Læknablaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2018/104 155
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
nýju og kröftugu lyfjagjöf sem beitt er og
völ er á til að halda köstum og bólguvirkni
niðri held ég að þessar tölur eigi ekki
lengur við. Maður verður var við það á
ráðstefnum og fundum að almenn skoðun
fræðasamfélagsins hneigist mjög í þá átt
að koma megi í veg fyrir þessa seinni
síversnun. Það á þó eftir að skýrast enn
betur á næstu árum þegar lengri reynsla
verður komin á lyfjameðferðina. Almennt
á það sama við í mínum huga varðandi
tölur um horfur. Þær tölur endurspegla
meira það sem var en það sem koma skal.
Lyfin sem við notum geta haft auka-
verkanir og þess vegna er virkt eftirlit
með sjúklingnum mikilvægt. Það er stöð-
ugt verið að leita að lyfjum sem draga úr
sjúkdómsvirkni en um leið lyfjum sem
hafa sem minnstar aukaverkanir. Öryggi
lyfjanna er viðunandi en það kallar samt á
virkt eftirlit. Natalizumab er ennþá kröft-
ugasta lyfið en getur haft alvarlega auka-
verkun sem er heilabólga sem svokölluð
JC-veira veldur. Það er visst áhyggjuefni
að tíðni þessarar heilabólgu virðist á
heimsvísu ekki hafa minnkað þrátt fyrir
ákveðnar aðgerðir sem eru í gangi.“
Áhættuþættir og byrjunareinkenni
Haukur segir það hafa sýnt sig að MS
sé algengari eftir því sem fjær dreg-
ur miðbaug. „Þar skiptir sólarljósið og
D-vítamín sennilega máli og er sjálfsagt
að ganga úr skugga um að blóðþéttni þess
sé eðlileg hjá sjúklingum. Reykingar og
ofþyngd virðast geta haft áhrif svo rétt er
að ráðleggja sjúklingum í þeim efnum. Í
grunninn er MS einhvers konar truflun
í ónæmiskerfinu og lyfin sem við beit-
um hafa áhrif með mismunandi hætti á
ónæmiskerfið. Erfðir skipta líka máli og
rannsóknir hafa sýnt að vissar genasam-
setningar hafa áhrif. Þó það sé ákveðin
klisja að segja að MS-sjúkdómurinn stafi
af samspili umhverfis og erfða er það
engu að síður þannig. Erfðaþátturinn
er ekki stór því hann mælist hæstur hjá
eineggja tvíburum og er þar ekki nema
30%. Þetta samspil ræsir ónæmiskerfið til
óhæfuverka, bólgufrumur ráðast á myel-
in-slíðrin sem umlykja taugaþræðina og
með tíð og tíma skaddast taugarnar sjálfar
og sjúklingnum hrakar sem því nemur.
Þótt margt sé enn á huldu hefur þekking á
MS vaxið hratt hin síðari ár og gaman að
hafa fengið að upplifa þá þróun. Á hverju
ári eru haldnar mjög öflugar ráðstefnur
MS-lækna í Evrópu og Bandaríkjunum þar
sem farið er yfir nýjustu rannsóknir og
þekkingu á sjúkdómnum, bæði varðandi
lyf og annað.“
Að sögn Hauks eru algengustu byrjun-
areinkenni MS-sjúkdómsins sjóntaugar-
bólga sem kemur fram sem daprari sjón og
verkur í auga, og doði í andliti eða einum
eða fleiri útlimum. „Vissulega geta margir
fundið fyrir slíku og hrist það af sér sem
tímabundin óþægindi því einkennin
hverfa eða minnka þegar kastið gengur
yfir. Við greiningu sjúkdóms segja sumir
sjúklingar frá því að þeir hafi jú fundið
áður fyrir einkennum án þess að átta sig á
að það væri eitthvað alvarlegt. Það skiptir
því máli að fara vel yfir sögu sjúklingsins
í greiningarvinnunni. Það er einnig mikil-
vægt að átta sig á því hversu einstaklings-
bundnar lýsingar á óþægindum eru, sumir
sjúklingar hafa tilhneigingu til að ofmeta
einkennin en aðrir draga úr þeim. Sam-
talið við lækninn skiptir því máli, jafnt í
byrjun sem seinna þegar sjúkdómsvirkni
og árangur lyfjameðferðar er metin. Það
má gjarnan minna á í þessu sambandi
mikilvægi góðs samstarfs heimilislækna
og okkar taugalækna. Ég vil líka minn-
ast á mikilvægi þess að viðhalda góðum
tengslum við útlönd. Flest höfum við verið
í sérnámi við góðar og virtar stofnanir og
sjúkrahús erlendis þar sem mikil þekking
og reynsla er til staðar. Slík tengsl hafa
verið okkur taugalæknum á Landspítala
sem vinnum með MS mikilvæg og vil ég
sérstaklega minnast á og þakka gott sam-
starf við MS-lækna á Karolinska sjúkra-
húsinu í Stokkhólmi. Við leitum reglulega
ráðgjafar og samráðs við kollega okkar
þar. Ég velti því upp hvort Landspítali ætti
að móta sér stefnu hvað þetta varðar með
því að gera sérfræðingum sínum kleift
enn betur en nú er, að viðhalda tengslum
sínum við kollega á móðursjúkrahúsum
erlendis með reglulegum heimsóknum í
stuttan tíma í senn til að fylgjast með því
sem efst er á baugi í sérgreininni.“
„Áður fyrr var starf taugalæknisins ekki síst fólgið í
því að vinna með MS-sjúklinga sem voru í köstum og
bjuggu við fötlun en nú er vinnan meira fólgin í því
að hefja fyrirbyggjandi meðferð og fylgja henni eftir
með reglubundnu eftirliti,“ segir Haukur Hjaltason
sérfræðingur í taugalækningum.