Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.01.2018, Page 3

Læknablaðið - 01.01.2018, Page 3
Sannreynd virkni og öryggi hjá sjúklingum með sögu um heilablóðfall / TIAa,2 52 % sjúklinga í lykilrannsókninni ROCKET AF höfðu áður fengið heilablóðfall/TIA2 Virkni og öryggi Xarelto hjá þeim sjúklingum voru í fullu samræmi við heildarniðurstöður ROCKET AF2 VÖRN GEGN HEILABLÓÐFALLI HJÁ SJÚKLINGUM MEРGÁTTATIF ÁN LOKUSJÚKDÓMS1 Vörn gegn heilablóðfalli með einni töflu á dagb,1 a. TIA: transient ischaemic attack = skammvinnt blóðþurrðarkast. b. Xarelto 20 mg einu sinni á dag ef CrCl ≥ 50 ml/mín. Xarelto 15 mg einu sinni á dag ef CrCl er 15–49 ml/mín. Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto. 2. Hankey GJ, Patel MR, Stevens SR, et al. Rivaroxaban compared with warfarin in patients with atrial fibrillation and previous stroke or transient ischaemic attack. Lancet Neurol 2012;11:315–22. L. IS .M K T. 09 .2 01 7. 01 49 Se pt em be r 2 01 7 XARD0091 – Bilbo ▼ Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Læknafélag Reykjavíkur Ritstjórn Magnús Gottfreðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Elsa B. Valsdóttir Gerður Gröndal Hannes Hrafnkelsson Magnús Haraldsson Sigurbergur Kárason Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Esther Ingólfsdóttir esther@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1900 Prentun, bókband og pökkun Prenttækni ehf. Vesturvör 11 200 Kópavogi Áskrift 14.900,- m. vsk. Lausasala 1490,- m. vsk. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráð- ar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Cita- tion Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/ Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 Árið 1918 hófst með fádæma kuldakafla um land allt. Yfir 20 stiga frost í Reykjavík dag eftir dag og 30 stig fyrir norðan þar sem hafís lagðist að landi. Alla innfirði lagði og víða var gengt á ís þar sem sjaldan eða aldrei hafði frosið. Frostið sprengdi vatnsleiðslur og fréttir bárust af hrossum sem frusu í hel standandi í haga. Bátar lágu fastir við bryggju. Á sama tíma var vöruskortur sökum styrjaldarinnar og nauðþurftir seldar afarverði. Hún vakti því að vonum gleði í Blönduóslæknishéraði, einu 47 læknishéraða landsins, fréttin af innlyksa stórhvelum við Skagaströnd. Hvalirnir voru fastir við vök skammt innan kaupstaðarins en utan þeirrar fiskhelgi sem tilheyrði land- eiganda samkvæmt rekabálki Jónsbókar. Norðurland, tímarit sem var gefið út á Akureyri, greinir frá því að kaupmaðurinn í Höephnerverslun á Skaga- strönd, Carl Berndsen, hafi ásamt þrjátíu sjómönnum og öðrum kaupstaðarbúum unnið á tveimur hnúfubakstörf- um sem síðan voru dregnir upp á ísinn. Við drápið voru notuð lagvopn, skutull og annað, smíðuð af Brynjólfi Lýðssyni ábúanda á Ytri-Ey. Verslunarstjórinn Evald Hemmert tók myndina af hvalnum liggjandi á ísnum með Spákonufell í baksýn. Þaninn kviðurinn snýr upp og menn að undirbúa skurð því flensihnífur er kominn á loft. Fólk kom víða að framan úr sveitum til að kaupa spik og rengi og þó að hvalurinn hafi verið seldur afar ódýrt varð hlutur- inn yfir 300 krónur. Samtímaheimild segir annan hvalinn 40 álnir (25 metra) og hinn 50 (31 metra). Menn hafa getið sér þess til að hvor hvalur hafi gefið af sér nálægt 6000 krónum. Á sama tíma lá tillaga fyrir Alþingi um að hækka árslaun héraðslækna í 2500 krónur. Hnúfubakur (Megaptera novaeangliae) er skíðishvalur, (getur orðið 90 ára og 35 tonn) syndir fremur hægt og heldur sig nálægt landi. Þeir voru því auðveld bráð og fækkaði verulega með aukinni veiði. Hnúfubakur var alfriðaður árið 1955 og er í dag tiltölulega algengur og sýnilegur við Íslandsstrendur. Myndin er birt með leyfi Sigurðar Hrafns Þórólfssonar. Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir LÆKNAblaðið 2018/104 3 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL www.laeknabladid.is Skagaströnd, janúar 1918 Læknablaðið hefur fengið Önnu Þorbjörgu Þorgrímsdóttur til liðs við sig til að velja og skrifa um kápumyndir á 104. árgang blaðsins í tilefni 100 ára afmælis Læknafélags Íslands. Myndirnar tengjast þeim efnum sem verða í brennidepli afmælisgreina hvers tölublaðs. Mynd janúarblaðsins er tekin nánast á þeim degi þegar félagið var stofnað, 14. janúar frostaveturinn mikla 1918. Nefnd skipuð af stjórn Læknafélags Íslands að frumkvæði kvenna í læknastétt kom saman í fyrsta sinn í vikunni fyrir jól. Konur í lækna- stétt sem skrifað hafa undir #MeToo-yfirlýsingu á undanförnum vikum eru nær 1100 talsins. Í þeim hópi eru konur starfandi á Íslandi og erlendis auk læknanema bæði hér heima og erlendis. Nefndinni er ætlað að fara yfir siðareglur LÍ og gera tillögur um að móta þær og aðlaga að þeim kröfum sem nú er uppi um samskipti kynjanna á vinnustöðum og tryggja að siðareglurnar séu að- gengilegar fyrir félagsmenn til að vekja athygli á þessu mikilvægi málefni. Í nefndinni sitja Svanur Sigurbjörnsson lækn- ir og formaður siðfræðiráðs LÍ, Sunna Snædal læknir, Ólöf Sara Árnadóttir læknir (frá vinstri til hægri á myndinni), María Soffía Gottfreðsdóttir læknir stjórnarmaður í LÍ og Áslaug Heiða Páls- dóttir læknir en þær sitja einnig í siðfræðiráði LÍ. „Við erum að hittast í fyrsta sinn og eigum í sjálfu sér eftir að setja niður fyrir okkur hvernig við nálgumst þetta en segja má að stóra samheng- ið sé undir. Læknar vinna á mörgum stöðum og stofnunum þar sem aðstæður eru mismunandi frá einum stað til annars en sannarlega þurfa við- brögð við kynferðislegri áreitni að vera skýr og ákveðin. En það er ýmislegt fleira í samskiptum kynjanna innan hinna ýmsu stofnana sem þarf að skoða og vekja athygli á. Þar erum við að tala um samskipti lækna á milli en einnig samskipti lækna við annað heilbrigðisstarfsfólk,“ segja nefndar- menn. LÍ bregst við #MeToo áskorun kvenna í læknastétt

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.