Víkurfréttir - 30.04.1981, Blaðsíða 5
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 30. apríl 1981 5
heilbrigðisþjónusta
ALDRAÐRA - Framh. af 22. sf&u
En ég hef orðið vör við að
sumir vita ekki um þessa mögu-
leika og er því brýnt að skipu-
leggja upplýsingar um alla þessa
Þætti, sem stuðla að lengri
heimaveru aldraðra.
Það er til, að aldraðir líti á slíka
aðstoð sem ölmusu, finnst þeir
vera komnir á framfæri annarra, -
„á sveitina". Ég held nú að hægt
sé að leiðrétta það sjónarmið.
Þessi aðstoð, heimilishjálpin og
heimahjúkrunin, er sjálfsögð
þjónusta við hina eldri, sem eru
búnir að skila sínu dagsverki og
hafa með því búið í haginn fyrir
þá yngri. Og vel að merkja, ódýr-
ari fyrir þjóðfélagið en dvöl á
stofnunum.
Ég ál ít ef þessi r þættir væru vel
athugaðir og uppbyggðir, mætti
brúa bilið milli heimilis og hjúkr-
unardeildar við sjúkrahúsið,
jafnvel þótt heilsugæslan verði
næsti áfangi.
En það þarf að hanna hjúkr-
unardeild með „notagildi númer
1" í huga. Til dæmis þarf aðmiða
salerni og sturtur viðþarfirfólks í
hjólastólum, en það hefur því
miður ekki verið gert nema að
nokkru leyti í þeim áfanga sem
enn er í smíðum. Salernisher-
bergið er t.d. svo lítið að ekki er
hægt að loka dyrunum ef stóll-
inn er inni. Hver heilvita maður
sér hve fráleitt þetta er, ef á að
stuðla að því að fólk sé sjálf-
bjarga. Sturtur eru hannaðar
þannig að sturtan er föst og
þannig staðsett að aðstoðar-
maður sjúklings þyrfti að vera í
baðfötum, annars verður hann
gegndrepa. Eitt enn vil ég nefna:
Svalir eru þannig að ekki er hægt
að renna hjólastól út á þær,
hæöarmunur er þar og þar að
auki þröskuldur. Svo er ekki
hægt að snúa hjólastól á svölun-
um.
Og það sorglega er, að starfs-
fólk sem ætti best að vita hvar
skórinn krepþir, hefur ekki verið
haft með í ráðum og fær engu
breytt. Mérfinnstað það hefðiátt
að hugsa meira um notagildiðog
láta stallana utan á byggingunni
eigasig. Sjúkrahúsfinnst mérað
eigi að miðast við notagildi og
þarfir þeirra sem inni eru, en ekki
vera eins konar minnisvarði um
arkitektinn (utan frá séð).
Við ættum að athuga allt vel og
gera síðan stórt átak í þágu
þeirra öldruðu - láta árið þeirra
verða ár athafna, en ekki bara
orða.
Bifreið fjarlægð
Skaöabóta
krafist
Á fundi bæjarstjórnar Kefla-
víkur 7. apríl sl. var.tekiðfyrir bréf
frá Bjarna Daníelssyni, Vatns-
nesvegi 28, þar sem hann fer
fram á skaðabætur vegna bif-
reiðar sem fjarlægð var af hreins-
unardeild bæjarins. Er málið nú í
athugun hjá lögmanni bæjarins.
Það má með sanni segja, að
hvert sveitar- og bæjarfélag hafi í
mörg horn að líta og forráða-
menn þeirra verði að meta og
vega hvað er brýnast hverju
sinni. Það hefur margt verið gert
á félagslegu sviði, sem ber að
þakka, bæöi í þágu ungra og
aldinna. Þeir yngri bera sig eftir
björginni og knýjaáum úrbætur,
en það gera öldruðu hjúkrunar-
þurfarnir ekki. Við eigum að sjá
sóma okkar í að hlúa að þeim og
sinna þeirra þörfum á eins full-
kominn og hagkvæman hátt og
mögulegt er.
Ef við sem starfsþrek höfum
leggjum málefninu lið, með orku
hugar og handa og liggjum ákki
á liði okkar, þá getum við lyft
Grettistaki.
Hugsið um þessi mál og látið
ykkar skoðanir í Ijós.
Lifið heil.
NÝTT HAPPDRÆTTISAR
m
ppdpÆ^'
m
AÐALVINNINGUR
IÐUDAVINNINGAR FERÐAVINNINGAR
Húseign að eigin vali
fyrir kr. 700.000.-.
Dregin út í 12. flokki.
9 íbúðavinningar á
150.000.- og 1 á
250.000.-.
300 ferðavinningar á
10 þúsund krónur
hver.
í FYRSTA FLOKKI
DÍLAVINNINGAR
SUMARDÚSTAÐUK
íbúðarvinningur á
kr. 250.000.-
Peugeot 505 á kr.
137.000.- 8 bílavinn-
ingar á kr. 30.000.-
25 utanferðir á kr.
10.000.-. Auk margra
húsbúnaöarvinninga
á 700 og 2000 kr.
Dregið verður 5. maí
100 bflavinningar á
30 og 50 þúsund —
þar af 2 valdir bílar:
Peugeot 505 í maí og
American Eagle í
desember.
Fullfrágenginn
sumarbústaður meö
öllum búnaöi aö
verömæti 350.000.-
dreginn út í júlí
Auk þess veröur fjöldi húsbúnaöarvinninga á kr. 700 - og
kr. 2.000.- hver. Endurnýjunarverö miöa kr. 25.- ársmiöi kr. 300-
Sala á lausum miöum er hafin.
Miöi er möguleiki.
Búum öldruöum áhyggjulaust ævikvöld.
Umboð í Keflavík: Bókabúð Keflavíkur, sími 1102