Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2018/104 155 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R nýju og kröftugu lyfjagjöf sem beitt er og völ er á til að halda köstum og bólguvirkni niðri held ég að þessar tölur eigi ekki lengur við. Maður verður var við það á ráðstefnum og fundum að almenn skoðun fræðasamfélagsins hneigist mjög í þá átt að koma megi í veg fyrir þessa seinni síversnun. Það á þó eftir að skýrast enn betur á næstu árum þegar lengri reynsla verður komin á lyfjameðferðina. Almennt á það sama við í mínum huga varðandi tölur um horfur. Þær tölur endurspegla meira það sem var en það sem koma skal. Lyfin sem við notum geta haft auka- verkanir og þess vegna er virkt eftirlit með sjúklingnum mikilvægt. Það er stöð- ugt verið að leita að lyfjum sem draga úr sjúkdómsvirkni en um leið lyfjum sem hafa sem minnstar aukaverkanir. Öryggi lyfjanna er viðunandi en það kallar samt á virkt eftirlit. Natalizumab er ennþá kröft- ugasta lyfið en getur haft alvarlega auka- verkun sem er heilabólga sem svokölluð JC-veira veldur. Það er visst áhyggjuefni að tíðni þessarar heilabólgu virðist á heimsvísu ekki hafa minnkað þrátt fyrir ákveðnar aðgerðir sem eru í gangi.“ Áhættuþættir og byrjunareinkenni Haukur segir það hafa sýnt sig að MS sé algengari eftir því sem fjær dreg- ur miðbaug. „Þar skiptir sólarljósið og D-vítamín sennilega máli og er sjálfsagt að ganga úr skugga um að blóðþéttni þess sé eðlileg hjá sjúklingum. Reykingar og ofþyngd virðast geta haft áhrif svo rétt er að ráðleggja sjúklingum í þeim efnum. Í grunninn er MS einhvers konar truflun í ónæmiskerfinu og lyfin sem við beit- um hafa áhrif með mismunandi hætti á ónæmiskerfið. Erfðir skipta líka máli og rannsóknir hafa sýnt að vissar genasam- setningar hafa áhrif. Þó það sé ákveðin klisja að segja að MS-sjúkdómurinn stafi af samspili umhverfis og erfða er það engu að síður þannig. Erfðaþátturinn er ekki stór því hann mælist hæstur hjá eineggja tvíburum og er þar ekki nema 30%. Þetta samspil ræsir ónæmiskerfið til óhæfuverka, bólgufrumur ráðast á myel- in-slíðrin sem umlykja taugaþræðina og með tíð og tíma skaddast taugarnar sjálfar og sjúklingnum hrakar sem því nemur. Þótt margt sé enn á huldu hefur þekking á MS vaxið hratt hin síðari ár og gaman að hafa fengið að upplifa þá þróun. Á hverju ári eru haldnar mjög öflugar ráðstefnur MS-lækna í Evrópu og Bandaríkjunum þar sem farið er yfir nýjustu rannsóknir og þekkingu á sjúkdómnum, bæði varðandi lyf og annað.“ Að sögn Hauks eru algengustu byrjun- areinkenni MS-sjúkdómsins sjóntaugar- bólga sem kemur fram sem daprari sjón og verkur í auga, og doði í andliti eða einum eða fleiri útlimum. „Vissulega geta margir fundið fyrir slíku og hrist það af sér sem tímabundin óþægindi því einkennin hverfa eða minnka þegar kastið gengur yfir. Við greiningu sjúkdóms segja sumir sjúklingar frá því að þeir hafi jú fundið áður fyrir einkennum án þess að átta sig á að það væri eitthvað alvarlegt. Það skiptir því máli að fara vel yfir sögu sjúklingsins í greiningarvinnunni. Það er einnig mikil- vægt að átta sig á því hversu einstaklings- bundnar lýsingar á óþægindum eru, sumir sjúklingar hafa tilhneigingu til að ofmeta einkennin en aðrir draga úr þeim. Sam- talið við lækninn skiptir því máli, jafnt í byrjun sem seinna þegar sjúkdómsvirkni og árangur lyfjameðferðar er metin. Það má gjarnan minna á í þessu sambandi mikilvægi góðs samstarfs heimilislækna og okkar taugalækna. Ég vil líka minn- ast á mikilvægi þess að viðhalda góðum tengslum við útlönd. Flest höfum við verið í sérnámi við góðar og virtar stofnanir og sjúkrahús erlendis þar sem mikil þekking og reynsla er til staðar. Slík tengsl hafa verið okkur taugalæknum á Landspítala sem vinnum með MS mikilvæg og vil ég sérstaklega minnast á og þakka gott sam- starf við MS-lækna á Karolinska sjúkra- húsinu í Stokkhólmi. Við leitum reglulega ráðgjafar og samráðs við kollega okkar þar. Ég velti því upp hvort Landspítali ætti að móta sér stefnu hvað þetta varðar með því að gera sérfræðingum sínum kleift enn betur en nú er, að viðhalda tengslum sínum við kollega á móðursjúkrahúsum erlendis með reglulegum heimsóknum í stuttan tíma í senn til að fylgjast með því sem efst er á baugi í sérgreininni.“ „Áður fyrr var starf taugalæknisins ekki síst fólgið í því að vinna með MS-sjúklinga sem voru í köstum og bjuggu við fötlun en nú er vinnan meira fólgin í því að hefja fyrirbyggjandi meðferð og fylgja henni eftir með reglubundnu eftirliti,“ segir Haukur Hjaltason sérfræðingur í taugalækningum.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.