Læknablaðið - 01.01.2018, Síða 31
LÆKNAblaðið 2018/104 31
Læknafélagið Eir er stofnað í Reykjavík 1943 í því skyni að
„stofna til erindaflutnings og umræðufunda um læknisfræði“
meðal annars. Þetta viðfangsefni verður höfuðinntak félagsins
í áranna rás. Látum Óskar Þórðarson hafa orðið í Læknablaðinu
1963: „Fyrsta árið vorum við á hrakningum með fundarstaði.
Flestir fundir voru haldnir það árið að Hótel Ritz á Reykjavíkur-
flugvelli, en þar voru aðstæður heldur lélegar. Einn fundur var
haldinn í Breiðfirðingabúð, sem einnig var kallað Ungverja-
land á þeim árum. En þar var illa vært sökum drykkjuskapar
og háreysti Ungverjanna, og þegar nokkrir þeirra komu inn í
fundarherbergið og báðu um orðið, þá varð að flytja fundinn í
annan enda á húsinu. Í árslok 1948 lagði dr. Helgi Tómasson Eir
inn á Klepp, og hefur félagið síðan verið þar til húsa með fundi
sína og unað vel hag sínum ...“7
En auðvitað skín sól Læknafélags Reykjavíkur (LR) og síðar
Læknafélags Íslands skærast þegar til fræðslu og símenntunar
lækna er litið. Árni Björnsson læknir tekur saman fróðlegt ágrip
um sögu LR á 90 ára afmæli þess 1999. Árni telur að LR hafi
frá upphafi verið helsti vettvangur viðhaldsmenntunar lækna
á Íslandi. Allt til 1979 voru fræðsluerindi fastir liðir á flestum
fundum LR en lögðust af með vaxandi fræðslustarfsemi innan
sjúkrahúsanna í Reykjavík. Árni segir: „Árið 1942 var reynt að
stofna til námskeiðs fyrir lækna á vegum LR. Þá var skipuð
þriggja manna nefnd til að sjá um undirbúning og framkvæmd
á læknanámskeiði í Reykjavík. Áhugi á námskeiðinu var þó ekki
meiri en svo að einungis tveir læknar mættu utan af landi en
enginn læknir í Reykjavík gaf sig fram. Námskeiðið féll því niður
og það var ekki fyrr en 1972 sem námskeiðs- og fræðslunefnd
var endurvakin.“8
Með þessu hófst ný og glæsileg starfsemi til vegs.
Allt orkar tvímælis þá gert er og sérstaklega á það við þegar
sagan er vegin og metin. Ekki dugar að horfa einungis til ársins
1972. Fyrsta haustnámskeið læknafélaganna var haldið 1961 með
tilstyrk heilbrigðisstjórnarinnar „fyrir praktiserandi lækna og
héraðslækna“.9
Haft er á orði að góðir hlutir gerist hægt. Má það til sanns
vegar færa þegar þróun fræðslustarfs læknafélaganna er skoðuð
frá þessum tíma. Á áttunda áratugnum komst á gott samstarf
og persónulegur kunningsskapur milli læknaforustunnar hér
heima og danskra lækna. Komu Danir hingað oftar en einu sinni
til námskeiðahalds og var þar fyrirliði Povl Riis, meltingarsér-
fræðingur, siðfræðingur og fjölfræðingur um læknisfræðileg
hugðarefni. Það má hiklaust kalla hann velgerðarmann íslenskra
lækna enda var hann síðar gerður að heiðursfélaga í Læknafélagi
Íslands.
Tilvitnuð grein Stefáns B. Matthíassonar, Tilurð Læknadaga,
í Læknablaðinu frá 2014 er ítarlegt yfirlit yfir þróun formsins og
fjármögnun frá því á 9. áratugnum fram á okkar daga.
Allir dagar lækna eru „læknadagar“. Skyldan til kennslu og
menntunar er tímalaus og án landamæra. Læknadagar Lækna-
félags Íslands verða vonandi aldrei „barn síns tíma“ og verða í
sífelldri þróun eins og raunin hefur orðið.
Heimildir
1. Durant W. Grikkland hið forna. Menningarsjóður, Reykjavík 1979: 19-20
2. Sæmundsson H. Munnlegar upplýsingar í des. 2017.
3. Sturluson S. Heimskringla, Helgafell, Reykjavík 1944: 537-8.
4. Blöndal JH, Jónsson V. Læknar á Íslandi. Ísafold, Reykjavík 1970: 9.
5. Jónsson V. Lækningar séra Þorkels Arngrímssonar. Helgafell, Reykjavík 1949: 115.
6. Hannesson G. Stéttarandinn. Læknablaðið 1935; 21: 11.
7. Þórðarson Ó. Minni Læknafélagsins Eirar. Læknablaðið 1963; 47: 13.
8. Björnsson Á. Stiklur úr sögu félagsins. Læknablaðið 1999; 85: 811-25.
9. Matthíasson SB. Tilurð Læknadaga. Læknablaðið 2014; 100: 34-7.
Margrét Aðalsteinsdóttir hjá Fræðslustofnun
óbilandi mótor Læknadaganna síðustu ár.
Gunnar Bjarni Ragnarsson og Jórunn Atla-
dóttir hafa verið formenn þar á bæ.
Daninn Povl Riis lagði sitt af mörkum til
fræðslustarfs íslenskra lækna.
Arna Guðmundsdóttir stýrði Læknadög-
um árin 2005-2013.