Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.1981, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 30.04.1981, Blaðsíða 11
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 30. apríl 1981 11 í tilefni af 1. maí fór blaðiö á nokkra vinnustaöi og leitaði álits launþega á stöðu kjaramála. Til dæmis var fólk spurt hvernig laun entust, hvort það áliti að verðlag hækkaði meira en laun, hvernig það teldi verkalýðs- hreyfinguna standa sig í barátt- unni fyrir bættum kjörum o.s.frv. Greinilega kom í Ijós, að meðal launþega ríkir megn óánægja með laun. Allir voru viðmælendur sam- mála um, að útilokað sé að sjá fjölskyldum farborða með fjöru- tíu stunda vinnuviku. Mögulegt væri fyrir einhleypt fólk að skrimta á slíkum launum. Þeir sem væru með fjölskyldu væru einfaldlega dæmdir til aö stunda alla þá vinnu sem mögulega fengist, um kvöld og helgar. Oft á tíðum gildir þetta bæði um eigin- mann og eiginkonu. L/EG5TU Baráttudagurinn, 1. maí Ástæðurner fyrir þessu vinnu- álagi eru margar. Til dæmis örar verðhækkanir. Framfærslan verður æ dýrari með hverjum degi. Fólk sem stendur í húsnæðiskaupum horfir fram á óheyrilegar vaxtagreiðslur, auk venjulegra afborgana. Þegarsvo fólk hefur þrælað sér út til að standa straum af framfærslu fjöl- skyldunnar, heimtar ríkið hærri skatta vegna þess að fólk hefur mjakast upp fyrir meðaltekjur. hað eru sem sagt flestir sem teygja arma sína ofan í vasa laun- þega. Fólk er að vonum orðið langþreytt á þessum skollaleik og eins og einn viðmælandi benti á, ,,að ef ekki er hægt að tryggja að heimilin gangi, þá held ég að ekkert geti gengið." Þá eru ónefndar margs konar hliðarverkanir slíks vinnuálags. Þannig virðast frítímar margra launþega fara í það eitt að afla sér hvíldar. Margir þættir í eðli- legu fjölskyldulífi fara af til vill forgörðum. Slíkt málsnýrekkiað fólki sem eintaklingum. Það mál snýr m.a. að verkalýðshreyf- ingunni til lausnar. Vart er hægt að segja, að fólk hafi hrópað húrra fyrir fram- gangi verkalýðshreyfingarinnar. Flestum fannst forysta hennar vera í órafjarlægð. Sumir veltu því fyrir sér hvernig skrifstofu- menn í Reykjavík bæru skyn- bragð á hagsmuni þeirra, þar sem þeir hefðu aldrei svo mikiö sem komið á staðinn. Um hvað tala slíkir menn í samningum? Verðbólgupappíra og vísitölur? Það er ef til vill í lagi aö menn dundi sér við slíkt, hitt er hins vegar lágmarkskrafa, að skapa fólki grundvöll fyrir mannsæm- andi lífi. Það er því bláköls staðreynd, að kjör launþega eru langt fyrir neöan það mark sem talist getur mannsæmandi. Verkalýðshreyf- ingin er þögul þessa dagana og hófsöm, og það er áleitin spurn- ing, hvort forysta hennar tekur meira mið af beinum hagsmun- um launþega, eða grátkór at- vinnurekenda þegar gengið er til samninga. Einnig má spyrja hvort það sé launþegum til hags- bóta, að forystumenn verkalýðs- hreyfingarinnar gifti sig inn í pólitíska flokka og fái þingsæti í brúðargjöf. Það geta því væntanlega flest- ir tekið undir það sem fram kemur í viðtölunum hér í blaðinu. Það er ekki skipulagður grátkór með tugi sérfræðinga að baki sér, sem talar um þjóðhagslega hagkvæmni, brostnar efnahags- legar forsendur framleiðslunnar eða annað í þeim stíl, heldur ein- faldlega fólk, sem krefst mann- sæmandi launa fyrir vinnu sina. eps. Óskum verkafólki til hamingju með baráttudag verkalýðsins, 1. maí. Félagar! Fjölmennið í kröfugönguna og takið virkan þátt í hátíðarhöldum dagsins. Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis Sendum öllum launþegum á Suðurnesjum Árnaðaróskir í tilefni baráttudags verkalýðsins, 1. maí. Bæjarstjórn Keflavíkur

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.