Læknablaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 41
LÆKNAblaðið 2018/104 157
Lagt hefur verið fram á Alþingi frum-
varp til laga um breytingu á almennum
hegningarlögum, nr. 19/1940 (bann við
umskurði drengja).1 Í frumvarpinu segir
að hver sem með líkamsárás veldur tjóni
á líkama eða heilsu barns eða konu með
því að fjarlægja kynfæri að hluta eða öllu
leyti skuli sæta fangelsi allt að 6 árum.
Í frumvarpinu felst að gildandi ákvæði
hvað þetta varðar eru rýmkuð því nú ná
þau einvörðungu til heilsu stúlkna eða
kvenna. Ákvæði þess efnis var samþykkt
árið 2005 með nýrri 218. gr. a í hegn-
ingarlögunum.
Frumvarpið hefur þegar vakið miklar
umræður og í ljós hefur komið að skiptar
skoðanir eru um efni þess. Hefur refsi-
næmi verknaðarins, allt að 6 ára fangelsi,
sætt nokkurri gagnrýni. Einnig hefur því
verið haldið fram að með ákvæðinu sé ráð-
ist að trúarbrögðum þar sem umskurður
drengja sé hluti af helgisiðum tiltekinna
trúfélaga.
Á fimmta hundrað íslenskir læknar
hafa lýst sig fylgjandi frumvarpinu í
yfirlýsingu sem nýlega var skýrt frá. Í
yfirlýsingu læknanna kemur fram að þó
málið hafi ýmsar hliðar sé það ekki flókið.
Allar aðgerðir, hversu tæknilega einfaldar
sem þær séu, hafi mögulega fylgikvilla.
Umskurður á ungbörnum gangi gegn
Genfar-yfirlýsingu lækna og samræmist
því síður grundvallarviðmiðum Hel-
skinki-yfirlýsingar lækna um réttinn til
sjálfsákvörðunar og upplýsts samþykkis.
Loks telja læknarnir í yfirlýsingu sinni að
umskurður drengja brjóti gegn Barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna og gangi gegn
Hippókratesareiðnum: „Primum non
nocere“ - Umfram allt ekki skaða.2
Um 1100 hjúkrunarfræðingar og ljós-
mæður hafa sömuleiðis lýst sig fylgjandi
frumvarpinu í yfirlýsingu sem birtist 26.
febrúar 2018. Í yfirlýsingu þeirra kemur
fram að umskurður án læknisfræðilegrar
ástæðu sé brot á réttindum allra barna og
samræmist ekki Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna. Umskurður af trúarástæðum
sé ónauðsynleg aðgerð sem hafi í för með
sér þjáningu, hættu á blóðmissi, sýkingu
og valdi óafturkræfum breytingum á lík-
ama barnsins. Hvers kyns limlestingar á
kynfærum kvenna hafi verið gerðar refsi-
verðar. Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður
vilja að drengjum verði með lögum tryggð
sama vernd og sömu réttindi.3
Skurðaðgerðir á kynfærum barna,
stúlkna, drengja og intersex-barna hafa
fengið vaxandi athygli á síðustu árum. Í
þeirri umræðu hefur verið bent á þver-
sögnina sem er í afstöðunni til aðgerð-
anna. Slíkar aðgerðir á stúlkum eru víðast
í hinum vestræna heimili bannaðar og litið
á þær sem kynbundið ofbeldi og ofbeldi
gegn börnum. Þessar aðgerðir á drengjum
eru á hinn bóginn víðast í hinum vestræna
heimili taldar sjálfsagðar og eðlilegar, nán-
ast hættulausar, þó vitað sé um tilvik þar
sem eitthvað fer úrskeiðis. Sumir ganga
svo langt að halda því fram að það sé
betra fyrir drengi að vera umskornir. Ekki
er heldur amast við aðgerðum á kynfær-
um intersex-barna til að gera útlit kynfæra
þeirra til samræmis við það kyn sem lík-
legra þykir að barnið tilheyri. Þeim fjölgar
því sem telja að skurðaðgerðir á kynfær-
um barna, stúlkna, drengja og intersex
barna eigi almennt að banna. Mismunandi
afstaða til þessara aðgerða eftir því hvort
barnið er stúlka, drengur eða intersex
barn verði sífellt erfiðara að réttlæta.4
Meðal þess sem fram hefur komið í
umræðunni er að foreldrar eigi að ráða
hvað þau láti gera við börn sín, enda séu
þau forráðamenn þeirra. Þessi fullyrðing
er rétt svo langt sem hún nær. Þetta
kemur skýrt fram bæði í lögræðislögum
og barnalögum. Í lögum um réttindi
sjúklinga eru í VI. kafla sérreglur um
sjúk börn. Þar kemur fram í 26. gr. að
foreldrar sem fara með forsjá barns skuli
veita samþykki fyrir nauðsynlegri með-
ferð barns yngra en 16 ára. Neiti foreldrar
sem fara með forsjá barns að samþykkja
nauðsynlega meðferð skal læknir eða
annar heilbrigðisstarfsmaður snúa sér til
barnaverndaryfirvalda samanber ákvæði
barnaverndarlaga. Vinnist ekki tími til
að leita liðsinnis barnaverndaryfirvalda
vegna lífsnauðsynlegrar bráðameðferðar
á sjúku barni er skylt að hafa heilbrigði
þess að leiðarljósi og grípa tafarlaust til
nauðsynlegrar meðferðar. Þetta þýðir
til dæmis að ef foreldrar barns neita að
samþykkja nauðsynlega blóðgjöf og ekki
vinnst tími til að leita til barnaverndaryf-
irvalda þá er skylt að gefa barninu blóð sé
það nauðsynlegt vegna meðferðar þess.
Andstaða foreldra við blóðgjöfina er þá
einfaldlega ekki virt.
Í áðurnefndu frumvarpi er rakið að um-
skurður drengja er iðulega framkvæmdur
án deyfingar eða með lítilli deyfingu
þannig að sársaukinn sé mikill. Aðgerð-
irnar eru oft framkvæmdar í heimahúsum
og ekki af læknum. Sýnist aðgerðin því
samrýmast illa þeim ákvæðum Barnasátt-
málans sem tryggja þeim rétt til að hafa
áhrif á eigið líf og fyrirmælum um að
tryggja börnum vernd gegn hefðum sem
eru skaðlegar heilbrigði þeirra.
Hver sem afdrif frumvarpsins verða er
ljóst að það hefur þegar skapað nauðsyn-
lega og mikilvæga umræðu um réttindi
barna og þann mismun sem nú er á
ákvæðum laga gagnvart umskurði stúlkna
annars vegar og drengja og intersex-barna
hins vegar.
Heimildir
1. Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegn-
ingarlögum, nr. 19/1940 (bann við umskurði drengja).
althingi.is/altext/148/s/0183.html – febrúar 2018.
2. #primumnonnocere. docs.google.com/document/d/1A1Dq-
URPVoThck3gSxeKSS9HVJn0hUJz5DMiackzi5RQ/edit og
mbl.is/frettir/innlent/2018/02/21/laeknar_anaegdir_med_
umskurdarfrumvarp/ – febrúar 2018.
3. frettabladid.is/frettir/1-101-hjukrunarfraeingur-og-ljosmo-
ir-gegn-umskuri-drengja – febrúar 2018.
4. Earp BD, Steinfeld R. „Gender and Genital Cutting: A New
paradigm. euromind.global/en/brian-d-earp-and-rebecca-
-steinfeld/ – febrúar 2018.
Læknar eru hvattir til að koma ábendingum
um efni á framfæri við ritstjórn eða pistlahöfund.
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
Dogg@lis.is
Nauðsynlegar og
ónauðsynlegar aðgerðir
á börnum
L Ö G F R Æ Ð I 2 6 . P I S T I L L