Læknablaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 20
breytu sem tók gildið „1“ fyrir íþróttakonur og „0“ fyrir óþjálf-
aðar konur (tafla VI). Í seinni greiningunni voru íþróttakonurnar
flokkaðar niður eftir íþróttum (tafla VII). Þá fannst að hlaup og
skokk voru með mestu áhrifin, þar á eftir handbolti og fótbolti og
loks CrossFit/BootCamp saman, en þessar íþróttir mældust allar
með tölfræðilega marktæk áhrif á að tengjast meiri líkum á því
að konur væru með þvagleka. Lyftingar og æfingatæki voru ekki
marktæk og ekki var unnt að kanna hinar íþróttirnar vegna of
fárra þátttakenda.
Umræða
Niðurstaðan fyrir meðalstyrk grindarbotnsvöðva óþjálfuðu
kvennanna, 43 ± 4 hPa, er í samræmi við væntingar um 42 hPa
sem byggðar voru á annarri rannsókn.19 Þetta efni hefur ekki
verið rannsakað mikið fyrir keppnisíþróttakonur og er það einn
af helstu styrkleikum þessarar rannsóknar. Hins vegar kom
það á óvart að það reyndist ekki marktækur munur á meðaltali
þrýstingsmælingar fyrir grindarbotnsvöðva íþróttakvenna og
óþjálfaðra kvenna. Það var hins vegar töluvert minna staðalfrá-
vik í styrk grindarbotnsvöðva íþróttakvennanna en hjá óþjálfuðu
konunum.
Það er viss veikleiki á rannsókninni hve úrtakið er lítið. Þó
skal nefnt að stærð úrtaksins var metin miðað við það að geta
metið 45% mun á styrk með marktækum hætti eins og skýrt er í
kaflanum um aðferðir. Þar sem styrktarmunurinn var svona lítill
reyndist hann ekki marktækur í þessari rannsókn. Með stærra úr-
taki er mögulegt að þessi litli munur mælist tölfræðilega marktæk-
ur. Í framtíðinni væri áhugavert að framkvæma viðameiri rann-
sókn með fleiri þátttakendum til þess að hægt sé að kanna áhrif
mismunandi grindarbotnsæfinga á styrk grindarbotnsvöðvanna
og tíðni þvagleka hjá íþróttakonum.
Ein erlend rannsókn hefur sýnt með segulómun að íþróttakon-
ur eru með stærri grindarbotnsvöðva en óþjálfaðar konur.18 Ekki
er þó vitað hvort stærri grindarbotnsvöðvar hafi meiri styrk en
ekki var gerð styrktarmæling á grindarbotnsvöðvum í þeirri rann-
sókn. Almennt er vitað að styrktarþjálfun stækkar (hypertrophy) og
styrkir beinagrindarvöðva líkamans.21 Erlendar rannsóknir hafa
hins vegar ekki sýnt fram á að íþróttakonur hafi sterkari grindar-
botnsvöðva en aðrar konur.22,23 Niðurstöður þessarar rannsóknar
sýna að íþróttaþjálfun þessara keppnisíþróttakvenna leiðir ekki
til marktæks meiri styrks grindarbotnsvöðva. Þetta bendir til þess
að grindarbotnsvöðvar þurfi sérstaka þjálfun sem nú vantar í æf-
ingar keppniskvenna.
Þar sem stór hluti íþróttakvennanna var með þvagleka, má
spyrja hvort styrkur grindarbotnsvöðva íþróttakvenna sé nægur
til að styðja við grindarholslíffæri í æfingum með miklu álagi og
ákefð. Rannsókn hefur sýnt að grindarbotnsvöðvar íþróttakvenna
þurfa að vera mikið sterkari en í óþjálfuðum konum til að geta
komið í veg fyrir þvagleka.1
Könnun rannsóknarinnar sýndi að íþróttakonurnar sem upp-
lifðu þvagleka gerðu það nær eingöngu þegar líkaminn var undir
miklu álagi í keppni eða við æfingar. Þar sem ekki var marktækur
munur á styrk milli íþróttakvennanna og óþjálfuðu kvennanna
er líklegt að óþjálfuðu konurnar myndu einnig upplifa áreynslu-
þvagleka ef þær myndu æfa af mikilli ákefð. Óþjálfuðu konurnar
sem voru með þvagleka nefndu að þetta gerðist helst þegar þeim
væri mjög mál að pissa og á leiðinni á salernið, og það er því óvíst
hvort orsökin er álag.
136 LÆKNAblaðið 2018/104
R A N N S Ó K N
Tafla V. Fjöldi kvenna með þvagleka, flokkaðar eftir íþrótt, fjöldi (hlutfall).
Íþrótt Fjöldi með þvagleka Fjöldi án þvagleka
Hlaup/skokk 3 (43,0) 4 (57,0)
CrossFit/Bootcamp 6 (54,5) 5 (45,5)
Lyftingar, æfingatæki 4 (50,0) 4 (50,0)
Handbolti, fótbolti 4 (66,7) 2 (33,3)
Tafla IV. Svör kvennanna um þvagleka og þekkingu á grindarbotni.
Íþróttakonur
(n=18)
Óþjálfaðar konur
(n=16)
Tíðni % Tíðni %
Upplifðu þvagleka 11 61,1 2 12,5
Upplifðu ekki þvagleka 7 38,9 14 87,5
Þekking á grindarbotnsvöðvum (gb)
Hugsa lítið um þá, veit lítið um þá 4 22,2 9 56,2
Hugsa stundum um þá, geri
gb-æfingar >2 í mán.
7 38,9 4 25
Hugsa reglulega um þá, geri
gb-æfingar ≥2 í mán.
6 33,3 3 18,8
Mjög meðvituð, geri gb-æfingar í
hverri viku
1 5,6 0 0
Tíðni þvagleka
Man það ekki 0 0 0 0
Við léttar daglegar athafnir 1 5,6 0 0
Á leiðinni á salerni 0 0 2 12,5
Við að hósta/hnerra 4 22,2 0 0
Undir meðaláköfu æfingarálagi 0 0 0 0
Undir miklu æfingarálagi 11 61,1 0 0
Tíðni þvagleka
Um einu sinni í viku eða sjaldnar 11 61,1 1 6,3
Tvisvar eða þrisvar í viku 0 0 1 6,3
Um einu sinni á dag 0 0 0 0
Alltaf 0 0 0 0
Hversu mikið magn, þvagleki
Lítið magn 11 61,1 2 12,5
Meðal magn 0 0 0 0
Mikið magn 0 0 0 0
Hversu mikið truflar þvagleki daglegt líf á kvarðanum 1-10
0 4 22,2 0 0
1 3 16,7 2 12,5
2 0 0 0 0
3 2 11,1 0 0
4 0 0 0 0
5 2 11,1 0 0
6+ 0 0 0 0