Læknablaðið - 01.01.2018, Side 42
Hinn 14. janúar 2018 fagna læknar þeim
merka áfanga að Læknafélag Íslands verð-
ur aldargamalt. Í pistli þessum verður
fjallað um fyrstu siðareglur lækna og lög
Læknafélags Íslands eins og um hvoru-
tveggja er fjallað á síðum Læknablaðsins.
Heimildir sýna að stofnun Læknafélags
Íslands átti sér allnokkurn aðdraganda.
Raunar benda heimildir til þess að árið
1898 hafi 9 læknar sem voru samankomnir
á læknafundi stofnað Hið íslenzka lækna-
félag. Lög voru samþykkt fyrir félagið og
reglur um bróðurlega samvinnu milli
lækna (Codex ethicus). Félagið starfaði þó
aldrei. Tímaritið Eir – Mánaðarrit handa al-
þýðu um heilbrigðismál, sem gefið var út um
tveggja ára skeið, 1899 og 1900, má rekja til
þessarar félagsstofnunar þó félagið hefði
ekkert með útgáfu þess að gera.1
Hinn 16. maí 1915 var að tilhlutan land-
læknis héraðslæknafundur á Austurlandi.
Þar voru meðal annars ræddar siðareglur
og ályktað: Fundurinn álítur rangt, að læknar
ráði sig í héruð, þar sem héraðslæknir er fyrir,
ef engar sakir eru sannaðar á hann í embætt-
isfærslu hans. Jafnframt skorar fundurinn á
Læknafélag Reykjavíkur að vinda bráðan bug
að því, að semja Codex ethicus fyrir íslenzka
lækna og senda þeim hann til samþyktar.2
Læknafélag Reykjavíkur kaus Guð-
mund Magnússon, Guðmund Hannesson
og Matthías Einarsson í nefnd til að gera
tillögur um siðareglur. Nefndin leitaði
meðal annars til Noregs með upplýsingar
og kynnti tillögur sínar á fundi í félaginu
8. nóvember 1915. Tillögurnar voru birtar
í nóvembertölublaði Læknablaðsins 1915 og
læknum gefnir þrír mánuðir til að koma
að athugasemdum.3 Nokkrar breytinga-
tillögur bárust. Þær voru kynntar læknum
í marstölublaði Læknablaðsins 1916 og eftir
því kallað að læknar sendu atkvæði sín
við breytingatillögurnar hið fyrsta.4
Vinnu við siðareglurnar lauk loks ári
síðar á fundi Læknafélags Reykjavíkur 13.
nóvember 1916 með því að upphaflegu til-
lögurnar voru samþykktar nánast óbreytt-
ar. Margt hafði orðið til tafa og einkum
það að svör frá læknum komu seint og
urðu fá.5
Fyrstu siðareglur lækna voru í 11 grein-
um og giltu fyrir alla lækna sem störfuðu
hér á landi. Tilgangur reglnanna var að
efla gott samkomulag og bróðurlega sam-
vinnu meðal lækna. Þær bönnuðu lækn-
um, í viðurvist sjúklings eða annarra en
læknis, að fara niðrandi orðum um stéttar-
bræður sína, jafnvel þótt ástæða kynni að
vera til slíks. Þær bönnuðu læknum að
nota óþarfa auglýsingar, blaðagreinar eða
aðrar ósæmilegar aðferðir í því skyni að
teygja sjúklinga til sín frá öðrum lækn-
um. Þá skyldu læknar forðast eftir megni
þakkarávörp og aðrar gyllingar og þá
máttu þeir ekki heldur gefa í skyn að þeir
þekktu betri lyf eða læknisaðferðir sem
öðrum læknum væru ekki kunnar.
Siðareglurnar geymdu nokkur ákvæði
um samskipti milli lækna vegna sjúk-
linga og virðast endurspegla ákveðna
samkeppni um sjúklinga. Þannig bönnuðu
þær læknum að bjóðast til að taka að
sér læknisstörf fyrir minna endurgjald
en aðrir tækju. Þær mæltu svo fyrir að
læknir, sem sóttur var til sjúklings, sem
reyndist undir höndum annars læknis,
gerði einungis það bráð nauðsynlega og
ekki skyldi hann vitja sjúklingsins oftar
nema fyrri lækni hefði verið tilkynnt að
sjúklingur óskaði að breyta um lækni eða
læknirinn hefði sagt skilið við sjúklinginn.
Ef sjúklingur, aðstandendur eða læknir
sjúklings vildu samráð við annan lækni
skyldi það gert og læknarnir bera ráð sín
saman í einrúmi. Sá læknir sem hafði
sjúklinginn til meðferðar skyldi síðan
fyrirskipa það sem þeir kæmu sér saman
um. Næðu þeir ekki samkomulagi skyldu
þeir saman, í viðurvist sjúklings eða
aðstandenda, setja fram skoðanir sínar.
Sjúklingurinn eða aðstandendur skyldu
síðan velja hvor læknirinn skyldi halda
lækningunni áfram. Ef læknirinn sem
hafði stundað sjúklinginn mætti ekki til
þessa samráðs skyldi aðfengni læknirinn
ráðleggja það sem honum virtist bera brýn
nauðsyn til en ekki vitja sjúklingsins oftar
nema eftir samkomulagi við lækninn sem
fyrst stundaði sjúklinginn.
Í siðareglunum eru athyglisverð
ákvæði um afleysingaþjónustu lækna.
Ef læknir gat ekki gegnt störfum sínum
Læknar eru hvattir til að koma ábendingum
um efni á framfæri við ritstjórn eða pistlahöfund.
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
Dogg@lis.is
Fyrstu siðareglur lækna og
fyrstu lög Læknafélags Íslands
L Ö G F R Æ Ð I 2 5 . P I S T I L L
42 LÆKNAblaðið 2018/104