Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.01.2018, Qupperneq 43

Læknablaðið - 01.01.2018, Qupperneq 43
LÆKNAblaðið 2018/104 43 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R vegna ferðalags, sem honum var ekki sérstaklega borgað fyrir, eða sjúkleika, skyldu nágrannalæknar, ef kringumstæð- ur leyfðu, gegna störfum hans, honum að kostnaðarlausu í einn mánuð en tvo ef um sjúkleika væri að ræða, nema við- komandi læknir auglýsti sjálfur að hann hefði fengið fyrir sig afleysingalæknir. Um greiðslu fór eftir því hvort sjúklingur væri í samlagi hjá hinum fasta lækni. Þá mátti ekki krefja sjúklinginn um gjald fyrir af- leysingaþjónustuna nema afleysingalækn- irinn hefði farið lengra frá heimili sínu en eina mílu eða ef um meiri háttar operation hefði verið að ræða. Afleysingalæknirinn mátti á hinn bóginn þiggja endurgjald, væri það boðið. Embættislausum læknum var heimilt að setjast að hvar sem vera skyldi. Þó mátti læknir, sem verið hafði aðstoðarlæknir fyrir annan eða staðgeng- ill, ekki setjast þar að fyrr en að minnsta kosti eitt ár var liðið frá því hann dvald- ist þar og forðast skyldi hann að rýra á nokkurn hátt álit þess læknis sem hann starfaði fyrir. Í siðareglunum eru einnig fyrirmæli um þjónustu lækna við aðra lækna, konur þeirra, ekkjur og ófullveðja börn. Þessir aðilar áttu rétt á ókeypis læknishjálp hjá hverjum þeim lækni sem þeir óskuðu. Þó mátti ekki krefjast ókeypis læknishjálpar ef læknir var sóttur um langan veg. Þá var lækni heimilt að þiggja endurgjald ef sá sem hjálpar naut krafðist þess, einkum ef fátækur læknir átti í hlut gagnvart efnuð- um. Ágreiningi um læknamál milli lækna skyldi skjóta til 5 manna gerðardóms sem í sátu einn kosinn af læknadeild, annar af Læknafélagi Reykjavíkur, landlæknir var sá þriðji og formaður dómsins. Loks skyldi hvor málsaðili tilnefna lækni, sem undir- skrifað hafði siðareglurnar, í gerðardóm- inn. Hvor málsaðili átti rétt á því að ryðja einum hinna föstu dómenda úr dómnum og tók þá varamaður sæti hans. Gerðar- dómur skyldi leggja dóm á mál sem hann fékk til meðferðar innan misseris frá því að málsaðilar höfðu kosið dómendur. Allir læknar sem höfðu undirritað siðareglurn- ar skyldu hlíta úrskurði gerðardómsins. Refsiákvæði var í siðareglunum þess efnis að læknar sem brytu gegn þeim skyldu hvorki njóta afleysingahlunninda né ókeypis læknisþjónustu fyrir sig og sitt fólk.5 Á fundi í Læknafélagi Reykjavíkur 5. mars 1917 var samþykkt tillaga að lögum fyrir Læknafélag Íslands, sem birtust í 3. tölublaði Læknablaðsins 1917. Læknar voru beðnir að senda athugasemdir sín- ar hið fyrsta.6 Ekki er að sjá að neinar athugasemdir hafi borist við drögin. Fyrstu lög Læknafélags Íslands voru stutt, 11 greinar. Um tilgang félagsins seg- ir í 2. gr.: Tilgangur félagsins er að efla hag og sóma íslenzkrar læknastéttar, samvinnu meðal lækna í heilbrigðismálum þjóðarinnar og glæða áhuga lækna fyrir öllu, er að starfi þeirra lýtur. Félagsmenn gátu orðið allir íslenskir læknar sem tekið höfðu fullkomið lækna- próf, hvort sem þeir væru búsettir hér á landi eða erlendis. Í stjórn félagsins skyldu vera þrír lækn- ar, búsettir í Reykjavík eða nágrenni. Þá skyldi kosinn einn varamaður. Formaður yrði sá sem flest atkvæði fengi, en að öðru leyti skipti stjórnin sjálf með sér verkum. Kosning skyldi fara fram í nóvember og gilda til tveggja ára, miðað við áramót. Þá skyldu læknar í Austur-, Vestur- og Norð- urlandsfjórðungi kjósa einn fjórðungs- fulltrúa fyrir sinn fjórðung, stjórninni til aðstoðar. Þessi fulltrúakosning skyldi fara fram um leið og stjórnarkosning. Stjórnin skyldi sjá um allar fram- kvæmdir félagsins og hafa vakandi auga með öllum þeim málum sem vörðuðu læknastéttina eða heilbrigði almennings. Hún skyldi skora á alla lækna er lyku prófi að gerast félagsmenn en hún hafði jafn- framt vald til að neita læknum um inn- töku í félagið og að vísa þeim úr því um stundarsakir, væri ástæða til. Aðalfund skyldi að forfallalausu halda á ári hverju í júní, júlí eða ágúst. Á fyrsta aðalfundi Læknafélags Ís- lands 1919 lagði Guðmundur Hannesson fyrsti formaður þess til að Ásgeir Blön- dal yrði gerður að heiðursfélaga. Hann hefði fyrstur lagt til að læknar hér á landi mynduðu félagsskap með sér. Tillagan var samþykkt samhljóða og var Ásgeir Blön- dal því fyrsti heiðursfélagi Læknafélags Íslands.7 Heimildir 1. Hannesson G. „Íslenzkt læknafélag.“ Læknablaðið 1915; 1: 3. 2. „Læknafundur á Eskifirði.“ Læknablaðið 1915; 1: 91-2. 3. Hannesson G. „Codex ethicus og íslenzkt læknafélag.“ Læknablaðið 1915; 1: 163-7. 4. Hannesson G. „Breytingatillögur við Codex ethicus.“ Læknablaðið 1916; 2: 39-40. 5. Hannesson G. „Codex ethicus.“ Læknablaðið 1916; 2: 166-9, 71. 6. „Læknafélag Íslands.“ Læknablaðið 1917; 3: 41-2. 7. „Fyrsti aðalfundur í Læknafélagi Íslands.“ Læknablaðið 1920; 5: 97-111. Andlátsfregn Magnús Snædal Rósbergsson, málfræðingurinn sem stýrði íðorðasafni lækna um 12 ára skeið, lést ekki alls fyrir löngu. Eins og fram kom í viðtali Læknablaðsins við Magnús árið 2014 um útgáfu ICD-10 var hann aðalstjóri þess verks. ICD-10 útgáfan er langviðamesta orðasafn yfir sjúkdóma og heilbrigðisvandamál sem gefið hefur verið út á íslensku til þessa. Verkið sem kom út 1995 og 1996 unnu auk ritstjórans Magnúsar, Jóhann Heiðar Jóhannsson og Örn Bjarnason. Útgáfan var þrekvirki á sínum tíma og gerð samkvæmt samningi milli heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis- ins og Orðabókarsjóðs læknafélaganna. Fróðskaparsetrið í Færeyjum og Turið Sigurðardóttir minntust Magnúsar með þessum orðum: Frá 1984 og í eini tólv ár var Magnús ritstjóri fyri yrkorðasavninum hjá læknafelagi Íslands. Har framdi hann munadygt og væl hepnað starv við at fáa til vega íslendsk orð og heiti á tí ovurstóra yrkismálsliga økinum, sum læknavísindini umboða. Kunnað varð javnan um úrslitini, orðagerð, nýggjyrði og týðingar, í íslendska Læknablaðnum. Hann skrivaði grein um hetta arbeiðið í Nordisk tidsskrift for fagsprog og terminologi nr. 2 1986. Viðtalið við Magnús: http://www.laeknabladid.is/tolublod/2014/01/nr/5046

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.