Læknablaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 15
LÆKNAblaðið 2018/104 15
R A N N S Ó K N
Eins og sést í töflu VI voru um 64% starfsmanna leikskóla með
börn með bráðaofnæmi upplýstir um og þjálfaðir í því hvern-
ig skyldi bregðast við ofnæmiskasti barns. Hins vegar var rétt
rúmur helmingur leikskóla (55%) með börn með bráðaofnæmi
sem sagði alla starfsmenn leikskólans þekkja einkenni ofnæm-
iskasts. Í þeim leikskólum þar sem greint var frá því að ekki
allir starfsmenn þekktu einkenni ofnæmiskasts, var algengast
að leikskólastjóri, aðstoðarleikskólastjóri og starfsmenn deild-
ar barns með bráðaofnæmi þekktu einkennin. Um 46% leik-
skóla með börn með bráðaofnæmi voru með viðbragðsáætlun
um hvernig bregðast skyldi við ef barn fengi fæðu með ofnæm-
isvaka í. Hins vegar sögðu stjórnendur 12 leikskóla barna með
bráðaofnæmi (55%) leikskólann vera með viðbragðsáætlun þar
sem æft væri hvernig bregðast skuli við ofnæmiskasti barns.
Dæmi um viðbragðsáætlun þegar barn með bráðaofnæmi á í hlut:
• Viðbragðsáætlun hangir á viðkomandi deild/kaffistofu og/eða
eldhúsi með upplýsingum um barnið, einkenni ofnæmiskasts
og hvernig skuli bregðast við ef til ofnæmiskasts kemur.
• Allir starfsmenn kunna á adrenalínpennann og vita hvar hann
er geymdur. Hringt er í 112 og foreldra.
• Æft er hvernig gefa skuli pennann.
• Viðbragðsáætlun er skráð og hlutverk hvers og eins starfs-
manns er æft.
Í 14 (64%) leikskólum barna með bráðaofnæmi var greint frá
því að adrenalínpenninn væri athugaður reglulega og passað að
hafa hann aðgengilegan. Fimm leikskólar barna með bráðaofnæmi
sögðu hann eingöngu vera á ábyrgð foreldra en þrír leikskólar sem
voru með einstaklinga með bráðaofnæmi svöruðu „á ekki við“ við
þessari spurningu.
Tillögur að úrbótum – opin spurning til leikskólastjóranna
Allir leikskólar (n=22) sem voru með börn með bráðaofnæmi töldu
að gagnlegt væri að fá sérfræðing til að halda fræðslu um fæðuof-
næmi og fæðuóþol fyrir starfsmenn leikskólans. Í heildina töldu
86% leikskóla það vera gagnlegt en aðeins tveir leikskólar voru
með reglubundna fræðslu sem hjúkrunarfræðingur veitti um mál-
efni tengt fæðuofnæmi.
Fimmtán leikskólastjórar komu með tillögu að úrbótum og 6
þeirra nefndu að þeir vildu fá meira fé til matarkaupa fyrir börn
með fæðuofnæmi/-óþol þar sem fæði þeirra væri oft dýrara. Þá
nefndu 5 leikskólastjórar að gott væri að hafa gagnagrunn þar sem
til dæmis væri hægt að sækja uppskriftir án ofnæmis/-óþolsvaka,
fræðslu um ofnæmi/óþol og einn nefndi gátlista um hvernig best
væri að bregðast við þegar barn fengi ofnæmis-/óþolsvaka. Tveir
leikskólastjórar óskuðu eftir skýrari verklagsreglum um hversu
lengi skyldi leyfa foreldrum að prófa breytt mataræði án vottorðs,
hversu hart mætti ganga á eftir vottorðum og hvort vottorð mætti
vera frá hvaða lækni sem er eða einungis frá ofnæmislækni.
Að lokum voru leikskólastjórar spurðir að því hvort það væri
eitthvað sem þeir vildu koma á framfæri og tengdist meirihluti
athugasemdanna (n=7) ósk um að fá meiri og betri fræðslu og ráð-
gjöf.
Umræða
Rannsókn okkar sýndi að nær allir leikskólar í Reykjavík voru
með börn með fæðuofnæmi eða fæðuóþol og að um helmingur
þeirra var með börn með bráðaofnæmi. Algengi fæðuofnæmis og
fæðuóþols var 5%, byggt á læknisvottorðum. Þetta er aðeins hærra
algengi en fyrri rannsóknir sýna að sé á Norðurlöndunum en okk-
ar rannsókn byggir á að börnin hafi vottorð frá lækni um grein-
ingu á fæðuofnæmi en aðrar rannsóknir byggja á húðprófum,
blóðprófum og/eða tvíblindum þolprófum.8,19 Alþjóðleg rannsókn
sem kannaði algengi fæðuofnæmis með fæðuþolsprófi í 89 lönd-
um sýndi að algengi fæðuofnæmis meðal 0-5 ára barna var allt frá
1% í Tælandi til 10% í Ástralíu.20 Þegar fyrri rannsóknir eru bornar
saman við okkar þarf að hafa í huga að algengi fæðuofnæmis og
fæðuóþols er sjaldnast metið saman eins og gert var í þessari rann-
Tafla V. Viðbragðsáætlun á leikskóla og upplýstir og þjálfaðir starfsmenn við ofnæmiskasti eftir fjölda barna og starfsmanna á leikskóla..
Virkt ferli Upplýstir og þjálfaðir
N Já (%) p-gildi1 Já (%) p-gildi1
Fjöldi barna í leikskóla 0,56 0,38
Minni leikskóli (47-83 börn) 23 8 (35) 16 (70)
Stærri leikskóli (84-172 börn) 26 12 (46) 14 (54)
Fjöldi starfsmanna í leikskóla 0,77 0,24
Minni leikskóli (12-21 starfsmaður) 24 9 (38) 17 (71)
Stærri leikskóli (22-42 starfsmenn) 25 11 (44) 13 (52)
1Fishers Exact próf.
Tafla VI. Leikskólar með starfsfólk sem var upplýst og þjálfað í viðbrögðum við
ofnæmiskasti barns og með starfsfólk sem þekkti einkenni ofnæmiskasts eftir því
hvort bráðaofnæmi er til staðar í leikskólanum.
Upplýstir og
þjálfaðir
Þekkja einkenni
ofnæmiskasts
N Já (%) p-gildi1 Já (%) p-gildi1
0,78 0,78
Barn með bráðaofnæmi í
leikskóla*
22 14 (64) 12 (55)
Enginn með bráðaofnæmi í
leikskóla
27 16 (59) 13 (48)
1 Fishers Exact próf.
* Samkvæmt læknisvottorði.