.
3. Aukin kollagenframleiðsla við
rót hársins minnkar hárlos með
bættri festu við hársvörðinn.
Það hefst allt með réttum
hárþvotti
„Það skiptir höfuðmáli að þvo
hárið ekki of oft til að strípa það
ekki af sínum náttúrulegu olíum.
Það ætti að nægja að þvo hárið á
tveggja til þriggja daga fresti, sama
hvernig hártegundin er. Þó þarf að
hafa í huga að litað eða mikið efna-
meðhöndlað hár þarf lengri tíma
milli þvotta. Ef þú ert í vandræðum
með að bíða svo lengi er gott að
nota þurrsjampó síðasta daginn
fyrir þvott,“ upplýsir Karen.
Nanogen hárþykkingarsjampó
inniheldur virk efni sem örva hár-
vöxt eins og t.d. salisílsýru, beta-
glucan og pea sprout. Sjampóið
gefur einnig einstaka lyftingu
strax eftir fyrsta þvott og fjarlægir
á áhrifaríkan hátt óhreinindi sem
hafa safnast upp í hársverðinum.
Það inniheldur hvorki súlföt, sílí-
kon né alkóhól.
Þegar þú þværð hárið skaltu
bleyta það vel með volgu vatni
en of heitt vatn getur haft skaðleg
áhrif á bæði hár og hársvörð. Þegar
hárið er orðið vel blautt skaltu
nudda sjampói varlega í hárið og
einbeittu þér að rótum þess. Gott
er að taka smá tíma í að nudda hár-
svörðinn til örva blóðflæðið. Aukið
blóðflæði til hársekkjanna þýðir
meira af súrefni og næringu til að
hjálpa hárinu að vaxa og styrkjast.
Eitt af lykilatriðum í hárþvotti er
að þvo hárið með sjampói tvisvar í
hvert skipti, fyrra skiptið er til þess
að þvo burt leifar af hármótunar-
efnum og öðrum óhreinindum úr
hárinu og seinna skiptið er til að
hreinsa hárið sjálft.
Ekki gleyma næringunni
Eftir hárþvott er borin góð raka-
gefandi hárnæring í hárið en konur
með fíngert og/eða þunnt hár
sleppa gjarnan þessu skrefi til að
forðast að þyngja hárið. Með því
móti fær hárið ekki þá næringu og
raka sem það þarf og getur orðið
rafmagnað og viðkvæmt fyrir flóka
og sliti. Í stað þess að sleppa hár-
næringunni er betra að leita eftir
næringu sem er sérstaklega ætluð
fíngerðu hári og er merkt sem
þykkjandi eða lyftandi.
Til að gefa hárinu auka ást og
tryggja að það fái nægan raka og
næringu er gott að nota djúpnær-
ingu einu sinni í viku en hún er
notuð eftir sjampó og fyrir hárnær-
ingu. Eftir hárþvottinn er gott að
skola hárið með köldu vatni til að
loka inni allan raka og næringu.
Hámarkaðu árangurinn
Hárvaxtarhetjan í Nanogen
línunni, Nanogen Growth Serum,
inniheldur mesta magn hárvaxtar-
þátta sem í boði eru og blöndu
peptíða og þykknis.
Þú berð einfaldlega 1 ml af
blöndunni handahófskennt í
þurran hársvörð einu sinni á dag.
Ein flaska er mánaðarskammtur af
þessu undraefni.
Fáðu enn meiri fyllingu
Ef þú vilt enn meiri lyftingu eftir
hárþvott getur þú notað Nanogen
rótarlyftisprey en auk þess að gefa
meiri fyllingu í hárið inniheldur það
keratín, niacinamide (b3-vítamín)
og koffín sem virka saman til að
örva hársekkina og gefa þeim um
leið raka og styrk. Spreyið má nota
bæði í blautt og þurrt hár en ef þú
Nanogen
hárvöruurnar
innihalda virk efni
sem örva hárvöxt
og halda hárinu
heilbrigðu.
Virkni Nano
gen línunnar
hefur verið
vísindalega
staðfest.
kýst að blása hárið þá þarftu ekki að
hafa neinar áhyggjur því það veitir
hárinu einnig vörn gegn hitanum.
Á meðan hárið vex
Það getur verið erfitt að bíða
eftir nýju hárunum en meðan á
Nanogen meðferðinni stendur
getur þú notað Nanogen hár-
trefjarnar. Hártrefjar eru smáar
agnir sem stráð er yfir vandamála-
svæði og bindast agnirnar við þitt
eigið hár svo það virkar þykkara og
meira um sig.
Kynntu þér möguleika Nanogen
vörulínunnar á næsta sölustað.
Nanogen vörurnar fást í apótekum,
Heimkaup.is og beautybox.is
Formúla
Nanogen
er einkaleyfis
varin.
Hámarkaðu
árangurinn
með hárvaxtar
hetjunni í Nanogen
línunni, Nanogen
Growth Serum.
Nanogen
hárþykkingars
jampó inniheldur
virk efni sem örva
hárvöxtinn.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . ÁG ú S t 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
A
-2
6
4
0
2
0
9
A
-2
5
0
4
2
0
9
A
-2
3
C
8
2
0
9
A
-2
2
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K