Fréttablaðið - 29.09.2018, Page 18

Fréttablaðið - 29.09.2018, Page 18
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Gunnar Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Við hjá Fréttablaðinu höfum bent á að hægt sé að reka RÚV fyrir 3,5 milljarða og án þess að fá krónu í auglýsinga- tekjur en enginn vilji hefur verið til að hlusta á slíkar tillögur. Ég boða yður þann fögnuð frá sjúkrabeði þar sem ég ligg hádramatísk með hor, hita og hugaróra að enn á ný er kveftíminn runninn upp. Kvef rænir mig rök- hugsun. Þegar líkamshitinn rís upp fyrir 39 gráður kæri ég mig ekki lengur um sannleikann. Þótt ég viti vel að engin lækning er til við kvefi hamast ég hamslaus í Google í leit að kraftaverki. Ég er til í að prófa hvað sem er í von um skjótan bata: sólhatta, C-vítamín, orkuarmbönd, smá- skammtadropa, mulin nashyrningshorn. En þótt kvefið byrgi mér sýn á einu sviði skýrir það annað. Kvef skilur hismið frá kjarnanum. Vanlíðan varpar ljósi á hvað skiptir raunverulega máli í lífinu. Þegar fréttir bárust af því að Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefði loksins afhent Bjarna Benediktssyni skýrslu sína um erlenda áhrifaþætti bankahrunsins gat mér ekki staðið meira á sama. Ekki voru þó allir svo lánsamir að vera í hitamóki daginn sem skýrslan var birt. Skýrsla Hannesar sem var fjögur ár í smíðum og kostaði ríkið tíu milljónir fékk víðast dræmar viðtökur. Ritstjóri Stundarinnar sagði að niðurstaða Hannesar hefði verið „að lýsa Davíð Oddssyni sem hetju, grafa undan trú- verðugleika óháðrar rannsóknarnefndar, skella skuldinni á Samfylkinguna og réttlæta vanhæfi og innherjavið- skipti“. Ritstjóri Kjarnans benti á það á Twitter að „Davíð Oddsson er nefndur 163 sinnum í skýrslu Hannesar Hólmsteins … Ekkert verið að eyða miklu púðri í kaup bankanna á eigin bréfum, með eigin peningum, eða for- dæmalausa dóma vegna þessa. Minnst á það einu sinni.“ Úrilli frændinn í afmælinu Hannes Hólmsteinn Gissurarson er eins og gamli, úrilli frændinn í barnaafmælinu sem situr úti í horni og afneitar tungllendingunni, helförinni og kvartar yfir að það sé ekki nógu mikill sykur á pönnukökunum: „Ég er búinn að segja þetta síðan í ástandinu – allt er útlendingum að kenna … dýrð sé Davíð í upphæðum, nei, ég meina Hádegismóum … kolkrabbi er ljúffengur djúpsteiktur með Gunnars majónesi … og að lokum eins og ávallt: „Carthago delenda est“ – eða eins og það útleggst á íslensku: Niður með Samfylkinguna.“ Áratugum saman hafa Íslendingar, eins og gestirnir í barnaafmælinu, umborið Hannes frænda vandræðalegir í framan. Við höfum fylgt honum gegnum súrt og sætt, fylgst með honum fara með fleipur, vera dæmdur fyrir rit- stuld og valda glundroða við Háskóla Íslands er kynslóðir af nemendum í stjórnmálafræði kvarta undan vinnu- brögðum hans. Það sætir því furðu, í ljósi orðstírs Hannesar, að enn leitar Sjálfstæðisflokkurinn á náðir hans þegar sanna á ágæti stefnu flokksins með vísindalegum hætti. Flokknum hlýtur þó að vera ljóst að rétt eins og sólhattar, orkuarmbönd og smáskammtadropar virkar Hannes ekki vísindalega. En á óvísindalegu valinu kann að vera vísindaleg skýring. Kraftur sjálfsblekkingarinnar Til er það meðal sem dregur úr sjúkdómseinkennum sem fylgja bæði kvefi og laskaðri pólitískri hugmyndafræði. Fyrir tæpa 15 dollara, 1.650 krónur, má kaupa á Amazon bláar og hvítar töflur sem ganga undir vöruheitinu Zeebo. Töflurnar skal taka „eftir þörfum“ við „leiðigjörnum kvillum“. Utan á fallega hönnuðu lyfjaglasinu stendur stórum stöfum: „Sannheiðarleg lyfleysa“. Lengi hefur verið vitað að lyfleysa getur dregið úr sjúk- dómseinkennum. Var talið að blekkingin væri lykillinn að mætti lyfleysunnar – sjúklingar töldu sig vera að fá alvöru lyf sem olli bættri líðan. Nýjar rannsóknir sýna hins vegar að kraftur lyfleysunnar felst ekki aðeins í blekkingu heldur líka sjálfsblekkingu. Lyfleysa virkar eins vel og stundum betur þegar sjúklingurinn veit að hann tekur inn lyfleysu. Hannes Hólmsteinn er lyfleysa Sjálfstæðisflokksins. Þegar engin lækning er til, rök eru þrotin og sannleikurinn rotinn, er Hannes dreginn fram eins og sætasta sykur- pilla til að lækna hið ólæknanlega með krafti sjálfsblekk- ingarinnar. Sparnaðarráð til Sjálfstæðisflokksins fyrir hönd skatt- greiðenda: Zeebo er sex þúsund sinnum ódýrara en Hannes Hólmsteinn, hefur sömu virkni og er í einkennis- litum flokksins. Lyfleysa Sjálfstæðisflokksins Þótt vaxandi skilningur virðist vera meðal ráðamanna á yfirborðinu um að ekki verði unað við óbreytta stöðu á fjölmiðlamarkaði heyrist lítið um hvernig eigi að útfæra þær hugmyndir sem menntamálaráðherra kynnti á dögunum. Í nýju fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir að RÚV fái 570 milljónir til viðbótar við þá sex milljarða sem stofnunin hefur þegar úr að spila á ári. Til að setja þá tölu í samhengi er það tvöföld sú tala sem kostar að reka fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar á ári og hærri tala en kostar að reka ritstjórn Fréttablaðsins á ári. Í heild má ætla að RÚV verði með 6,7 milljarða í tekjur á næsta ári. Stærstur hluti þeirra kemur frá ríkinu og virðist RÚV vera ein af fáum stofnunum sem hafa óhindraðan aðgang að fjárhirslum ríkisins enda hefur hver menntamálaráðherrann á fætur öðrum látið útvarpsstjóra og félaga valta yfir sig. Ástæðan er augljós. Stjórnmálamennirnir eru hræddir við að taka á RÚV vegna þess að menn og konur óttast að lenda í andstöðu við ríkismiðil- inn fyrir það eitt að vilja breyta bákninu í Efsta- leiti. Bruðlið þar er mikið. Við hjá Fréttablaðinu höfum bent á að hægt sé að reka RÚV fyrir 3,5 milljarða og án þess að fá krónu í auglýsinga- tekjur en enginn vilji hefur verið til að hlusta á slíkar tillögur. Fyrir stuttu voru fréttir af uppsögnum og hag- ræðingu hjá danska ríkisútvarpinu. Þar á bæ þarf að skera niður kostnað um tuttugu prósent og 400 störf á næstu fimm árum. Ekki hafa komið fram slíkar kröfur á RÚV. Engum virðist detta í hug, að það sé raunhæfur möguleiki. Á sama tíma frumsýnir RÚV nýtt fréttamynd- ver, sem kostar hvorki meira né minna en tæpar 200 milljónir. Og þegar það var kynnt til leiks var sýnt fréttasettið hjá BBC – ríkisútvarpi 70 millj- óna þjóðar til að gefa forsmekk af slíku myndveri. Þess má geta að Stöð 2 setti upp nýtt fréttamynd- ver fyrir 2 árum, sem kostaði 12 milljónir króna. Á Íslandi eru tvö hundruð skráðir einkareknir fjölmiðlar og óljóst er hvernig þær 400 milljónir, sem menntamálaráðherra kynnti í tillögum sínum, skiptast. Ljóst er að ef potturinn á að skiptast milli allra, kemur ekki mikið í hlut hvers og eins. Sennilega mun svo fækkun á auglýsingamín- útum hjá RÚV, sem einnig er hluti af tillögunum, þýða það eitt, að verðið á þeim mínútum sem eftir eru, mun hækka. Síðustu vikur hafa komið upp dæmi um ótrú- legt bruðl hjá hinu opinbera og Reykjavíkurborg. Langlundargeð almennings, sem greiðir fyrir vit- leysuna, er að minnka. Það er því ekki nema von, að spurt sé: Hvenær er nóg nóg? Þegar nóg er nóg 2 9 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð SKOÐUN 2 9 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :1 9 F B 1 2 8 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 F 2 -7 A C 4 2 0 F 2 -7 9 8 8 2 0 F 2 -7 8 4 C 2 0 F 2 -7 7 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 2 8 s _ 2 8 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.