Fréttablaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 2
Veður
Norðan- og norðvestanátt, víða
8-15 m/s en 15-23 (hvassviðri eða
stormur) suðaustan til á landinu
seinni partinn. Það rofar smám
saman til á Suður- og Vesturlandi,
en slydda eða rigning og síðar él
norðan- og norðaustanlands.
sjá síðu 50
bilauppbod.is/auction/view/30455-dekkjalager
DEKKJAUPPBOÐ
Rúmlega 1750 dekk á uppboði.
Endar 3. október
kl. 20:00 Sum
ar o
g ve
trar
dek
k
DÓMsMáL Drengur um tvítugt var í
Landsrétti í gær sýknaður af ákæru
um nauðgun á Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum. Ekki þótti sannað
að ásetningur hefði staðið til
verknaðarins. Einn dómari skilaði
sératkvæði.
Í héraði hafði fjölskipaður dómur
dæmt ákærða til tveggja ára fangels-
isvistar og til að greiða stúlkunni 1,5
milljónir í miskabætur. Þar skilaði
einn dómari sératkvæði sem var
samhljóða meirihluta Landsréttar.
Drengurinn var átján ára og stúlk-
an sautján ára þegar atvikið átti sér
stað árið 2016. Höfðu þau áður átt í
sambandi en upp úr því flosnað. Þau
ákváðu að sofa saman í tjaldi drengs-
ins. Var hann ákærður fyrir að hafa á
meðan á því stóð slegið hana ítrekað
og stungið fingri í endaþarm hennar.
Hlaut hún af þessu mikið mar víðs-
vegar um líkamann.
Ákærði bar því við að þau hefðu
oft stundað gróft kynlíf og rætt
saman um hvað þau vildu gera.
Taldi hann að kynlífið í þetta skipti
hefði verið vanalegt. Stúlkan sagði
þetta hins vegar vera eins og að bera
saman „gamnislag“ og hörku áflog.
Meirihluti Landsréttar taldi að í
ljósi þess hvernig kynlífi þeirra hafði
verið háttað áður væri ekki unnt að
sakfella drenginn fyrir nauðgun. Í
sérákvæði sagði að í ljósi áverka á
stúlkunni hafi verið ljóst að hann
hafi farið út fyrir mörk samþykkis
hennar þrátt fyrir að fyrra kynlíf
þeirra hafi verið gróft. – jóe
Sýknaður af
nauðgun
DÓMsMáL Íslenska ríkið var í Lands-
rétti í gær sýknað af 4 milljóna miska-
bótakröfu Ástu Kristínar Andrés-
dóttur. Ásta hafði krafist bóta eftir
að hún var sýknuð af ákæru um
manndráp af gáleysi í starfi sínu sem
hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild
Landspítalans.
Krafa Ástu var annars vegar byggð
á hlutlægri ábyrgðarreglu laga um
meðferð sakamála. Ríkið var sýknað
af þeirri kröfu sem og kröfu byggðri
á almennu sakarreglunni. Ekki þótti
sannað að rannsakendur hefðu með
saknæmum og ólögmætum hætti
brotið gegn henni líkt og áskilið
er í skaðabótalögum. Var ríkið því
sýknað. – jóe
Fær ekki bætur
Frá þjóðhátíð. Fréttablaðið/Vilhelm
Danski leikarinn Mads Mikkelsen var í gær verðlaunaður með RIFF-verðlaunum fyrir framúrskarandi framlag sitt til leiklistarinnar í Höfða í
Reykjavík. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti Mads verðlaunin. Mads hefur komið fram í fjölda kvikmynda og þáttaraða sem notið hafa
mikilla vinsælda víðs vegar um veröldina. Nokkrar valdar kvikmyndir hans verða sýndar á RIFF-kvikmyndahátíðinni. Fréttablaðið/ernir
Mikilsvirtur Mads heiðraður
Ásta Kristín
andrésdóttir.
sTjÓRNsÝsLA Kostnaður við farsíma
og nettengingar þingmanna, starfs-
liðs þingflokka, formanna flokka og
starfsliðs skrifstofu Alþingi síðast-
liðin fimm ár nemur tæplega 110
milljónum króna. Þetta kemur fram
í svari forseta Alþingis við fyrirspurn
Andrésar Inga Jónssonar, þing-
manns Vinstri grænna.
Kostnaðurinn var mestur árin
2013 og 2014, rúmar 28 milljónir
króna, en hefur síðan þá dregist
saman um helming en kostnaður-
inn var rétt rúmar 14 milljónir í
fyrra. Kostnaður við farsíma og net-
tengingar þingmanna einna hefur
minnkað úr tæpum 18 milljónum
árið 2013 í rúmar átta í fyrra. Sé litið
til starfsliðs þingflokka og formanna
flokka hefur kostnaðurinn farið úr
rúmri milljón í rúmlega 750.000.
Árið í fyrra var þó næstdýrasta árið
hjá viðkomandi. Þá hefur kostn-
aður hjá starfsliði skrifstofu Alþingis
helmingast frá 2013, farið úr 9,5
milljónum í tæpar fimm.
Langstærstur hluti upphæðarinn-
ar rennur til Símans hf. en í svarinu
segir að skrifstofa þingsins leiti ekki
tilboða vegna farsíma og netteng-
ingar þingmanna heldur velji þeir
þjónustuaðila sjálfir. Hvað starfs-
menn skrifstofu þingsins varðar
var tilboða leitað hjá Símanum og
Vodafone árið 2013 og tilboði Sím-
ans tekið.
Andrés Ingi segir við Fréttablaðið
að lækkun undanfarinna ára endur-
spegli ef til vill þróun á markaði, en
tekur fram að hann hafi ekki náð að
skoða svarið almennilega. „Ég bað
hins vegar um meðalkostnað til að
sjá hvað hver einstaklingur væri að
kosta. Það fylgir ekki með þarna
þannig að það er pínu erfitt að meta
þróunina fyrst maður er bara með
heildarstöðuna. Það er kannski pínu
klúður hjá mér að hafa ekki orðað
þetta skýrar.“
Ekki á að afnema þetta fyrirkomu-
lag að mati Andrésar Inga. Hann
segir að símar og góð nettenging
séu grundvallarþættir í því að þing-
menn og starfsmenn þingsins geti
sinnt starfi sínu vel. „Eins og náttúru-
lega á fleiri vinnustöðum. Ég reikna
með því að það sé víða sem fyrir-
tæki dekki sambærilegan kostnað
hjá starfsmönnum sínum. thorgnyr@
frettabladid.is, joli@frettabladid.is
Ekki áhugi á að afnema
milljónahlunnindin
Kostnaður við farsíma og nettengingar þingmanna og starfsmanna þingsins
minnkað töluvert undanfarin ár. Var fjórtán milljónir í fyrra en 28 árið 2013.
Andrés Ingi Jónsson þingmaður segir lækkunina ef til vill endurspegla þróun á
markaði og vill ekki afnema það fyrirkomulag að þingið greiði kostnaðinn.
andrés ingi vill ekki afnema núverandi fyrirkomulag. Fréttablaðið/eyþór
Ég reikna með því
að það sé víða sem
fyrirtæki dekki sambæri-
legan kostnað hjá starfs-
mönnum sínum.
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður
Vinstri grænna
2 9 . s e p T e M b e R 2 0 1 8 L A u G A R D A G u R2 f R é T T i R ∙ f R é T T A b L A ð i ð
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
F
2
-7
0
E
4
2
0
F
2
-6
F
A
8
2
0
F
2
-6
E
6
C
2
0
F
2
-6
D
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K