Fréttablaðið - 20.09.2018, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 2 2 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 2 0 . s e p t e M b e r 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
skoðun Tryggvi Ásmundsson
skrifar um einkarekstur í heil-
brigðisþjónustu og arð. 24
sport Huginn ákvað að standa
með málstað sínum og mætti
ekki á auglýstan leikvöll. 18
Menning Nicolas Cage snýr
aftur í hinni blóðugu Mandy. 26
lÍFið Miðasala á tónlistarhá-
tíðina Sónar er hafin. 34
plús 2 sérblöð l Fólk
l viðhald bÍlsins
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
GLAMOUR KVÖLD
í Smáralind
Í KVÖLD KL. 17:00 - 21:00
einstaklingar
með heilabilun
eru á biðlista eftir
að komast inn á
hjúkrunarheimili.
Um það bil einn af
hverjum þremur
eldri borgurum
deyr af völdum
heilabilunar.
Biðlistar eru
álíka langir og
fyrir 20 árum.
Heilabilun er gríðar-lega algengt vanda-mál í eldri aldurs-hópum. Alzheimer er þar orsök 60 til 70 prósenta tilfella.
Sérfræðingar hafa miklar áhyggjur af
fjölgun einstaklinga með heilabilun
og horfa með örvæntingu til fram-
tíðarinnar. Stjórnvöld virðast hafa
sofið á verðinum undanfarin 20 ár.
Læknar með sérhæfða menntun
á sviði heilabilunar kalla eftir meira
samráði um stefnumótun.
Engin áætlun hefur verið mótuð
í málaflokknum ólíkt því sem gert
hefur verið hjá nágrannaþjóðum og
það vekur undrun að ekki séu enn
til tölur um fjölda einstaklinga sem
greindir eru með heilabilun á Íslandi.
Talið er að málaflokkurinn velti
um 50 milljörðum árlega. „Það eitt og
sér hlýtur að vera forgangsatriði fyrir
stjórnvöld að kortleggja betur,“ segir
Steinunn Þórðardóttir, sérfræðingur
í lyf- og öldrunarlækningum á Land-
spítala.
Alþjóðadagur Alzheimer er á
morgun, 21. september.
200
1/3
Ísland er mjög aftarlega á
merinni þegar kemur að
þjónustu við fólk með
heilabilun, segja sérfræð-
ingar. ➛ 22
lÍFið Stöð 2 hefur
hætt við að sýna
aðra seríu af
Kórum Íslands
og þarf því að
fylla í skarðið
með nýjum þáttum.
Lífið tók saman hug-
myndir að þáttum sem geta komið
í staðinn. – bb / sjá síðu 42
Hvað á Stöð 2
að gera næst?
saMFé l ag Nýtt
frumvarp galopn-
ar lög um manna-
nöfn. Tákn, tölur,
rúnir – allt kemur
til greina. Upptaka
ættarnafna verður
gefin frjáls. Frum-
varpið hlut góðar við-
tökur. – jóe / sjá síðu 2
Nafnalög opnuð
upp á gátt
al Þ i n g i Áform
um þjóðarsjóð
sem ætlað er að
mæta efnahags-
legum áföllum
eru í kynningu á vef
Stjórnarráðsins. Skiptar
skoðanir eru meðal þingmanna
stjórnarandstöðunnar. Frekar eigi
að greiða niður skuldir, láta heimilin
njóta sterkrar stöðu orkufyrirtækja
og sjávarútvegsfyrirtæki eigi líka að
leggja sitt af mörkum. – aá / sjá síðu 4
Sýni ráðdeild á
toppi hagsveiflu
Halldór
stJórnsÝsla Helga Jónsdóttir, fyrr-
verandi stjórnarmaður hjá Eftirlits-
stofnun EFTA, hefur verið ráðin for-
stjóri Orkuveitu Reykjavíkur (OR)
til tveggja mánaða. Helga tekur við
störfum næstkomandi mánudag.
Þetta var samþykkt samhljóða á
stjórnarfundi OR í gærkvöldi.
Áreitni innanhúss hjá OR hefur
verið í umræðunni undanfarna daga
en tveir stjórnendur hjá fyrirtækinu
hafa verið sakaðir um slíka háttsemi.
Þá var einn sendur í leyfi á dögunum
vegna gruns um kynferðisbrot áður
en hann hóf störf hjá Orku náttúr-
unnar, dótturfyrirtæki OR. Stjórnin
féllst á ósk Bjarna Bjarnasonar í gær
um að láta af störfum meðan gerð
væri úttekt á vanda OR. Bjarni held-
ur launum sínum, tæplega þremur
milljónum á mánuði þegar allt er
talið, í leyfinu.
„Við erum að glíma við vanda sem
finnst víða – áreitni á vinnustöðum.
Nú tel ég að forsendur hafi skapast
fyrir því hér hjá Orkuveitu Reykja-
víkur að trúverðug og óháð úttekt
verði gerð. Þannig geti starfsmenn
fyrirtækisins og eigendur þess treyst
því að staða mála hjá OR verði skýrð
og öll tækifæri til úrbóta nýtt,“ segir
Brynhildur Davíðsdóttir, stjórnarfor-
maður OR. Hin óháða úttekt verður
unnin af innri endurskoðun Reykja-
víkurborgar í samstarfi við óháðan
aðila.
Forstjóri OR á í krafti starfs síns
sæti í stjórnum fjögurra dótturfélaga
OR af fimm. Gylfi Magnússon, vara-
formaður stjórnar OR, segir að það
komi til greina að endurskoða skipu-
rit fyrirtækisins.
„Við erum fyrst og fremst að leita
að forstjórastaðgengli. Ég þori ekki
að lofa því að sá sem leysir af sem
forstjóri muni stíga inn í allar þessar
stjórnir því það eru auðvitað vara-
menn þar. Það er ákvörðun sem
verður að taka í samráði stjórnar og
þess sem kemur
inn í staðinn,“
segir Gylfi.
– jóe, smj / sjá
síðu 6
Tveggja mánaða
tíð Helgu í OR
hefst eftir helgi
Við erum að glíma
við vanda sem
finnst víða – áreitni á vinnu-
stöðum.
Brynhildur Davíðsdóttir
Helga
Jónsdóttir
2
0
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
-N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
F
-1
F
F
C
2
0
D
F
-1
E
C
0
2
0
D
F
-1
D
8
4
2
0
D
F
-1
C
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
1
9
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K