Fréttablaðið - 18.08.2018, Blaðsíða 75
Frítt verður í alla strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu á Menn-ingarnótt og hvetur Strætó
alla sem ætla að eyða deginum eða
kvöldinu í miðbæ Reykjavíkur til
að nýta sér almenningssamgöngur.
Strætó verður með skutlu-
þjónustu frá Laugardalshöll um
Borgartún að Hlemmi og þaðan
beinustu leið að Hallgrímskirkju
og til baka. Skutluþjónustan er
góður valkostur fyrir þá sem ætla
á bílum í miðbæinn, en ökumenn
eru hvattir til að leggja kringum
Borgartún eða Laugardalshöll og
nýta sér strætóskutluna í miðbæ-
inn en þær aka frá klukkan 7.30 að
morgni til klukkan eitt um nóttina.
Frítt fyrir alla farþega.
Nánari upplýsingar á straeto.is
Börnum þykir fjör
að fara í strætó og til-
valið fyrir fjölskyldur að
fara með strætó í bæinn.
Víkingaklæði liggja frammi fyrir fólk.
Landnámssýningin í Aðal-stræti 16 opnar dyr sínar fyrir gestum á Menningarnótt frá
klukkan 9 til 22.
Á Landnámssýningunni er að
finna skemmtilegt búningahorn
þar sem hægt verður að klæða sig
upp eins og víkingur, bera vopn og
skildi og smella af mynd við flottan
bakgrunn. Einnig verður hægt að
tefla og leysa þrautir og smakka
á harðfiski með smjöri, á meðan
birgðir endast. Við inngang safns-
ins verða staddir eldsmiðir milli
klukkan 15 og 22 sem láta hamars-
höggin dynja þegar þeir móta járn
eftir gömlum aðferðum. Þeir svara
með glöðu geði spurningum gesta
um aðferðir eldsmíðinnar.
Milli klukkan 17 og 20 mun
Rúnar Ástvaldsson sitja inni á
sýningunni og tálga út afar fallega
fugla úr íslensku birki og verður
hægt að kaupa fuglana af Rúnari
þennan dag.
Á sýningunni er fjallað um land-
nám í Reykjavík og byggt er á forn-
leifarannsóknum sem fram hafa
farið í miðbænum. Miðpunktur
sýningarinnar er skálarúst frá
10. öld, sem fannst þegar grafið var
fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis
og Túngötu.
Ókeypis aðgangur og allir velkomn-
ir. Opnunartími 09.00-22.00.
Eldsmíði í
Aðalstræti 16
Það er frítt fyrir alla, konur, börn og kalla, í strætó á Menningarnótt. Mynd/stefán
Frítt í strætó á Menningarnótt
Allt of margir sneiða fram hjá rósa-
kálinu þegar kemur að meðlæti
með kjöti og fiski. Rósakál er þó
herramannsmatur sem hægt er að
matreiða á ótal vegu. Það er t.d. til-
valið að steikja það eða baka í ofni í
ýmsum skemmtilegum útfærslum.
Hér er ein góð uppskrift sem fer
vel með flestu kjötmeti auk þess að
standa vel sem aðalréttur.
Fyrir 6 manns
2 msk. smjör
250 g beikon
Hálft kg rósakál – takið af ystu
laufin og stilk
Örlítið af chili-flögum
salt og pipar
½ bolli rjómi
½ bolli ljós cheddar-ostur
½ bolli gott brauðrasp
Hitið ofninn í 200 gráður. Smyrjið
hæfilega stórt ofnfast fat með
smjöri. Sjóðið rósakálið í léttsöltu
vatni í 8-10 mín. eða þar til það er
mjúkt (ekki þó of mjúkt). Takið
rósakálið til hliðar, sigtið vatnið
af og saxið gróflega. Beikon steikt
á pönnu. Þerrið mestu fituna af og
saxið gróflega.
Setjið rósakálið og helminginn
af beikoninu í fatið og stráið smá
chili-flögum yfir ásamt salti og
pipar. Hellið rjómanum yfir og
setjið ostinn yfir ásamt afgang-
inum af beikoni og brauðraspinu.
Setjið nokkra smjörklípur efst.
Bakið í ofni í um 15 mín. eða þar til
fallega gulbrúnt á lit.
Gott meðlæti
Rósakál er herramannsmatur.
Opið alla daga til kl. 22.00
facebook.com/malogmenning
30% afsláttur
af skólavörum
laugardag og sunnudag
fÓLK KynnInGARBLAÐ 9 L AU G A R dAG U R 1 8 . ág ú s t 2 0 1 8
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
A
-1
2
8
0
2
0
9
A
-1
1
4
4
2
0
9
A
-1
0
0
8
2
0
9
A
-0
E
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K