Fréttablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 26
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveg@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368 Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@ frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@ frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429, Ásdís hefur unnið sem flug-freyja í langan tíma, fyrst hjá Iceland Express og frá árinu 2016 hjá WOW air þar sem hún er fyrsta freyja. Starfinu fylgir tölu- vert álag, enda svefn hjá þessari starfsstétt afar óreglulegur, auk þess á hún tvö börn og unnusta, og útskrifaðist í vor með B.Sc.-gráðu í tölvunarfræði. Það er því nóg að gera en á sama tíma telur Ásdís mikilvægt að hugsa vel um bæði líkama og sál. „Í mínu starfi er mikilvægt að drekka mikið af vatni, hugsa vel um húðina og passa vel upp á svefninn. Þá finnst mér mikilvægt að huga vel að því hvað við látum ofan í okkur og að það sé sem hollast. Ég spái ómeðvitað í það að ég sé að fá næringu úr öllum fæðuhringnum yfir daginn, sérstaklega núna þar sem ég á von á barni,“ segir Ásdís en er þó ekki fyrir neinar öfgar. „Ég banna mér ekki neitt ef mig langar virkilega í það. Ég hugsa frekar um að allt sé gott í hófi.“ Finnur mikinn mun á húð og nöglum Ásdís er hrifin af vörunum frá Feel Iceland og notar til dæmis Amino Collagen duftið töluvert þegar hún er heima við. „Ég set það í boozt, djús, hafragraut og meira að segja í kaffibollann minn. Þegar ég er að fljúga nota ég hins vegar Age Rewind hylkin því það er einfald- lega auðveldara að stinga þeim í töskuna og minni fyrirhöfn í því.“ Fiskur er í miklu uppáhaldi hjá Ásdísi enda eru hún frá Ísafirði þar sem fiskur var á boðstólum allt upp í fjórum sinnum í viku. „Ég borða enn þann dag í dag mikinn fisk enda líður mér alltaf vel þegar ég borða hann. Hann er svo léttur og góður í magann. Ein af ástæðum þess að ég er hrifin af vörunum frá Feel Iceland er einmitt af því að þær eru unnar úr íslenskum þorski. Kollagen er eitt helsta uppbygg- ingarprótein líkamans og hefur mjög góð áhrif á hár, húð, neglur og liði. Eftir að ég byrjaði að taka inn duftið fór ég að finna mikinn mun á húð og nöglum. Ég las grein fyrir nokkrum árum um kollagen og þar kom fram að það byrjar að draga verulega úr framleiðslu þess í líkamanum við 25 ára aldur. Eftir að ég las þessa grein langaði mig að byrja að taka þetta inn. Ég varð mjög ánægð þegar byrjað var að bjóða upp á þessar íslensku hágæða vörur frá Feel Iceland.“ Æfir í stoppi í útlöndum Ásdís reynir að stunda reglulega hreyfingu, þá einna helst hlaup og styrktaræfingar með og án lóða auk þess sem hún hefur gaman af því að synda. „Þetta kemur í tímabilum hjá mér. Stundum er ég mjög dugleg og mæti nánast á hverjum degi og á öðrum tímum fer ég kannski einu sinni til tvisvar í viku. Mér hefur alltaf fundist hreyfing hjálpa mér mikið við að yfirvinna þreytuna sem fylgir því að fljúga. Ég hef til dæmis haft það fyrir reglu þegar ég fer í stopp erlendis að fara alltaf í ræktina á hótelinu eða út að hlaupa. Ég verð mun orkumeiri fyrir vikið og það hjálpar mér í tímaruglinu.“ Passar vel upp á húðina „Þegar kemur að umhirðu húðarinnar finnst mér einna mikilvægast að hún sé þrifin bæði kvölds og morgna. Á kvöldin passa ég mig að fara aldrei að sofa með farða framan í mér. Sama hversu þreytt ég er, þá gef ég mér alltaf tíma í að taka farðann af. Þegar ég hef þrifið allt af finnst mér best að taka kaldan þvottapoka og strjúka vel yfir allt andlitið, það er svo hressandi og opnar húðina svolítið. Ég get heldur ekki farið að sofa áður en ég hef borið á mig eitthvert rakakrem. Undanfarið hef ég verið að nota serumið Be Kind Age Rewind frá Feel Iceland á kvöldin fyrir svefninn. Ég get stundum verið með svolítið þurra húð, sérstaklega ef ég hef verið að fljúga mikið, og finnst það virka vel á þurrkubletti. Ég hef meira að segja sett það á þurrkubletti á syni mínum og það virkaði vel,“ lýsir Ásdís. Hún byrjar morgnana alltaf á því að taka kaldan þvottapoka og strjúka vel yfir andlitið og setja svo á sig gott rakakrem. Hún áréttar að ekki sé nóg að bera bara á sig krem og spá svo ekkert í mataræðið enda hefur hún trú á því að það sem fari inn fyrir varirnar skipti miklu máli þegar kemur að fallegri húð. Setur sér raunhæf markmið „Ég reyni að vera dugleg að setja mér markmið, hvort sem það er í líkamsrækt, mataræði, upp- eldinu, fjármálum eða hverju sem er. Það er alltaf gaman að hafa að einhverju að stefna. Það sem mér finnst virka best fyrir mig er að setja mér markmið fyrir hverja viku í senn, ekki að hafa þau of löng og geta einbeitt mér að stuttum tímabilum í einu. Þó er auðvitað fínt að setja sér langtíma- markmið líka,“ segir Ásdís en bætir við að mikilvægt sé að hafa mark- miðin raunhæf en vera þó ekki að brjóta sig niður þó þau náist ekki. Ásdís á sér mörg áhugamál. „Númer eitt er alltaf að verja sem mestum tíma með fjölskyldunni, sameina áhugamál mín með henni og gera eitthvað skemmti- legt saman. Einnig finnst mér fátt eins notalegt og að prjóna og hef ég prjónað frá því að ég var 10 ára gömul. Ég prjónaði til dæmis skírnarkjólinn á strákinn minn. Á sumrin erum við dugleg að fara í Leirufjörð í Jökulfjörðum, þar sem ekkert rafmagn eða símasamband er. Það er uppáhaldsstaðurinn minn í öllum heiminum, og næ ég aldrei að slaka jafn mikið á og þegar ég er þar. Þar er mikið prjónað, spilað, borðaður góður matur, leikið sér í fallegri nátt- úrunni og síðast en ekki síst mikið hlegið.“ Framhald af forsíðu ➛ Ásdís Svava Hallgrímsdóttir er hér með föður sínum, Hallgrími Magnúsi, en þau tóku bæði þátt í tíu kílómetra hlaupinu í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra. Fjölskyldan fór til Tenerife og naut veðurblíðunnar. Hér er Ásdís á góðri stundu með börnum sínum, Sigfúsi Þór 4 ára og Emilíu Önnu 10 ára. Með ömmu sinni og afa, Addý og Dengsa, sem fengu góða þjónustu um borð. Amino Marine Collagen og Age Rewind frá Feel Iceland. Ásdís notar það fyrra heima við en hylkin finnst henni gott að nota þegar hún er að fljúga. Be Kind, Age Rewind er flott serum frá Feel Iceland sem Ásdísi finnst gott að bera á sig. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 2 0 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D F -6 5 1 C 2 0 D F -6 3 E 0 2 0 D F -6 2 A 4 2 0 D F -6 1 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 9 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.