Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 88
Valtýr og Egill eru ellefu ára og þeir
eru bekkjarfélagar í Laugarnesskóla.
Hafið þið verið vinir lengi?
Já, við kynntumst þegar við vorum 0
ára, þá áttum við heima í sama húsi
og mömmur okkar eru vinkonur.
Nú eiga drengirnir heima mun
lengra hvor frá öðrum en það aftr-
ar þeim ekki frá því að hittast oft.
Enda eiga báðir hjól og eru miklir
íþróttastrákar.
Egill: Fótbolti er aðaláhugamálið
okkar. Við erum í Þrótti.
Valtýr: Svo æfum við báðir körfu-
bolta. Ég var í fimleikum líka en
hætti í þeim.
Egill. Við höfum alveg prófað fleiri
íþróttir. Ég hef prófað frjálsar og
klifur og líka badminton. Ég held ég
hafi prófað flest nema skylmingar.“
Hafið þið gert eitthvað sniðugt í
sumarfríinu annað en að vera í
fótbolta?
Egill: Ég var í Barcelona í þrjár vikur.
Það var fínt en rosalega heitt. Ég
kom heim 9. ágúst.
Valtýr: Og ég fór til Danmerkur. Það
var líka heitt þar. Ég fór í Tívolí, það
var rosa gaman. Mig svimaði samt
svolítið og varð flökurt þegar ég fór
í fallturninn, ég er nefnilega pínu
lofthræddur. Ég var líka í Vatnaskógi
í sumar í eina viku. Það var gaman.
Egill: Já, við vorum saman í Vatna-
skógi fyrir einu ári. Svo höfum við
líka farið saman til útlanda með
fjölskyldum okkar. Þá vorum við á
Krít.
Eigið þið einhver dýr?
Valtýr: Ég á páfagauk. Hann heitir
Snjókorn og er blár með doppum.
Hann er skemmtilegur en bítur fast.
Einu sinni beit hann mig til blóðs.
Hann labbar stundum á hausnum
á mér og einu sinni skeit hann þar.
Egill: Já, ég á hund. Hann heitir
Trölli en er samt enginn risi. Við
áttum tvo hunda en það var bara
of mikið vesen. Ég sé oft um að gefa
Trölla en ég fer ekki eins oft með
hann út eins og ég fór með hinn
hundinn.
Hvað langar ykkur að verða þegar
þið verðið stórir?
Egill: Fótboltamaður og fótbolta-
þjálfari.
Valtýr: Fótboltamaður og vísinda-
maður.
Stundum með
páfagauk á
hausnum
Vinirnir Egill Harðarson og Valtýr Kjartansson
eru sprækir íþróttastrákar og eiga báðir dýr.
Valtýr og Egill nota hvert tækifæri sem þeir geta til að leika sér með bolta,
enda stefna báðir í fótboltann þegar þeir verða stórir. Fréttablaðið/Eyþór
Hvernig bækur þykja þér skemmtilegastar?
Grínbækur eins og til dæmis Kiddi klaufi.
Hvaða bók lastu síðast og um hvað var
hún? Lóa! Trúnaðarkver. Bókin er um Lóu
og lífið hennar. Það gerist mjög mikið. Lóa
er að hitta vinkonu sína og njósnar um strák
sem hún er skotin í. Mamma hennar er oft í
tölvuleikjum og er skotin í manni sem heitir
Ríkharður.
Hvaða bók ætlarðu að lesa næst? Rottu-
borgara.
Ef þú myndir skrifa bók, um hvað væri hún?
Hún væri eitthvert ævintýri, held ég.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppá-
haldi hjá þér? Disney-bækurnar voru mest í
uppáhaldi.
Ferðu oft á bókasafnið? Nei, ég á svo mikið
af bókum heima.
Hver eru þín helstu áhugamál? Ég er að
æfa dans og er á reiðnámskeiði í sumar. Svo
finnst mér mjög skemmtilegt í sveitinni. Mér
finnst gaman að teikna og leika með vinum
mínum.
Í hvaða skóla ertu? Melaskóla.
Lestrarhestur vikunnar Heiða Lilja 9 ára
Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið efna til sumarlesturs fyrir krakka. Verið velkomin í bóka-
safnið í ykkar hverfi, veljið eitt pappírsdýr sem þið finnið á safninu, skrifið nafn, símanúmer, aldur og nafn
á áhugaverðri bók sem þið hafið lesið og takið þannig þátt í lestrarleiknum. Í hverri viku fær einn heppinn
þátttakandi bók að gjöf og í lok sumarsins er veittur einn veglegur vinningur.
„Almáttugur,“ hrópaði
Róbert upp yfir sig.
„Við erum föst hérna
inni og munum aldrei
komast út,“ bætti hann
við skelfingu lostinn.
„Enginn mun nokkurn
tímann finna okkur og
við munum svelta í hel.“
„Svona nú Róbert minn,“
sagði Kata höstuglega.
„Þetta er nú bara
völundarhús og það er
alltaf einhver leið út úr
völundarhúsum.“
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
214
Getur
þú hjálpað
Róberti og K
ötu
að komast ú
t
úr völundar
-
húsinu?
?
?
?
1 8 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R36 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
krakkar
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
9
-F
E
C
0
2
0
9
9
-F
D
8
4
2
0
9
9
-F
C
4
8
2
0
9
9
-F
B
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K