Morgunblaðið - 09.06.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.06.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2018 Grillboð í Múrbúðinni Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-16 Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-14 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is 44.990 Kaliber Red gasgrill 4 brennara (12KW) + hliðarhella (2.5KW). Grillflötur 41x56cm 39.900 GRILLBOÐ* *G ril lb oð ið gi ld ir 25 .5 -1 0. 6. 20 18 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sextán örvaroddar, fimm oddar af spjótum, axarhöfuð, sveigðar járn- þynnur, ljár af orfi, hálsfesti og glerbrot úr lyfjaglösum eru munir í óvæntri sendingu sem Þjóðminja- safni Íslands barst í síðustu viku. Það var á föstudag sem starfsmenn Góða hirðisins fundu ýmsa for- vitnilega gripi í plastkassa í gámi sem borist hafði frá endurvinnslu- stöðinni við Dalveg í Kópavogi. Í kassanum reyndist vera nokkur fjöldi gripa sem líta út fyrir að vera fornir. Haft var samband við Þjóð- minjasafnið og sótti starfsmaður þess gripina sem hafa verið til at- hugunar síðustu daga. Skrautlauf úr kopar „Það er mjög óvenjulegt að safn- inu berist nokkuð þessu líkt. Hins vegar vitum við ekkert um uppruna þessara gripa svo við leitum eftir upplýsingum frá þeim sem kunna að vita hvaðan gripirnir koma,“ segir Ármann Guðmundsson, sér- fræðingur fornminja hjá Þjóðminja- safninu. Hann telur ekki ósennilegt að kopargripir í þessari sendingu séu af erlendum uppruna; það er spjótsoddur og skrautlauf, sem lík- ast til hafi verið skeytt við stöng eða skaft. Þá sé í sendingu þessari annar spjótsoddur úr járni sem ýmislegt bendi til að sé frá 10. öld. „Við munum rannsaka alla þessa gripi, það er efnagreina og röntgenmynda auk þess sem hand- bragð og tákn úr menningarsög- unni geta alltaf gefið okkur vís- bendingar. Gerðfræðilegar rann- sóknir köllum við slíkt, það er að skoða hlutina í samhengi við annað. Og þá þurfum við fyrst og síðast upplýsingar, til dæmis frá þeim sem fór með þessa gripi í gáminn á Dalvegi eða öðrum sem til þekkja. Það mun verða okkur afar gagn- legt. Það er mjög óvenjulegt að nokkuð þessu líkt hafi verið í einka- eigu og endi svo í nytjagámum,“ segir Ármann. Gripir úr jörð Gripirnir sem um ræðir virðast komnir úr jörð og óskar Þjóðminja- safn Íslands eftir upplýsingum frá þeim sem kunna að þekkja til þeirra. Viðkomandi eru beðnir um að hafa samband við Þjóðminjasafn Íslands eins og lög gera ráð fyrir. „Svona gripir eru sameign okkar allra og mega ekki fara í svelginn,“ segir Ármann – og bætir við að gripir úr jörð almennt þurfi að fá sérstaka meðferð forvarða og við- eigandi aðstæður. Varðveisla þeirra og sýning ráðist annars mjög af þeim upplýsingum sem nú er leitað eftir. Morgunblaði/Arnþór Munir Oddar af örvum og spjótum, skrautlauf, brot úr lyfjaglasi og hálsfesti voru í sendingunni góðu. Merkir gripir bárust úr Góða hirðinum  Fágæti til Þjóðminjasafnsins úr Góða hirðinum  Spjóts- oddur hugsanlega frá 10. öld  Upplýsinga er nú leitað Morgunblaði/Arnþór Spjótsoddur Gæti verið frá 10. öld- inni, segir Ármann Guðmundsson, sérfræðingur á Þjóðminjasafni. „Það vantar ennþá talsvert upp á,“ segir Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður kjaranefndar Ljósmæðra- félags Íslands, við Morgunblaðið og vísar til nýgerðs kjarasamnings ljós- mæðra sem félagið hafnaði í gær. Eins og kom fram á mbl.is hljóðaði nýi samningurinn upp á 4,21 pró- sents launahækkun og innspýtingu fjármagns inn í heilbrigðisstofnanir frá heilbrigðisráðuneytinu. Útlit er fyrir að samningaviðræður muni dragast eitthvað áfram, en eftir helgi mun kjaranefnd Ljósmæðrafélags- ins funda um næstu skref. Hefði viljað gera miklu betur Aðspurð segist Katrín Sif sjálf ekki hafa verið ánægð með samning- inn sem um ræðir. „Við í kjaranefnd- inni vorum komin þarna með mála- miðlun og okkur þótti því rétt að félagsmenn myndu kjósa sjálfir um hana,“ segir Katrín Sif, en tæplega 70% þeirra sem þátt tóku í atkvæða- greiðslunni greiddu atkvæði gegn samningnum. Mögulega fjölgar uppsögnum „Maður getur svo sem gert sér það í hugarlund að uppsögnum muni fjölga frekar en að það dragi úr þeim,“ segir Katrín Sif ennfremur, en fjöldi ljósmæðra hefur þegar sagt upp störfum og munu uppsagnirnar taka gildi 1. júlí næstkomandi. Katrín Sif segir að eðlilega taki þessi barátta á ljósmæður og nefnir að á Landspítalanum muni 19 ljós- mæður ganga út um næstu mánaða- mót ef ekkert breytist. „Það er mjög rafmagnað andrúmsloftið þar,“ segir Katrín Sif og bætir við: „Það eru nokkrar hættar nú þegar. Þetta eru allt konur sem fara út með alveg gríðarlega reynslu.“ teitur@mbl.is Ljósmæður felldu nýja samninginn  Fjöldi ljósmæðra gengur út 1. júlí Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins og formaður efna- hags- og viðskiptanefndar, segir það geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir útgerðir að ekki muni takast að lækka veiðigjöldin á þessu þingi. „Það að hafa ekki náð fram þessum breytingum núna er alvarlegt. Ég vona að það hafi sem minnst áhrif, en ég óttast að þetta hafi afleiðingar í för með sér sem menn verða þá að horfast í augu við því þingið hafði ekki burði til þess að taka málið til efnislegrar meðferðar eins og lagt var upp með hér í síðustu viku. Það var komið í veg fyrir það,“ segir Óli Björn, spurður um líkleg áhrif þess að veiðigjöld haldist óbreytt fram að áramótum. „Það er alveg ljóst að það eru margar útgerðir sem glíma við veru- legan vanda. Afkoman hefur versnað verulega, útflutningsverðmæti eru mun minni heldur en þau voru en veiðigjöldin hafa verið að hækka. Það er frammi fyrir þessum stað- reyndum sem það var rétt og skylt að lækka veiðigjöldin, þ.e.a.s. færa þau nær raunveruleikanum.“ Hann segir nauðsynlegt að horfa til þess að hér sé ekki bara verið að ræða um útgerðir og fiskvinnslu heldur séu fyrirtæki sem þjónusta sjávarútveginn sem eiga mörg hver allt sitt undir að það gangi vel. Veiði- gjöldin hafi einnig bein áhrif á mörg sveitarfélög. „Þetta hefur bein áhrif á sveitarfélögin, áhrif á samfélög lítil og stór, ef útgerðarfyrirtækin berj- ast í bökkum og ég tala nú ekki um ef einhver leggja upp laupana. Það er ekki tilgangur veiðigjaldanna að ganga af útgerðum dauðum, heldur að þau séu greiðsla fyrir réttinn og endurspegli afkomu útgerðarinnar og það er ekki að gerast.“ Kjararáð rætt á mánudaginn Formenn allra flokka sömdu á fimmtudagskvöldið hvaða mál fá af- greiðslu á þingi fyrir þinglok. Óli Björn býst við því að frumvarp um niðurfellingu kjararáðs fari í aðra umræðu á mánudaginn en skipunar- tími núverandi kjararáðs rennur út 30. júní og með lögunum verður ekki skipað nýtt. Ný persónuverndarlög- gjöf verður einnig tekin fyrir í næstu viku og er það stærsta málið sem á eftir að afgreiða á þessu þingi. Per- sónuverndarlöggjöfin er enn í alls- herjar- og menntamálanefnd og mun nefndin funda yfir helgina. Páll Magnússon, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, býst við því að hægt verði að afgreiða málið úr nefnd um eða eftir helgina. Óbreytt veiðigjöld sliga útgerðir  Veiðigjöld hafa hækkað samhliða versnandi afkomu útgerðar  Formaður efna- hags- og viðskiptanefndar telur líklegt að óbreytt veiðigjöld geti haft slæm áhrif Morgunblaðið/Hari Þing Þingmenn vinna nú hörðum höndum að síðustu málunum fyrir þinglok. Langar og þéttar hafísspangir sáust greinilega skammt norður undan Vestfjörðum um hádegi í gær, þegar TF-SIF, flugvél Land- helgisgæslunnar, flaug þar yfir. Ásamt áhöfn voru um borð vís- indamenn frá Veðurstofunni og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands auk blaðamanns og ljósmyndara Morgunblaðsins. Meginbrún hafíssins reyndist liggja um 23 sjómílur frá Kögri. Við jaðarinn reyndist ísinn nokkuð þéttur, en talsvert gisnari þar norð- ur af. Myndarlegur borgarísjaki var innan um ísinn, tæpir tveir hektarar að flatarmáli, en lágur var hann og flatur. Nánar má lesa um flugið á vefsíðu 200 mílna. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ís Í borgarísjakanum sjást rákir eftir vatn, frá því hann var áfastur Grænlandsjökli. Þéttar hafísspangir hjá Vestfjörðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.