Morgunblaðið - 09.06.2018, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 09.06.2018, Blaðsíða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2018 VIÐAR HÁGÆÐA VIÐARVÖRN Fáanleg í PALLAOLÍU, TRÉVÖRN, GRUNNMÁLNINGU, HÁLFÞEKJANDI og ÞEKJANDI viðarvörn. Litirnir eru fjölmargir og hægt að fá sérblandaða hjá okkur. Komdu til okkar og spurðu um VIÐAR! Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík • Dalshrauni 11, Hafnarfirði • Hafnargötu 54, Reykjanesbæ Gleráreyrum 2, Akureyri • Sími 588 8000 • Opið 8.00–18.00 alla virka daga og 10.00–14.00 alla laugardaga ICQC 2018-20 Söngvaskáldið Svavar Knútur held- ur tónleika í Hannesarholti í dag, laugardag, kl. 16. Flytur hann sí- gildar íslenskar söngperlur með sínu nefi, en meðal efnis eru lög eft- ir Sigfús Halldórsson, Jón Nordal, Pál Ísólfsson og Sigvalda Kalda- lóns. Svavar Knútur sér sjálfur um undirleik á gítar og ukulele. Al- mennt tiðaverð er 3.000 krónur og 2.000 kr. fyrir lífeyrisþega og námsmenn, en frítt er fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Sígildar perlur í Hannesarholti Söngvaskáld Svavar Knútur. Kristjana Stef- ánsdóttir söng- kona kemur ásamt kvartetti sínum fram á öðr- um tónleikum sumardjasstón- leikaraðar veit- ingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu í dag, laugardag, kl. 15. Kvartettinn skipa auk Kristjönu þeir Guðmundur Pétursson á gítar, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Kristofer Rodriguez Svönuson á trommur. Á efnisskránni verða þekkir djassstandardar og önnur uppáhaldslög söngkonunnar í djassútsetningum. Tónleikarnir fara fram utandyra á Jómfrúartorginu. Aðgangur er ókeypis. Kvartett Kristjönu á Jómfrúnni í dag Kristjana Stefánsdóttir. Sönglög Jórunnar Viðar fá kærleiks- ríka meðferð hjá hópi ungra, ís- lenskra tónlistarmanna á tónleik- unum Vökuró – Sönglög Jórunnar Viðar í nýjum litum, sem haldnir verða kl. 20 í Gamla bíói á sunnu- dagskvöld. Saman og hvert í sínu lagi ljá listamennirnir verkum Jór- unnar persónulegan blæ með á stundum óvæntri hljóðfæraskipan og mörgum fögrum söngröddum. Flytjendur á tónleikunum eru: Sóley Stefánsdóttir, Sigríður Thorlacius, Katrína Mogensen, Alexandra Baldursdóttir, Högni Egilsson, Snorri Helgason, Mr. Silla, Ólöf Arnalds, Skúli Sverrisson, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir og Margrét Arnardóttir. Tónleikarnir eru á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Jórunn Viðar, sem lést í fyrra, hefði fagnað aldarafmæli sínu í nóv- ember. Um tveggja áratuga skeið var hún eina konan í Tónskálda- félaginu. Það þótti býsna merkilegt, en sjálf mun hún hafa beðið um að vera ekki kölluð kventónskáld. „Ég tala aldrei um karltónskáld,“ var haft eftir henni. Jórunn nam píanó- leik í Þýskalandi en varð frá að hverfa vegna seinni heimsstyrjald- arinnar. Síðar stundaði hún nám í tónsmíðum við Juilliard í Bandaríkj- unum. Hún var frumkvöðull á sviði ballett- og kvikmyndatónlistar hér á landi auk þess sem hún samdi fjöl- mörg þjóðþekkt sönglög. Yfirskrift tónleika unga fólksins, Vökuró, vísar í ljóð með undurblíðum tóni eftir Jakobínu Sigurðardóttur, sem Jór- unn samdi lag við. Björk söng lagið inn á plötuna Medúlla árið 2004 og þá má segja að lagið hafi orðið frægt á alþjóðavísu. Sönglög Jórunnar í kærleiksbúningi Morgunblaðið/Golli Tónskáldið Jórunn Viðar, sem lést í fyrra, hefði orðið 100 ára í ár. AF TÓNLEIKUM Þorgerður Anna Gunnarsd. thorgerdur@mbl.is Eins oft og drottningin Jessie J tal- aði um hversu mikið hún elskar að syngja hefði kona haldið að hún myndi þá syngja meira á tónleikum sínum í Laugardalshöll á miðviku- dagskvöld, 6. júní. Íslenskir aðdá- endur söngkonunnar höfðu beðið eft- ir henni mánuðum saman eftir að tónleikunum hafði verið frestað vegna þátttöku hennar í hæfileika- keppni í Kína. Þeir þurftu að bíða enn lengur þegar mætt var í Laugar- dalshöll, en dívan steig ekki á svið fyrr en klukkustund eftir að skemmtilegri upphitun Karítasar Hörpu hafði lokið. Söngkona eða lífsstílsþjálfi? Jessie J steig loks á svið og kom inn af ágætum krafti, þó hún hafi hægt talsvert á laginu „Who You Are“. Undirrituð fór einnig á tónleika söngkonunnar þegar hún var hér á landi árið 2015 og þá hafði Jessie J einmitt hægt talsvert á flestum lög- um sínum. Svipað var uppi á ten- ingnum á miðvikudagskvöldið. Raunar fór um helmingur tón- leikanna í sögustund og uppörvandi ræður. Jessie hefur greinilega átt erfitt með að velja á milli þess að verða söngkona eða lífsstílsþjálfi, slíkar voru klisjurnar sem ultu upp úr henni á milli laga. Vissulega er hún mjög góð fyrirmynd ungra stúlkna, sem einmitt voru meirihluti gesta í Laugardalshöll þetta kvöld. Drjúgur tími fór einnig í að leyfa ungum upprennandi söngvurum sem stóðu næst sviðinu að spreyta sig Syngja meira, tala minna Morgunblaðið/Eggert Hress Jessie J var eldhress og talaði mikið á tónleikum sínum í Laugardalshöll. með míkrófóninn og þó að það hafi verið gaman fyrir þau útvöldu verður að segjast að það var ekki mjög gam- an fyrir alla hina. Jessie stóð sig með prýðu á með- an hún söng en að þriggja og hálfrar klukkustundar löngum tónleikum loknum voru eflaust margir fegnir að komast aftur út í blíðviðriskvöldið. Tilfinningaflóð Jessie hreyfði mjög við gest- um með tónum sínum og tali, eins og sjá má. »Drjúgur tími fóreinnig í að leyfa ung- um upprennandi söngv- urum sem stóðu næst sviðinu að spreyta sig með míkrófóninn og þó að það hafi verið gaman fyrir þau útvöldu verður að segjast að það var ekki mjög gaman fyrir alla hina. Stuð Tónleikagestir voru að meirihluta ungar stúlkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.