Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 30

Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 30
Matgæðingurinn Ragnar Egilsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Mat- hallarinnar á Hlemmi og for- sprakki S.U.M.A.R (Samtök um matseld annarra ríkja) á Facebook, hefur lengi haft áhuga á matargerð. Hann segir fyrsta matarafrekið sitt hafa unnist um ellefu ára aldurinn þegar hann eldaði eggjaköku sem féll vel í kramið hjá foreldrum hans. „En ástríðan kviknaði fyrir alvöru þegar ég fluttist til Par- ísar eitt sumarið með þáverandi fransk-víetnamskri kærustu minni. Þrátt fyrir að ég hafi vissulega lært mikið um víetnamska og franska matseld þá féll ég kylliflatur fyrir marokkóskum veitingastöðum borgarinnar.“ Hann segir þá matargerð henta sér vel þar sem hann hafi voða lítinn áhuga á eldhúsgræjum. „Ég fíla mig best eins og seiðkarl að henda alls konar hráefni í kássu og horfa á eitthvað undravert gerast yfir nokkra klukkutíma. Því tek ég gott tagine, paella eða ratatouille fram yfir sous-vide-aða nautasteik hvenær sem er.“ Íran og Japan heilla Þessa dagana er Ragnar mikið að elda úr ýmsu grænmeti því honum finnst felast meiri áskorun í því. „Hvað matargerðarhefð varðar þá hef ég verið frekar fókusaður á Íran. Ef ég vil pásu frá saffrani og eggaldini þá finnst mér gott að elda eitthvað japanskt og minna mig á hvað hægt er að gera með þremur innihaldsefnum og japanskri þráhyggju fyrir nákvæmni.“ Þó er uppáhalds nautnamatur- inn hans ítalskt-amerískt spagettí og kjötbollur í rauðri sósu með fullt af parmesanosti. „Þetta er á engan hátt heilsusamlegt og mér líður eftir á eins og ég hafi gleypt lifandi höfrung en ég fæ vatn í munninn bara við að hugsa um réttinn.“ Hér gefur hann tvær girnilegar uppskriftir þar sem tilvalið er að nota nýtt íslenskt grænmeti sem er að detta í verslanir þessa dagana, t.d. kartöflur, blómkál og rófur. Aloo Gobi (Kartöflur og blómkál) Fyrir 3-4 Aloo Gobi er vegan karríréttur sem á uppruna sinn í Punjab í norður- hluta Indlands. „Í dag má þó finna þennan rétt á hverju götuhorni í Indlandi og Pakistan. Aðalstjörn- urnar eru tvær plöntur sem vaxa vel á Íslandi og þessi bragðmikla kássa yljar vel nú þegar haustið er að færa sig upp á skaftið. Þessi uppskrift er að mestu byggð á uppskrift úr Karríbiblíunni hennar Madhur Jaffrey. Kryddin ættu að fást í betri matvöruverslunum og sérverslunum á borð við Istanbul Market í Ármúla 44 í Reykjavík.“ 4-5 msk. jurtaolía 400 g íslenskar kartöflur, skornar í munnbita 1 blómkálshaus, skorinn í litla blómvendi 1 meðalstór gulur laukur, niður- skorinn 4 hvítlauksgeirar, marðir 1 msk. smátt saxað ferskt engifer 1 tsk. heil cumin-fræ 1 dós heilir niðursoðnir tómatar 2 tsk. kóríanderduft 1 tsk. gott chili-duft ½ tsk. túrmerik 2 grænir ferskir chili skornir eftir endilöngu (má nota rauða) Salt eftir smekk 1 tsk. garam masala Safi úr ½ límónu 3 msk. saxað ferskt kóríander Fílar sig best sem seiðkarl Ragnar Egilsson féll kylliflatur fyrir marokkóskri matargerð þegar hann bjó í París eitt sumarið. Um þessar mundir eldar hann mest úr grænmeti enda segir hann meiri áskorun felast í því. Ragnar Egilsson matgæðingur og fagurkeri er forsprakki hópsins S.U.M.A.R. (Samtök um matseld ann- arra ríkja) á Facebook. MYND/EYÞÓR Aloo Gobi er vegan karríréttur sem á uppruna sinn í norðurhluta Indlands. Hitið olíuna yfir meðalháum hita í stórri pönnu. Steikið kartöflu- bitana þar til þeir hafa tekið lit (um 4 mín.). Fjarlægið kartöflur af pönnu, hristið af olíuna og látið á disk með eldhúsrúllupappír. Gerið það sama með blómkálsvendina og leggið til hliðar. Bætið við örlítilli olíu ef þess er þörf og hellið niðurskorna lauknum á pönnuna og eldið í um 3 mín. Næst fer hvítlaukurinn, Mísóbrúnaðar rófur eru ofureinfaldur réttur sem er tilvalið að prófa. Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is engiferið og cum-infræin í pönn- una og hitað í u.þ.b. 2 mínútur. Svo tómatarnir, kóríanderduftið, chili-duftið og túrmerik og eldast í u.þ.b. 5 mínútur. Bætið kartöflunum og blómkálinu aftur á pönnuna ásamt fersku chili, salti og desilítra af vatni. Náið upp suðu og lækkið hita. Leyfið þessu að malla í um 15 mín. og hrærið reglulega. Það gæti þurft að bæta við örlitlu af vatni ef þetta er of þykkt. Takið kássuna af hellunni og bætið við garam masala, límónusafa og ferskum kóríander. Bragðast vel með naan-brauði og basmati-hrís- grjónum. Mísóbrúnaðar rófur Fyrir 2 sem léttur réttur eða sem meðlæti fyrir 4-5 Þessari uppskrift segist Ragnar hafa stolið samviskulaust af vef- síðu Bon Appétit. „Ég mæli mikið með þeim og þá sérstaklega YouTube-rásinni þar sem eldhús- stjórinn, sveimhuginn og sjarma- tröllið Brad Leone galdrar fram alls konar vitleysu. Þessi ofurein- falda uppskrift byggir á næpum en mér finnst rétturinn ekki síðri með ferskum gulrófum. Ég vil hafa rófurnar í minni kantinum því þær stóru eru oft trénaðar. Mísó- mauk má finna í asískum sérvöru- verslunum.“ 500 g litlar rófur, skornar í 2,5 cm þykka báta 2 msk. ljósgult mísó 2 msk. ósaltað smjör 1 tsk. sykur Örlítið af salti og pipar 2 msk. sítrónusafi Látið allt hráefnið nema sítrónu- safann saman á pönnu og hellið rétt nógu miklu vatni yfir til að þekja rófurnar. Náið upp suðu og eldið yfir meðalháum hita þar til vökvinn hefur gufað upp (um 15-20 mín.). Haldið áfram að elda rófurnar eftir að vökvinn hefur gufað upp og snúið þeim af og til þar til þær hafa brúnast vel á pönnunni (um 5 mín). Bætið við sítrónusafa og msk. af vatni og hrærið varlega til að þekja rófurnar í mísógljáanum. Bætið við salti og pipar ef þarf. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 512 5429 / jonivar@frettabladid.is HEILSURÆKT Veglegt sérblað Fréttablaðsins u heilsurækt kemur út 24. ágúst nk. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . áG ú S t 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 8 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 A -1 2 8 0 2 0 9 A -1 1 4 4 2 0 9 A -1 0 0 8 2 0 9 A -0 E C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 0 4 s _ 1 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.