Víkurfréttir - 30.04.1981, Blaðsíða 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 30. apríl 1981
7
Stofnun Garðyrkjufélags
Keflavíkur fyrirhuguð
Elns og kunnugt erfærist þaö
stööugt ( vöxt hér að fólk leggi
mikla rækt við garða sína og
lóðir, og á sl. ári, sem var ár trés-
ins, varð mikil aukning á því að
fólk setti niður ýmis konar tré og
runna í garða sína. Þá hefur ár-
lega verið veittar viðurkenningar
fyrir fallega garða og fagurt um-
hverfi, sem án efa hefur orðið
fólki nokkur hvatning.
N.k. sunnudag, 3. maí er fyrir-
hugaður stofnfundur Garðyrkiu-
félags Keflavíkur, sem haldinn
verður ( Framsóknarhúsinu
og hefst kl. 15. Á fundinn mætir
Jón Pálsson, form. Garðyrkjufé-
lags íslands, og mun hann sýna
myndir og gefa fólki leiðbein-
ingar.
Er allt áhugafólk um garðyrkju
eindregið hvatt til aö mæta á
fundinn.
Sigríður Marelsdóttir Hringbraut 97 í Keflavík, er fyrir löngu farin að
nostra við garðinn sinn, sem aðallega er byggður uþþ af fjölærum
plöntum. Var hann kjörinn fegursti blómagarðurinn á sl. ári. Hér
krýpur Sigríður við túlípana, sem sprakk út 5. apríl sl.
Þessir tveir drengir, Halldór Grétar Guðmundsson og Hallgrímur Gísli
Færseth, héldu hlutaveltu nýlega að Hringbreut 66 í Keflavík, og var
ágóðanum, 400 kr., varið til stuðnings Þroskahjálpar á Suöurnesjum.
Þessir drengir úr Njarðvík héldu diskótek í Stapa til stuðnings Sjálfs-
bjargar. Ágóðinn varð 670 kr. F.v.rTrausti MárTraustason.Ásmundur
örn Valgeirsson, Siguröur H. Ólafsson, Kristján Jóhannsson.
Sigurvegarar úr yngri og eldri flokki, Guðmundur og Ákl
SKÁK:
Unglingamót Keflavíkur ’81
Unglingamóti Keflavíkurískák
er nýlokið. Keppt var í eldri og
yngri flokki. Helstu úrslit urðu
þessi:
Eldri flokkur:
1. GuðmundurSigurjónss. 10v.
2. Pálmar A. Gíslason 9 v.
3. Magnús Guðfinnsson 8 v.
Yngri flokkur:
1. Áki Pétur Gíslason 11 V.
2. Benedikt Oddsson 9 v.
3. Siguringi Sigurjónss. 8 v.
Verðlaunahafar I unglingamótinu
DANSLEIKUR
í Samkomuhúsinu, Garði
1. maí
frá kl. 10 - 2.
Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar.
Mætið öll í Garðinn. - Styrkið gott málefni.
Björgunarsveitin Ægir