Fréttablaðið - 18.08.2018, Síða 28

Fréttablaðið - 18.08.2018, Síða 28
Hárlos getur hent okkur öll og orsökin er ekki alltaf þekkt en algengt er þó að hármissi megi rekja til veikinda, mikils álags, vandamála með skjaldkirtil, lyfjameðferða og barnsburðar. Einnig skiptir miklu máli hvernig við hugsum um hárið, t.d. hvernig það er þurrkað og greitt, hvort hitamótunartæki eru notuð og hvort það er litað. Góðu fréttirnar eru þó, að oftast getur hárið vaxið aftur og við tamið okkur betri hárumhirðu til að styðja við hár- vöxtinn,“ segir Karen Elva Smára- dóttir, markaðsstjóri hjá CU2 sem flytur inn Nanogen hárvörurnar. Heildstæð hárlína Nanogen hárvörurnar eru heild- stæð lína sem inniheldur virk efni sem örva hárvöxt og hjálpa okkur að halda hárinu heilbrigðu og fal- legu. Virkni varanna hefur verið vísindalega staðfest og formúlan er einkaleyfisvarin. Hárið hefur ákveðinn hár- vaxtarhring en um leið og eitt hár deyr byrjar annað að vaxa í þess stað. Nanogen formúlan virkar á þrjá vegu og hefur þannig áhrif á þennan vaxtarhring. Formúlan gefur hársekkjunum skilaboð um að örva hárvöxt þannig að: 1. Ný hár myndast hraðar og koma í stað deyjandi hára. 2. Hvert hár er lengur í vaxtarfasa sem þýðir að það lifir lengur og nær meiri sídd en ella. 3. Aukin kollagenframleiðsla við rót hársins minnkar hárlos með bættri festu við hársvörðinn. Það hefst allt með réttum hárþvotti „Það skiptir höfuðmáli að þvo hárið ekki of oft til að strípa það ekki af sínum náttúrulegu olíum. Það ætti að nægja að þvo hárið á tveggja til þriggja daga fresti, sama hvernig hártegundin er. Þó þarf að hafa í huga að litað eða mikið efna- meðhöndlað hár þarf lengri tíma milli þvotta. Ef þú ert í vandræðum með að bíða svo lengi er gott að nota þurrsjampó síðasta daginn fyrir þvott,“ upplýsir Karen. Nanogen hárþykkingarsjampó inniheldur virk efni sem örva hár- vöxt eins og t.d. salisílsýru, beta- glucan og pea sprout. Sjampóið gefur einnig einstaka lyftingu strax eftir fyrsta þvott og fjarlægir á áhrifaríkan hátt óhreinindi sem hafa safnast upp í hársverðinum. Það inniheldur hvorki súlföt, sílí- kon né alkóhól. Þegar þú þværð hárið skaltu bleyta það vel með volgu vatni en of heitt vatn getur haft skaðleg áhrif á bæði hár og hársvörð. Þegar hárið er orðið vel blautt skaltu nudda sjampói varlega í hárið og einbeittu þér að rótum þess. Gott er að taka smá tíma í að nudda hár- svörðinn til örva blóðflæðið. Aukið blóðflæði til hársekkjanna þýðir meira af súrefni og næringu til að hjálpa hárinu að vaxa og styrkjast. Eitt af lykilatriðum í hárþvotti er að þvo hárið með sjampói tvisvar í hvert skipti, fyrra skiptið er til þess að þvo burt leifar af hármótunar- efnum og öðrum óhreinindum úr hárinu og seinna skiptið er til að hreinsa hárið sjálft. Ekki gleyma næringunni Eftir hárþvott er borin góð raka- gefandi hárnæring í hárið en konur með fíngert og/eða þunnt hár sleppa gjarnan þessu skrefi til að forðast að þyngja hárið. Með því móti fær hárið ekki þá næringu og raka sem það þarf og getur orðið rafmagnað og viðkvæmt fyrir flóka og sliti. Í stað þess að sleppa hár- næringunni er betra að leita eftir næringu sem er sérstaklega ætluð fíngerðu hári og er merkt sem þykkjandi eða lyftandi. Til að gefa hárinu auka ást og tryggja að það fái nægan raka og næringu er gott að nota djúpnær- ingu einu sinni í viku en hún er notuð eftir sjampó og fyrir hárnær- ingu. Eftir hárþvottinn er gott að skola hárið með köldu vatni til að loka inni allan raka og næringu. Hámarkaðu árangurinn Hárvaxtarhetjan í Nanogen línunni, Nanogen Growth Serum, inniheldur mesta magn hárvaxtar- þátta sem í boði eru og blöndu peptíða og þykknis. Þú berð einfaldlega 1 ml af blöndunni handahófskennt í þurran hársvörð einu sinni á dag. Ein flaska er mánaðarskammtur af þessu undraefni. Fáðu enn meiri fyllingu Ef þú vilt enn meiri lyftingu eftir hárþvott getur þú notað Nanogen rótarlyftisprey en auk þess að gefa meiri fyllingu í hárið inniheldur það keratín, niacinamide (b3-vítamín) og koffín sem virka saman til að örva hársekkina og gefa þeim um leið raka og styrk. Spreyið má nota bæði í blautt og þurrt hár en ef þú Nanogen hárvöruurnar innihalda virk efni sem örva hárvöxt og halda hárinu heilbrigðu. Virkni Nano­ gen línunnar hefur verið vísindalega staðfest. kýst að blása hárið þá þarftu ekki að hafa neinar áhyggjur því það veitir hárinu einnig vörn gegn hitanum. Á meðan hárið vex Það getur verið erfitt að bíða eftir nýju hárunum en meðan á Nanogen meðferðinni stendur getur þú notað Nanogen hár- trefjarnar. Hártrefjar eru smáar agnir sem stráð er yfir vandamála- svæði og bindast agnirnar við þitt eigið hár svo það virkar þykkara og meira um sig. Kynntu þér möguleika Nanogen vörulínunnar á næsta sölustað. Nanogen vörurnar fást í apótekum, Heimkaup.is og beautybox.is Formúla Nanogen er einkaleyfis­ varin. Hámarkaðu árangurinn með hárvaxtar­ hetjunni í Nanogen línunni, Nanogen Growth Serum. Nanogen hárþykkingars­ jampó inniheldur virk efni sem örva hárvöxtinn. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . ÁG ú S t 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 8 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 A -2 6 4 0 2 0 9 A -2 5 0 4 2 0 9 A -2 3 C 8 2 0 9 A -2 2 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 1 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.