Víkurfréttir - 30.04.1981, Blaðsíða 12
12 Fimmtudagur 30. apríl 1981
VÍKUR-fréttir
Sparisjóðurinn
í Keflavík
sendir öllum launþegum
á Suðurnesjum
hamingjuóskir f tilefni
hátíðisdags verkalýðsins,
1. mai.
Sendum starfsmönnum okkar
og öðrum launþegum
á Suðurnesjum
hamingjuóskir á baráttudegi
verkalýðsins, 1. maí.
Skipaafgreiðsla
Suðurnesja
Útvegsbanki fsiands
Hafnargötu 60 - Keflavík
sendir öllum launþegum
á Suðurnesjum
árnaðaróskir í tilefni
baráttudags verkalýðsins,
1. maí.
„Rétt svo að
endar nái saman“
Fyrst lögðum við leið okkar
niðurað höfn. Þarhittum viðfyrir
þá Helga G. Steinarsson, Guð-
mund Ola Reynisson og Kristján
Hringsson. Til aö byrja með voru
þeir spuröir hvernig launin
entust.
Þeir töldu að þau entust, að
minnsta kosti næðu endar
saman. Sögðust þeir líka vinna
mikið. Hins vegar bentu þeir á,
að þeir hefðu ekki tekjutrygg-
ingu, töldu þaö ekki skipta veru-
legu máli þar sem vinna væri
næg. Tekjur væru misjafnar eftir
því við hvað væri verið að vinna.
Þeir töldu að verðhækkanir
væru miklar. Slíkt rýrði náttúr-
lega kaupið. Benti einn þeirrafé-
laga á að hann væri að kaupa
íbúð og það væri á mörkunum að
endar næðu saman. Þannig hald-
ast í hendur mikil vinna annars
vegar og veröhækkanir og vaxta-
greiðslur hins vegar. Á milli
þessara þátta standa launin sem
rýrna stöðugt.
Þeir sögðust ekki sækja fundi í
verkalýðsfélaginu nemaeitthvert
mál væri til umræðu, sem snerti
höfnina sérstaklega. Sögðu jafn-
framt að sama gilti um verkalýðs-
félög og önnur félög, það
stæði sig ekki vel. Sögðu þeir að
aldrei gerðist neitt nema menn
þrýstu á. Það hefði stundum
gerst hjá þeim, en ennþá væri
margt sem mætti bæta. Til
dæmis vildu þeir fá bætur varð-
andi einstakar tegundir vinnu.
Nú, og svo myndu þeir náttúr-
íega aldrei slá hendinni ámóti al-
mennri launahækkun. Einn
þeirra félaga taldi verkalýðs-
hreyfinguna vera „mafíu allt í
gegn“.
Að lokum voru þeir spurðir
hvaöa merkingu þeir leggöu í 1.
maí. Umfram það að vera kær-
kominn frídagur töldu þeir að
dagurinn væri nauðsynlegur til
að minna á kjarabaráttuna.
Helgi G. Steinarsson, Guðmundur Ó. Reynlsson, Krlstján Hringsson
Óskum starfsfólki okkar
og samtökum þeirra
tii hamingju meö
baráttudag
verkalýðsins, 1. maí.
Keflavíkurverktakar