Morgunblaðið - 09.06.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.06.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2018 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum áreiðanlegur hitagjafi 10 ára ábyrgð Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fiskvinnslan Íslandssaga á Suður- eyri sagði upp 10 beitningamönnum um mánaðamót. Fyrirtækið áformar að kaupa bát og búnað til að vélbeita á sjó. Það er talið hagkvæmara, sér- staklega vegna hárra veiðigjalda, að sögn framkvæmdastjórans. „Það er orðinn of mikill kostnaður við að gera út á landbeitta línu, eftir að þessi ofurháu veiðigjöld komu til sögunnar,“ segir Óðinn Gestsson, framkvæmdastjóri Íslandssögu. Hann segir það helstu ástæðuna fyr- ir uppsögnunum. Fyrirtækið er að kanna möguleika á að fjárfesta í bát með beitningavél í stað þeirra tveggja báta sem það gerir nú út. Fjórir sjómenn eru á bátunum og þeim var ekki sagt upp. Beitninga- mennirnir hafa mislangan uppsagn- arfrest, flestir þrjá mánuði. Óðinn segir stefnt að því að breytingin verði 1. september, við upphaf nýs fiskveiðiárs. „Það gengur ekki vel,“ segir Óðinn um reksturinn. „Launin eru um 50% af tekjum útgerðarinnar og veiði- gjöldin 12-15%. Við erum með tvo sjómenn og fimm beitningamenn við hvorn bát. Um það bil 7% af tekjum útgerðarinnar fara því í laun hvers manns, samkvæmt þumalputtaregl- unni. Veiðigjöldin þýða að við erum auk þess með tvo menn á sveimi sem við sjáum aldrei en þurfum að borga full laun. Þetta er næsthæsti kostn- aðarliðurinn hjá útgerðinni í dag, á eftir launum,“ segir Óðinn. Laun tveggja manna í veiðigjöld  Íslandssaga segir upp 10 mönnum ingur í bæklunarskurðlækningum, hefur unnið að undirbúningi og skipu- lagningu þessara ráðstefna frá árinu 2015. Ragnar er varaforseti NOF og tekur við sem forseti á fimmtudaginn kemur. Hefur Ragnar undirbúið þetta í samstarfi við Grétar Ottó Róbertsson bæklunarlækni, sem er einn frum- kvöðla í gerð gagnagrunna um gervi- liði. Grétar Ottó sérhæfði sig í bækl- unarlækningum í Svíþjóð. Hann hóf að vinna við sænskan gagnagrunn um gerviliði árið 1991 og tók við sem stjórnandi grunnsins árið 1996. Hann flutti með fjölskylduna heim til Ís- lands árið 2000 og hóf hlutastarf sem bæklunarlæknir á Landspítalanum. Hann hefur síðan áfram stjórnað gagnagrunninum í hlutastarfi í Sví- þjóð. Grétar Ottó segir Svía vera frum- kvöðla í gerð slíkra gagnagrunna. Áður en sænski gagnagrunnurinn fyrir gerviliði varð til 1975 hafi lítið verið vitað um reynslu af gerviliðum. „Menn sáu að hver einstakur lækn- ir myndi aldrei geta metið árangurinn af mismunandi gerviliðum sjálfur. Það þyrfti eitthvað stærra til. Vissir gerviliðir hafa verið slæmir. Þó líður oftast langur tími þar til þeir bila, sem betur fer,“ segir Grétar Ottó um að- dragandann. Hefur breiðst út um heiminn Ragnar segir sænska grunninn hafa verið þann fyrsta í heiminum. „Síðan hefur þetta breiðst út. Þetta byrjaði í hné en síðan hefur mjöðm og aðrir liðir farið í grunnana. Þetta hef- ur breiðst út til Evrópu og síðan Bandaríkjanna, Ástralíu og um allan heim. Svíar hafa verið leiðandi á þessu sviði og Grétar Ottó verið leið- andi sérfræðingur í heiminum. Hann stjórnar hnégagnagrunninum í Sví- þjóð. Grétar Ottó hefur skrifað fjölda vísindagreina um þetta efni og verið leiðbeinandi doktorsnema. Hann er stórt nafn í þessum geira,“ segir Ragnar sem telur kollega sinn of hóg- væran. Ragnar segir marga áhuga- verða fyrirlesara á ráðstefnunum. Einn þeirra muni greina frá merki- legum rannsóknum á Karo- linska-sjúkrahúsinu í Svíþjóð á nýrri meðferð við brotaveiki. Sá sjúkdómur hafi herjað á ættir á Íslandi og lýsi sér í því að fólk beinbrotnar auðveldlega. „Þarna er meðferð í móðurkviði, áður en barnið er fætt, á fóstri, sem er byggð á rannsóknum frá Karolinska. Á Austurlandi er ætt með þennan sjúkdóm og líka í Vestmannaeyjum og á Vopnafirði. Þetta er vandamál sem er erfitt að leysa. Sjúklingarnir brotna mjög oft og það þarf oft að skera þá. Beinin halda illa. Ef það er hægt að lækna þetta á fósturstigi er það algjör bylting.“ Kári Stefánsson tekur til máls Ragnar segir að jafnframt verði fyrirlestrar um erfðafræði og bækl- unarlækningar. Meðal fyrirlesara verði Kári Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar. Þá muni Þorvaldur Ingvarsson bæklunar- læknir kynna rannsóknir sem benda til að tengsl séu milli erfða og slits á krossböndum. Þá muni hollenski vís- indamaðurinn Taco Gosens kynna nýja meðferð við íþróttameiðslum. Þar sé beitt blóðtöku, unnið úr blóð- inu og því sprautað í festur. „Þetta er líka tiltölulega nýlegt. Það er margt nýtt sem kemur fram á þessu þingi.“ Grétar Ottó segir hátt verðlag á Ís- landi hafa fælt þátttakendur frá. „Það hefur verið erfitt að skipuleggja þetta út af verðlaginu. Það bítur verulega á okkur. Við erum að reyna að fá unga lækna til þess að sækja sér menntun en kostnaðurinn hér hefur haft veru- leg áhrif á aðsókn á þinginu. Ég held að ella hefðum við fengið talsvert fleiri þátttakendur. Árið 2004 voru yf- ir 600 þátttakendur en nú eru þeir um 400. Ég held að það sé alveg auðséð að verðlagningin skýrir þetta. Hún er alveg út úr korti. Það er ódýrara að fara á Manhattan með fjölskylduna heldur en að fara til Íslands.“ Kynna nýjungar í læknisfræði  Hundruð bæklunarlækna sækja ráðstefnur í Reykjavík  Einn skipuleggjenda segir hátt verðlag á Íslandi hafa fælt þátttakendur frá  Það sé orðið ódýrara að fara til Manhattan en til Reykjavíkur Morgunblaðið/Hari Læknar Ragnar Jónsson og Grétar Ottó Róbertsson hafa undirbúið þingið. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hundruð bæklunarlækna og rann- sakenda eru nú saman komin í Reykjavík vegna tveggja alþjóðlegra ráðstefna bæklunarlækna sem fram fara á Hilton Hótel Nordica. Sú fyrri, árleg ráðstefna Alþjóða- samtaka gagnagrunna um gerviliða- skráningu (ISAR), hefst í dag og stendur yfir til mánudags. Þar verða meðal annars kynntar rannsóknir sem byggjast á upplýs- ingum gagnagrunna um ísetta gervi- liði og eftirfylgni þeirra. Síðan verður haldin alþjóðleg ráð- stefna bæklunarlækna í norrænum samtökum bæklunarlækna (NOF). Norðurlandaþjóðirnar, Holland, Eist- land og Litháen eiga aðild að þeim samtökum. Ráðstefnan er frá mið- vikudegi til föstudags. Um 5.500 bæklunarlæknar eru fé- lagsmenn í NOF. Námskeið um bakverki Á milli ráðstefnanna fer fram kennslunámskeið um bakverki og bakvandamál á mánudag og þriðju- dag. Þar munu þekktir íslenskir og erlendir fyrirlesarar fjalla um þessi vandamál frá ýmsum hliðum. Ragnar Jónsson, bæklunarlæknir og sérfræð- Þrjú íslensk lið keppa á Evrópumóti í brids, sem haldið er í Oostende í Belgíu. Keppni er hafin í opnum flokki en keppni í kvennaflokki og öldungaflokki hefst á morgun. Í opnum flokki er lokið 10 umferð- um af 33 og er íslenska liðið í 4. sæti. Liðið hefur spilað vel og aðeins tapað einum leik með litlum mun. Í liðinu spila Jón Baldursson, Sigurbjörn Haraldsson, Aðalsteinn Jörgensen, Matthías Þorvaldsson, Ómar Olgeirs- son og Ragnar Magnússon en Anton Haraldsson er fyrirliði. Í kvennaflokki eru 23 lið. Íslenska liðið skipa Anna Ívarsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Anna G. Nielsen, Helga H. Sturlaugsdóttir, María Haralds- dóttir og Stefanía Sigurbjörnsdóttir en fyrirliði er Sveinn R. Eiríksson. Ísland sendir nú í fyrsta skipti lið til keppni í svonefndum öldunga- flokki, en í honum keppa spilarar fæddir 1957 og fyrr. Í íslenska liðinu spila Björn Eysteinsson, Guðmundur Sv. Hermannsson, Haukur Ingason, Þorlákur Jónsson, Karl Sigurhjartar- son og Sævar Þorbjörnsson en Guð- mundur Baldursson er fyrirliði. Mótinu lýkur næsta laugardag. Efstu liðin í öllum flokkunum fá rétt til að keppa á heimsmeistaramóti sem haldið verður á næsta ári. Ísland hef- ur tvisvar spilað í því móti í opnum flokki, 1991 þegar íslenska liðið vann, og 2011 þegar liðið komst í 16 liða úr- slit en tapaði þar fyrir Hollendingum, sem síðan urðu heimsmeistarar. Reynsla Fyrsta öldungalandslið Íslands í brids keppir á EM í Belgíu. Íslandi gengur vel í brids  Þrjú íslensk lið keppa á Evrópu- móti í Belgíu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.