Fréttablaðið - 20.09.2018, Side 2
Veður
Norðan og norðvestan 10-18 m/s.
Þurrt og bjart veður sunnan- og
vestanlands, annars rigning eða
slydda og snjókoma norðan til á
landinu ofan 100-200 metra yfir
sjávarmáli. sjá síðu 30
Flugtúr í boði bandaríska hersins
Föruneyti utanríkisráðherra, hluta utanríkismálanefndar og þingmannanefndar NATO leit í gær um borð í tvær Grumman G2 Grayhound vélar
Bandaríkjahers. Vélarnar fluttu hópinn um borð í flugmóðurskipið USS Harry S. Truman. Ekki var greint frá ferðinni opinberlega fyrir fram. Vélin
lenti á Reykjavíkurflugvelli þrátt fyrir að borgin hafi bannað herflug um völlinn. Hér sést önnur vélin koma til baka. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Kynntu þér afsláttarþrep
Orkunnar á orkan.is.
NÝTT!
Nú eru allar 55
stöðvar Orkunnar
þínar stöðvar.
uMHVERFIsMáL Meirihluti lands
manna er fylgjandi því að settar
verði strangari reglur um notkun
flugelda og fjórðungur vill banna
almenna notkun þeirra með öllu.
Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar
rannsóknar vísindamanna við
Háskóla Íslands á viðhorfi almenn
ings til flugelda og notkunar þeirra.
Svifryksmengun á höfuðborgar
svæðinu var mæld síðustu tólf ára
mót. Niðurstöður sýna að dægur
gildi svifryks, sem er minna en tíu
míkrómetrar í þvermál, fór ítrekað
yfir heilsuverndarmörk í Reykjavík
og nágrenni.
Hæsta klukkustundargildi fíns
svifryks, sem er minna en 2,5 míkró
metrar í þvermál, mældist í Dal
smára í Kópavogi eða 3.000 míkró
grömm á rúmmetra. Er það talið
Evrópumet í mengun. – sar
Margir vilja
banna flugelda
ALÞINGI Fyrsta umræða um frum
varp til nýrra mannanafnalaga fór
fram á Alþingi í gær. Fari frumvarpið
óbreytt í gegnum þingið opnar það
heimildir til nafngiftar upp á gátt að
því undanskildu að skylt er að bera
að minnsta kosti eiginnafn og vera
kennt til foreldris eða foreldra.
Frumvarpið er lagt fram af þing
flokki Viðreisnar, Guðjóni S. Brjáns
syni, Samfylkingu, og Píratanum
Birni Leví Gunnarssyni. Það stefnir
að því að mannanafnanefnd skuli
lögð niður, nafn þarf ekki að taka
íslenska eignarfallsendingu og þá
er það ekki lengur skylda að nafn sé
í samræmi við íslenskt málkerfi. Þá
verður hverjum sem er heimilt að
taka upp það ættarnafn sem honum
sýnist.
Nær sambærilegt frumvarp var
flutt á síðasta þingi en náði ekki
fram að ganga. Nokkrar breytingar
voru gerðar á texta frumvarpsins
milli framlagninga og tóku þær
flestar mið af athugasemdum við
hið eldra. Meðal þess sem bent var
á þá var að það sé ekki skylda sam
kvæmt því að nafn einstaklings sé
ritað með latneska stafrófinu. Með
öðrum orðum þá er opnað á þann
möguleika að nafn samanstandi af
grísku eða kyrillísku letri í heild eða
að hluta og hið sama gildir um tölu
stafi, rúnir eða ýmis tákn.
„Í raun og veru leggur frumvarpið
engar skorður við nafngiftinni sem
slíkri. Í sjálfu sér var það með ráðum
gert að opna þetta upp á gátt en fela
allsherjar og menntamálanefnd að
meta hvort ástæða væri til að nafn
þyrfti að vera ritanlegt með latnesku
letri,“ segir Þorsteinn Víglundsson,
þingmaður Viðreisnar og fyrsti
flutningsmaður málsins.
Í gegnum tíðina hefur verið rætt
um hvort ættarnöfn skuli leyfð eður
ei. Tillagan leyfir upptöku nýrra
ættar nafna og gott betur. Sam
kvæmt frumvarpinu verður ein
staklingi mögulegt að taka upp það
ættarnafn er honum sýnist óháð því
hvort það hafi verið eyrnamerkt
annarri ætt hingað til.
„Ættarnöfn njóta engrar sér
stakrar verndar samkvæmt frum
varpinu. Það er samkvæmt erlendri
fyrirmynd en þar er fjöldinn allur
af óskyldum einstaklingum með
sama ættarnafn. Ég sé ekki ástæðu
til þess að einhver eignarréttur sé á
nöfnum,“ segir Þorsteinn.
Frumvarpið hlaut góðar undir
tektir meðal þeirra þingmanna
sem þátt tóku í umræðum að Sjálf
stæðismanninum Brynjari Níelssyni
undanskildum.
joli@frettabladid.is
Nafnafrumvarp opnar
á tákn, tölur og rúnir
Nýtt frumvarp til mannanafnalaga setur þau skilyrði ein að einstaklingur beri
minnst eiginnafn og kenninafn. Upptaka ættarnafna verði gefin algjörlega frjáls.
31n4r M4rkú5
Ðoarhgpeaorghoarpgoer Σναεφριδυρ
Гуюмундур A1
Hér er nokkur myndabankabörn og möguleg nöfn samkvæmt frumvarpinu.
A2
FjÖLMIðLAR 365 miðlar hf., eigandi
Torgs ehf., útgefanda Fréttablaðs
ins, hefur fengið Kviku banka til að
kanna áhuga mögulegra kaupenda
á Torgi, vegna skilyrða sem Sam
keppniseftirlitið (SKE) setti við sölu
á eignum 365 til Sýnar. 365 á tæp
lega 11 prósenta hlut í Sýn. SKE setti
þau skilyrði að innan tiltekins tíma
myndi 365 þurfa að selja hlut sinn í
Torgi eða Sýn. 365 hagnaðist um 907
milljónir króna fyrir skatt 2017.
Í tilkynningu segir að engin
ákvörðun hafi verið tekin um hvort
selja eigi hlut 365 í Torgi eða í Sýn.
Hins vegar liggi fyrir að lengri tíma
taki að selja óskráða eign en skráða.
Því séu þessi skref tekin nú. Engar
breytingar verða á daglegum rekstri
Torgs eða Fréttablaðsins með þessu.
Torg standsetur nú nýjar höfuð
stöðvar sínar í miðborginni. – khn
Kanna sölu blaðsins vegna skilyrða
Nýjar höfuðstöðvar Torgs við Hafnartorg í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/EYþóR
2 0 . s E p t E M b E R 2 0 1 8 F I M M t u D A G u R2 F R é t t I R ∙ F R é t t A b L A ð I ð
2
0
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
D
F
-2
4
E
C
2
0
D
F
-2
3
B
0
2
0
D
F
-2
2
7
4
2
0
D
F
-2
1
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
1
9
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K