Víkurfréttir - 30.04.1981, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 30. apríl 1981
VÍKUR-fréttir
Skrifstofustarf
Karl eða kona óskast nú þegartil starfa á skrifstofu
Miðneshrepps, Sandgerði.
Umsækjandi þarf að hafa verslunarskóla- eða hlið-
stæða menntun, auk reynslu í skrifstofustörfum.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 7. maí n.k.
Sveitarstjóri Miðneshrepps
Tjarnargötu 4, Sandgerði
KEFLAVfK
Utsvör
Aðstöðugjöld
Fjórði gjalddagi fyrirframgreiðslu útsvara og að-
stöðugjalda er 1. maí n.k.
Gerið skil á gjalddögum og forðist þannig dráttar-
vexti og önnur óþægindi.
Innheimta Keflavíkurbæjar
Orlofshús VKFKN
Dvalarleyfi
Frá og með mánudeginum 4. maí n.k. verða af-
greidd dvalarleyfi í orlofshúsum Verkakvenna-
félags Keflavíkur og Njarðvíkur, sem eru á eftir-
töldum stöðum:
1 hús að ölfusborgum í Hveragerði
1 hús að Húsafelli í Borgarfirði
Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár í orlofshúsunum á
tímabilinu frá 2. maí til 15. september, sitja fyrir
dvalarleyfum til 8. maí n.k. Leiga verður kr. 400.00
á viku og greiðist við úthlutun.
Dvalarleyfin verða afgreidd á skrifstofu VKFKN að
Hafnargötu 80, Keflavík.
Úthlutað verður eftir þeirri röð sem umsóknir ber-
ast.
Ekki verður tekið á móti umsóknum bréflega eða
símleiðis.
Verkakvennafélag Keflavíkur
og Njarðvíkur
Rafveita Njarövíkur:
Strengjalagnir í Seyluhverfi fjár-
frekustu framkvæmdirnar 1981
Á fundi rafveitunefndar NjarfS-
víkur 26. febr. sl. skýrði rafveitu-
stjóri frá því að spennistöð í Sjö-
stjörnunni, sem er 500 kva, væri
orðin yfirlestuð og nauðsyn bæri
til að setja nýjan spenni, 800 kva,
sem væri nægur fyrir svæðið,
jafnf ramt því að fjarlægja spenni-
stöðina við Bjarg.
í Innri-Njarövík þarf að taka
niður háspennuloftlínu milli Ak-
urbrautar og Njarðvíkurbrautar
og ganga frá tengingu á há-
spennustreng sem lagður var í
vetur. Áframhald verður á
strengjalögnum í Seyluhverfi
eftir því sem byggist. Eru þetta
fjárfrekustu framkvæmdirnar.
Annað sem liggur fyrir er
frágangur og tengingar á vænt-
anlegum byggingum við Borgar-
veg og Móaveg. Færa þarf há-
spennustreng úr væntanlegum
byggingarlóðum við Bolafót.
Með götulýsingu þarf að koma
varanlegri lýsinguáhafnarsvæð-
inu, svo og í þeim hverfum sem
byggjast.
Þá skýrði rafveitustjóri einnig
frá því, að starfsmenn rafveit-
unnar væru að smíða töflu og
búnað í spennistöð við Brekku-
stíg, en sé sú tafla og búnaður
aðkeyptur kostar hann 50.000 kr.
Efni í búnaðinn kostar um 10.000
kr., svo þar sparast stór upphæð,
þar sem starfsmenn rafveitunnar
vinna þetta á dauðum tíma.
Rætt var um framkvæmdir al-
mennt og auknar greiðslur fyrir
orkukauþ, sem skellt var á í nóv.
’80, sem ekki fást innheimtar
með hækkun á sölutaxta, og
mun valda rafveitunni miklum
erfiðleikum.
Skemmurnar tína tölunni
Nokkur hús eru rlsln i Seyluhverfi
Að undanförnu hefur Keflavík-
urbær unniðaðsamkomulagi við
eigendur skemmanna sem eru á
byggingarsvæði Heiðarbyggðar
IV, og hefur tekist samkomulag
við eigendur að 8 skemmum, ým-
ist um kaup á þeim eða að bær-
inn láti fjarlægja þær. Ástand
þessara skemma er mismunandi,
eöa allt frá því að vera að falli
komnar og upp í að vera i ágætu
standi, eins og t.d. þær skemm-
ur sem bærinn hefur nýlega
keypt af Síldarútvegsnefnd.
Nú er unnið að því að gera
svæði það sem skemmurnar
hafa staðið, byggingarhæft og er
reiknað með að því verði lokið
um mánaðamótin maí-júní n.k.,
en þarna mun rísa einbýlishúsa-
hverfi er gengið hefur undir nafn-
inu Heiðarbyggð IV.