Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 30

Læknablaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 30
146 LÆKNAblaðið 2018/104 ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Hildur Þórarinsdóttir öldrunarlæknir starfar í hálfu starfi við öldrunardeild Landspítala á Landakoti og er jafnframt í hálfu starfi á Sjúkrastöðinni Vogi þar sem afeitrun og meðferð einstaklinga með fíknsjúkdóma fer fram. Hún flutti erindi á málþingi á Lækna- dögum þar sem hún ræddi sérstaklega áfengisvanda aldraðra sem hún segir falinn og fremur lítið ræddan. „Aldurspíramídi þjóðarinnar er að breyt- ast og öldruðum er að fjölga en jafnframt er áfengisneysla almennt að aukast. Það má sjá á sölutölum og tölum Hagstofu. Þá hefur áfengisneysla beggja kynja aukist talsvert, sérstaklega kvenna, en konur drukku minna áður. Þetta má sjá á tölum frá ÁTVR og Embætti landlæknis. Síðan er augljóst öllum sem vinna á bráðamóttöku og öðrum deildum sjúkrahússins að kom- ur þangað eru oft í beinum tengslum við neyslu eða afleiðinga hennar, hvort sem um er að ræða áfengi, önnur vímuefni eða ávanalyf,“ segir Hildur. „Á öldrunardeildunum erum við ekki laus við vandann. Það kemur fyrir að fólk er beinlínis lagt inn vegna afleiðinga áfengisdrykkju og getur jafnvel ekki verið heima þess vegna.“ Hildur segir þetta sorglega hringrás í mörgum tilfellum þar sem aldraður einstaklingur kemur inn vegna áfeng- isdrykkju, hann nær að jafna sig og fær nokkra endurhæfingu þar til hann getur snúið heim aftur. „Þá fer allt aftur fljótlega í sama farið. Heimahjúkrun er stundum í vandræðum með suma einstaklinga. Það er ekki hægt að sinna þeim á heimili þeirra vegna áfengisdrykkju. Ragnheiður Halldórsdóttir gerði fyrir nokkrum árum óformlega könnun á því hversu margir af sjúklingum K2 endurhæfingardeildar- innar væru þar vegna afleiðinga áfengis- neyslu eða ávanalyfja. Það reyndist hátt í helmingur. Það hafa aldrei verið gerðar ítarlegar kannanir á því hversu stórt hlut- fall þetta í rauninni er og þá sérstaklega hjá eldri hópnum. Það væri mjög fróðlegt að sjá hvað kæmi út úr því.“ Áfengisneysla hefur aukist verulega Hildur segir að oft sé erfitt að fá nákvæm- ar og réttar upplýsingar hjá sjúklingum sjálfum um hversu oft og hversu mikið þeir drekka. „Sumir segjast drekka eðli- lega og það getur verið eðlilegt fyrir fullhrausta manneskju á besta aldri en ekki fyrir heilsuveilan einstakling kominn á áttræðisaldur. Oft áttar fólk sig ekki á þessu eða er í ákveðnu mynstri sem erfitt er að koma auga á sjálfur eða brjóta upp. Sumir hafa vissulega sögu um óhóflega áfengisneyslu og átt tímabil án áfengis en hafa misst tökin aftur. Svo eru aðrir sem hafa haft stjórn á drykkju sinni í gegnum árin en þegar komið er á þennan aldur fer hún úr böndunum, eða líkaminn hrein- lega þolir ekki það sem hann þoldi áður. Með því að drekka meira verður heilinn fyrir breytingum sem getur valdið því að aldraður einstaklingur þróar með sér fíknsjúkdóm sem verður að meðhöndla sérstaklega. Af þeim sem eru eldri en 60 ára og leggjast inn á Vog eru yfir 50% sem drekka áfengi daglega.“ Þegar bornar eru saman tölur úr könnunum Lýðheilsustofnunar um drykkju fólks á aldrinum 18-60 ára hefur tíðnin aukist gríðarlega á síðustu 30 árum. Árið 1985 drukku um 10% einstaklinga vikulega eða oftar en nú er talan nálægt 50%. Vissulega var þetta áður en bjórinn kom til sögunnar en magn hreins vínanda á hvert mannsbarn hefur einnig aukist verulega á þessu tímabili. Hildur bendir á að nokkuð hafi verið á reiki hversu mikið magn áfengis daglega sé óskaðlegt heilsu manna. „Það var birt niðurstaða langtíma rannsóknar í BMJ þar sem tveir hópar voru rannsakaðir, ann- ar sem neytti áfengis í hófi og hinn sem neytti ekki áfengis. Niðurstöðurnar voru mjög skýrar að þeir sem drukku stóðu sig mun verr á ákveðnum orðflokkapróf- um og ákveðin svæði í heilanum voru rýrari. Þetta hefur meðal annars vakið spurningar um hvað eigi að teljast hófleg Áfengisvandi aldraðra er falinn vandi - segir Hildur Þórarinsdóttir öldrunarlæknir Barnahjartalæknar Domus Medica Læknastöð Vesturbæjar var lokað frá 1. mars. Við höfum flutt læknastofur okkar í Domus Medica 5. hæð Tímapantanir í síma 5631000 Gunnlaugur Sigfússon Gylfi Óskarsson Sigurður Sverrir Stephensen

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.