Fréttablaðið - 29.09.2018, Page 108

Fréttablaðið - 29.09.2018, Page 108
Bækur Enn logar jökull Matthías Johannessen Útgefandi: Bókaútgáfan Sæmundur Fjöldi síðna: 173 bls. Þegar Matthías Johannessen kvaddi sér hljóðs með sinni fyrstu ljóða- bók (Borgin hló, 1958) var ljóst að þar fór skáld sem hafði ljóðmálið á valdi sínu. Þrátt fyrir rímleysi var því veitt athygli að ljóð hans voru vel byggð og oft myndsterk. Eins og ungu Reykjavíkurskáldi hæfði orti hann um „götur með varir blautar af tjöru“, og strax þá var söknuður eftir liðnum tíma og vitundin um fallvalt- leikann einkenni á ljóðum hans – svo er enn. Í nýjustu bók sinni, Enn logar jökull, er Matthías sem fyrr að kljást við tímann sem hefur verið grunn- tónn svo margra ljóða hans frá upp- hafi. Tíminn, sagan og tortímingin eru grunnstef þessarar bókar, sem og feigðin og hin óhjá- kvæmilegu endalok í ýmsum myndum. Bókin skiptist í tvo meginþætti. Fyrri hlut- inn nefnist Land mitt og er að verulegu leyti sögulegur. Nokkurskon- ar samræða við fornöld samhliða hugleiðingum um eyðingarmátt lands- ins annars vegar, hins vegar eyðingarmátt mannsins á jörðinni. Víða gætir prédikunar- tóns í heimspekilegum hugleiðingum um lífið og tilveruna, eins og í ljóðinu Á vegum seiðmanna: ... Enginn hefur bundið okkur við þetta sker, nema sjálfskaparvíti okkar sjálfra, við erum á flæðiskeri stödd, vorum í helgreipum seiðmanna og fjölkynngi þeirra. V i ð l e s t u r þessa og fleiri viðlíka ljóða vaknar oft vafi um mörk ljóð- máls og ræðu, sögu og pistils. Innan um eru s v o ö n n u r skáldlegri og jafnvel hefð- bundnari ljóð- mæli þar sem rím, stuðlar og höfuðstafir bera mynd- málið uppi. Þó verður að segjast að orðgnóttin vill á stundum bera inntakið ofurliði einkanlega í þessum hluta bókarinnar, enda auðséð að skáldinu liggur ýmislegt á hjarta. Við tjaldskör tímans – frá forn- öld til fullveldis nefnist síðari hluti bókarinnar. Ljóðin hér eru sögu- þrungin líkt og framar, mikið um vísanir í bókmenntahefð og goða- fræði. Að sumu leyti er þessi hluti þó persónulegri og ljóðrænni þar sem skáldið lítur oftar inn á við. Hér eins og í fyrri hlutanum er dauðinn nálægur og náttúruöflin blása ösku og eimyrju yfir land og lýð. Ljóð- mælandinn er eins og vindurinn sem „blæs úr fornum heimkynnum menningar og næðir um það frum- stæða mannkyn sem nú eigrar um jörðina og er helsta vandamál henn- ar“ eins og höfundur útskýrir sjálfur aftan á bókarkápu. Víða getur að líta sterkar ljóðmyndir, líkt og í ljóðinu Hugur og hold: Í auðmýkt festir hugur minn rætur við heljartök gamalla sagna þegar aldir renna í einum farvegi eins og fljót að ósi og ljósið fellur inn í tímans þagnir. Fleira er þó á seyði: Einsemd, feigð- argrunur, tilfinning fyrir endanleik- anum, söknuður eftir horfnum tíma, uggur um hvað taki við. Þessar hug- renningar leita fast á í hverju ljóðinu af öðru, og fátt um svör. Nú bregður svo við að orðum fækkar í persónu- legustu ljóðunum og ljóðmælandinn sýnir lesandanum trúnað. Dæmi um það er ljóðið Lok þar sem kallast er á við kunnuglegt stef annars Matthías- ar um smáblómið í eilífðinni: Ég er einn og enginn gengur hjá, eitt lítið strá á tímans vegaleysum. Heiti bókarinnar ber skáldinu sjálfu vitni. Eftir lesturinn má sannar lega segja um neista Matthías- ar eins og jökulinn: Hann logar enn. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Niðurstaða: Skáldið er hinn aldni jökull sem gerir ýmist að gjósa eða varpa frá sér aftanskini sólar í þessu verki. Skáldleg orðgnótt Eftirbátur er ný skáldsaga eftir Rúnar Helga Vignis-son. „Í víðum skilningi fjallar bókin um leitina að faðerninu. Hugmynd-in spratt út frá því að ég fékk að kíkja aðeins á skak með vini mínum sumarið 1993. Það eru sem sagt 25 ár síðan ég skrifaði fyrsta kafl- ann,“ segir Rúnar Helgi. „Þá ætlaði ég að skrifa sögu um mann sem fer á sjó og lendir í nýjum veruleika og nýjum tíma í hverri sjóferð. Ég skrifaði all- marga kafla en lengi vel sá ég ekki til lands. Samt juðaði ég við þetta árum saman, því að hugmyndin heillaði, og bætti alltaf einhverju við. Það var ekki fyrr en 2010–2011 sem þetta fór að smella saman. Árin þar á eftir gat ég skrifað söguna þannig að úr varð heild. Til varð þetta verk þar sem tímarnir tvennir, þrennir eða fernir flæða saman.“ Rúnar Helgi segir söguna öðrum þræði fjalla um karlmennskuna. „Sagan hefst á því að söguhetjan Ægir fær símhringingu þar sem honum er sagt að föður hans, sem er sjómaður, sé saknað og bátur hans hafi fundist mannlaus á hafi úti. Ægir neitar að trúa því að karl- inn hafi drukknað og fer að leita hans. Sú leit leiðir hann hingað og þangað um norðanverða Vestfirði, bæði í tíma og rúmi. Úr verður skoðun á faðerninu síðustu öldina. Þarna vakna spurningar eins og: Hvernig verður faðerni til? Er fað- erni afsprengi tímans og staðhátt- anna? Og síðast en ekki síst: Þarf maður að þekkja fortíðina til að þekkja sjálfan sig? Það gerir sögu- hetjan ekki í upphafi sögunnar, Ægir rekur auglýsingastofu og fæst því við nútímann. Á meðan þessu vindur fram bíður eiginkona hans í landi og hefur óvæntar hugmyndir um samlíf þeirra.“ Sjómennskan alla tíð viðmið Sagan gerist á Vestfjörðum. „Mín genasúpa hefur orðið til við Djúp, þetta eru slóðir sem ég þekki og því nærtækt að fjalla um þær,“ segir Rúnar Helgi. „Hið mikilúðlega landslag þar um slóðir og voveiflegir atburðir sem þar urðu leika stórt hlutverk í bókinni. Þess utan er hún kannski í aðra röndina uppgjör sjó- mannssonarins, en pabbi var skip- stjóri þegar ég var að vaxa úr grasi og báðir afarnir. Sjómennskan hefur því alla tíð verið viðmið í mínu lífi.“ Ljúf og skrýtin tilfinning Þar sem sagan hefur verið áratugi í vinnslu er Rúnar Helgi spurður hvernig tilfinning það sé að sjá hana loks komna á prent. „Þetta er bæði ljúf og skrýtin tilfinning því þegar ég horfi á höfundarmynd af mér sem var tekin 1993 og ber hana saman við höfundarmyndina sem var tekin fyrir þessa bók, þá er ljóst að ég hef sjálfur lent í tímaflakki. Ótrúlega stór hluti ævi minnar er á bak við þessa bók; þegar ég byrjaði á henni var ég að hefja minn feril en nú er útsýnið allt annað. Ætli bókin hafi ekki bara þekkt sinn vitjunartíma.“ Rúnar Helgi kennir ritlist við Háskóla Íslands og starfar einnig sem þýðandi. Í mörg ár hefur hann unnið að ritröðinni Smásögum heimsins, ásamt öðrum. Asía og Eyjaálfa eru í prentun og koma í einu bindi. „Við erum gríðarlega spennt fyrir þeirri bók því þar fáum við sögur frá lönd- um sem ekki hafa átt marga fulltrúa á íslenskum bókamarkaði í gegnum tíðina og í sumum tilfellum enga,“ segir Rúnar Helgi. Tímarnir flæða saman Í nýrri skáldsögu, Eftirbátur, fjallar Rúnar Helgi Vignisson meðal annars um leitina að faðerninu. 25 ár síðan fyrsti kafl- inn var skrifaður. Stór hluti ævinnar á bak við þessa bók. „Ótrúlega stór hluti ævi minnar er á bak við þessa bók,“ segir Rúnar Helgi Vignisson um nýja skáldsögu sína, Eftirbátur. FRéttabLaðið/SigtRygguR aRi Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÞEgaR ég HoRfi á HöfundaRmynd af méR SEm VaR tEkin 1993 og bER Hana Saman Við HöfundaRmyndina SEm VaR tEkin fyRiR ÞESSa bók, Þá ER ljóSt að ég HEf SjálfuR lEnt Í tÍmaflakki. 2 9 . s E p t E M B E r 2 0 1 8 L a u G a r D a G u r52 M E N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð menning 2 9 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :1 9 F B 1 2 8 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 F 2 -9 D 5 4 2 0 F 2 -9 C 1 8 2 0 F 2 -9 A D C 2 0 F 2 -9 9 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 8 s _ 2 8 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.