Víkurfréttir - 30.04.1981, Blaðsíða 2
VÍKUR-fréttir
2 Fimmtudagur 30. apríl 1981____________
l^ftZ0?TEÉTTIC
Útgefandi: Vasaútgáfan
Ritstjóri og ábm.: Sigurjón Vikarsson, srfni 2968
Blaðamenn: Steingrímur Lilliendahl, sími 3216
Elías Jóhannsson, sími 2931
Emil Páll Jónsson, sími 2677
Ritstj. og augl. Hringbraut 96, Keflavík, sími 1760
Setning og prentun: GRÁGÁS HF., Keflavik
Loftpressa
Tek að mér
múrbrot,
fleygun
og borun fyrir
sprengingar.
Geri föst
verðtilboð. S|M,
Sigurjón Matthíasson
Brekkustíg 31 c - Y-Njarðvík
Prjónakonur
Nú kaupum við einungis lopapeysur, heilar og
hnepptar.
Móttaka að Bolafæti 11, Njarðvík, miðvikudagana
22. apríl, 6. og 20. maí kl. 13-15.
SÍSLENZKUR MARKAÐUR HF.
Keflavík
Gæsluvellir
Gæsluvellir Keflavíkurbæjar, við Miðtún, Ása-
braut og Baugholt, verða opnir á tímabilinu 4. maí
til 15. september, kl. 9-12 og 13-17.
Vellirnir verða opnir alla virka daga nema laugar-
daga.
Félagsmálafulltrúi Keflavíkurbæjar
Skrifstofuhúsnæði
óskast
Tryggingamiðstöðin hf. óskar eftir að taka á leigu
húsnæði á góðum stað í Keflavík, fyrir umboðs-
skrifstofu á Suðurnesjum.
Nánari upplýsingar gefur umboðsmaður, Halldór
Vilhjálmsson, Ásgarði 9, Keflavík, sími 2694.
Að gefnu tilefni
„Það er af sem áður var“.
Þannig hefst grein í Víkurfrétt-
um um „skrílslaeti í kirkjunni" í
Keflavík. Ekki veit ég hvaða para-
dísarreynslu kirkjugestur er aö
tala um, en eflaust gengur hon-
um gott eitt til og hyggur með
Hallgrími Péturssyni, að heimur-
inn versnandi fari, enda þótt við
vitum að unglingar hafi orðið til
vandræða frá því um 3000 f. Kr.
En þó fór svo að fjöðrin, sem
skrifunum olli (flautið utan kirkj-
unnar) varð að fimm hænum. Ax-
arskaft eins unglings varð að
ávirðingu margra unglinga sem
sóttu fermingarguðsþjónustu 5.
apríl e.h., og verða í mínum
augum ekki sekir fundnir.
Ekki ætla ég að mæla yfirsjón
unglingsins bót, en vil ekki hirta
hann um of. Ég vænti þess að-
eins að hann sé að taka út sinn
þroska og leggi af slík strákapör.
Mér finnst nokkuð stórt upp í sig
tekiö aö tala um skrílslæti í þessu
sambandi. Skríll er siðlaus múg-
ur, ruslaralýður, aga- og menn-
ingarsnautt fólk og skrílslæti því
siölaus múglæti.
Það er gefið í skyn í greininni
að „hálfgerður glundroði" hafi
orðið í kirkjunni. Ekki varð ég var
við hann. Það má vera að kirkju-
gestir séu ekki búnirað áttasig á
þeirri nýbreytni að sitja undir
lestri lexíu úr Gt. og pistli, en rísa
einungis úr sætum viö lestur
guðspjalls. En það stendur til
bóta og ekkert við unglinganaað
sakast í þeim efnum. Mistök geta
alla hent og slíkt setur enginn
fyrir sig.
Axarskaft unglingsins var
einnig undir lok athafnarinnar,
svo ekki hefur það haft áhrif á
athöfnina alla, eins og gefið er í
skyn. „Kirkjugestir stóðu upp er
þeir áttu aö setjast. Þarna átti aö
standa sitja, því annaö væri rök-
leysa og í raun ómögulegt. Því
má heldur ekki gleyma aö Guö
hefur góðan skilning á mistök-
um.
Hitt þykir mér miður, að í grein-
inni er borið á mig og fermingar-
börnin, aö þau hafi ekki fariö
með trúarjátninguna: „Ferming-
arbörnin voru ekki látin fara með
trúarjátninguna" (sic).
Þetta er fleipur, sem skylt erað
leiðrétta. Barn var skírt í upphafi
athafnar og þá fóru fermingar-
börnin með skírnarskipun og
trúarjátningu, eins og gert er ráð
fyrir.
Það var þessi athugasemd,
sem fékk mig til að velta því fyrir
mér í hvaða tilgangi grein kirkju-
gests er skrifuð. Það er hægt
leynt og Ijóst að leita að og lesa
inn í með það sem miður fer.
Síðan segir kirkjugestur: „Það
er illt til þess aö vita aö sóknar-
nefndin þurfi aö taka það til
bragðs að hafa gæslumenn til
þess aö passa skrílinn i sjálfu
guðshúsinu" (sic).
Þarna er skotiö yfir markið. Ég
myndi ekki syngja messur við
þannig kringumstæður, enda
sýnist mér, samkvæmt síðustu
fréttum, að gæslumenn auki
fremur vanda safnaðarfólks en
að leysa hann. Fermingardagur
er dagur unglinganna og það á
enginn rétt á að flekka hann. Ef
ég ætti að gefa fermingarbörn-
unum mínum vitnisburð í ár, þá
hafa þau vakiö hjá mér gleöi en
ekki vonbrigði og ég treysti því
að Guð muni leiða þau um rétta
vegu sakir nafns síns.
Hinu verðum við öll að gera
okkur grein fyrir, að kirkjan er
samfélag syndara, sem lifa af
fyrirgefningu Guðs.
Ég skal ekki draga í efa að
kirkjugesti hafi þótt umrætt atvik
leitt. Það fannst mér einnig og
svo er um fleiri. En kirkjugesti
fannst það ekki nógu leitt til þess
að þegja yfir því. Þar greinir okk-
ur á.
Það er víst borin von að ég fái
kirkjugest og ýmsa blaðamenn
inn á þaö sjónarmið. En heim-
urinn verður seint frelsaður í
dagblöðum, og um síðir munum
við öll koma með leyndar og Ijós-
ar ávirðingar fram fyrir þann
Guð, sem einn getur fyrirgefið
þær.
Ólafur Oddur Jónsson
Keflavík:
Nýtt útgerðar-
fyrirtæki
stofnað
Nýlega var stofnaö nýtt fyrir-
tæki í Keflavík, sem ber nafniö
Stafnes hf., og er tilgangur fyrir-
tækisins útgerð fiskiskipa, fisk-
verkun, inn- og útflutningur, en
Stafnes hf. gerir nú þegar út eitt
skip, m.b. Ólaf Inga KE 34.
Stofnendur fyrirtækisins eru
Margeir Margeirsson, Ingibjörg
Reykdal, Pétur Jóhannsson,
Harpa Hansen, örn Einarsson
og Jóna Stígsdóttir, öll til heim-
ilis i Keflavík. Framkvæmda-
stjóri er Margeir Margeirsson.
Gott atvinnu-
ástand
eins og er
Nú loks hefur tekist að koma
öllu því fólki sem var á atvinnu-
leysisskrá í vetur ( atvinnu, en
horfur eru þó ekki alltof góðar
varöandi sumarið og þegar
skólakrakkarnir koma á vinnu-
markaðinn.
Eftireru þó áatvinnuleysisskrá
nokkrir aðilar sem eru með
skerta starfsorku og geta því ekki
unnið hvað sem er. Mjög er oröin
þörf á að koma upp vernduðum
vinnustað til aö þetta fólk geti
unniö einhver létt störf hluta úr
degi.