Morgunblaðið - 09.06.2018, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 09.06.2018, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2018 Elsku Adda mín. Ég veit ekki hvað ég get sagt, en þú ert búin að vera partur af lífi mínu alla ævi. Minningarnar hrannast upp í huga mínum. Við bjuggum á móti hvor ann- arri í Efstasundi og líklegast hittumst við fyrst þegar þú varst í göngutúr með ömmu þinni lítil skotta og hljópst til og ætlaðir að bjarga mér þar sem ég var bundin við snúrustaurinn. Eftir það var ekki aftur snúið og urðum við bestu vinkonur öll uppvaxtarárin. Á unglingsárun- um kynntist þú honum Ingva þínum og með árunum minnkaði sambandið hjá okkur eins og gengur og gerist. Við fylgdumst þó alltaf hvor með annarri í gegnum árin og ef það leið of langur tími á milli, þá hringdum við eða hittumst og það sem við gátum alltaf talað, hlegið eða grátið saman, alltaf var eins og við hefðum hist í gær. Það er líka svo stutt síðan við hittumst síðast og glöddumst saman. Þá ákváðum við að fara reglulega í göngu, en henni verð- um við víst að fresta um sinn. Elsku vinkona, hvað ég á eftir sakna þess að heyra, hitta og knúsa þig. Ég veit að Svana þín og allir hinir hafa tekið vel á móti þér með opinn faðm. Þar til næst. Elsku Ingvi, Anton, Þórður og fjölskyldur, Guð styrki ykkur og blessi. Ykkar vinkona, Guðrún Júlíusdóttir (Gunna). Látin er langt fyrir aldur fram klúbbsystir okkar í Lions- klúbbnum Seylu, Arnrún Antonsdóttir. Við félagar í klúbbnum erum harmi slegnar vegna andláts Öddu, sem lést úti í Berlín eftir stutt veikindi. Hún fór með manni sínum, Ingva, ásamt félögum hans í Lions- klúbbi Álftaness og eiginkonum þeirra í helgarferð til Berlínar, þar sem átti að skoða þessa miklu menningarborg, með hennar miklu sögu og njóta sam- vista við Lions-félaga og vin- kvenna í hennar eigin klúbbi. En það átti ekki eftir að verða. Mikill er missir Ingva, sona hennar, barnabarna hennar og annarra ástvina. Við Lions-konur söknum hennar mikið, stórt skarð er höggvið í okkar litla klúbb, þar sem við höfum séð á bak þremur klúbbsystrum á sex ára sögu klúbbsins okkar, en við munum halda minningu þeirra á lofti um ókomin ár. Adda var ein af stofnfélögum í Lkl. Seylu á Álftanesi. Það var mikill fengur að hafa hana með þegar við lögðum upp í það að stofna klúbbinn. Hún varð fljótt kvödd til ábyrgðarstarfs sem gjaldkeri. Starfaði hún í mörgum nefndum klúbbsins og var alltaf jákvæð og hvetjandi, tilbúin hvort heldur í fjöruhreinsun eða sörubakstur og margt annað sem klúbburinn tók sér fyrir hendur. Ötul var Adda að koma með nýja félaga í klúbbinn og sama dag og hún lést kom inn um bréfalúguna hjá mér bréf frá Al- þjóðaforseta Lions, ásamt silfur- merki til handa henni fyrir fé- lagafjölgun á síðasta starfsári. Adda var varaformaður næsta starfsárs, og hefur hún örugg- Arnrún Antonsdóttir ✝ ArnrúnAntonsdóttir fæddist 24. sept- ember 1958. Hún lést 23. maí 2018. Minningarathöfn um Arnrúnu fór fram 8. júní 2018. lega verið farin að skipuleggja starfs- árið sitt. Hvers vegna er leikn- um lokið? Ég leita, en finn ekkert svar. En finn hjá mér þörf til að þakka þetta, sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Við klúbbsystur hennar þökk- um henni að leiðarlokum fyrir samfylgdina í gegnum árin og biðjum góðan guð að varðveita Ingva, synina Þórð og Anton, fjölskyldur þeirra og aðra að- standendur. F.h. Lionsklúbbsins Seylu, Guðrún H. Össurardóttir. Hver getur siglt þó að blási ei byr, bát sínum róið án ára? Hver getur kvatt sinn kærasta vin, kvatt hann án sárustu tára? Ég get siglt þó að blási ei byr, bát mínum róið án ára. En ekki kvatt minn kærasta vin, kvatt hann án sárustu tára. (Þýð. Hulda Runólfsd. frá Hlíð) Elsku frænka, þetta ljóð lýsir líðan okkar þegar við kveðjum þig í dag. Við sitjum hér saman systk- inin úr Háagerði 29 og rifjum upp liðna tíð, allar stundir sem við höfum átt með ykkur systr- um í Efstasundi 70. Nú hafa Eyrún og Guðrún þurft að kveðja ykkur tvær yngri systur sínar og er það stórt skarð í systrahópinn. Þið systur voruð ekki bara frænkur heldur meira eins og systur okk- ar, þar sem mæður okkar, syst- urnar Jara og Helga, voru mjög nánar og samgangur á milli heimilanna var mikill. Við erum að rifja upp stundir úr jólaboðum, spiladögum, af- mælum, ættarmótum og frábær- um stundum á Skinnalóni og allt eru þetta yndislegar minningar. Í hvert sinn sem við hittumst var knúsast af innileik og því fylgdi þitt fallega bros og dillandi hlát- ur. Í augunum á þér var fallegur glampi af lífsgleði og hlýju að ógleymdri kímni sem smitaði út frá sér. Þín verður sárt saknað úr „systra-ferð“ vorsins og Canasta verður að bíða uns við hittumst á ný. Nú eru þær mæðgur saman á ný en ykkar missir er mikill Elsku Ingvi, Toni, Þórður og fjölskyldur. Guð blessi ykkur og varðveiti. Hákon, Hrafnhildur, Guðrún og Jóhanna. Fallin er frá, óvænt, og fyrir aldur fram góð vinkona okkar hjóna Arnrún Antonsdóttir. Adda eins og hún var oftast köll- uð var á ferðalagi í Berlín þegar hún veiktist skyndilega og lést á sjúkrahúsi þar í borg 23. maí. Við kynntumst Öddu og Ingva fyrir um 25 árum gegnum Lions á Álftanesi og náðum strax vel saman. Þau voru samrýmd hjón, unnu saman í sínu fyrirtæki, voru mjög félagslynd og drífandi í öllu því sem þau tóku sér fyrir hend- ur. Margar skemmtilegar stund- ir koma upp í hugann, matarboð og sumarbústaðarferðir þar sem þau hjónin nutu sín í eldhúsinu, síðan voru gjarnan sungnir skagfirskir slagarar eða gömul ættjarðarlög í lok máltíðar og flesta textana kunni Adda. Hún elskaði að spila lögin hans Sig- fúsar Halldórssonar og syngja með. Adda og Ingvi voru miklir matgæðingar og stofnuðu þeir nokkrir Lionsmenn matarklúbb ásamt okkur konunum þar sem boðið var í skemmtilegar mat- arveislur með tilheyrandi söng og gítarspili. Einnig höfum við undanfarin 20 ár komið saman með góðum vinum og skipst á að halda jólaboð í desember, þessar stundir eru ómetanlegir minn- ingafjársjóðir. Að ferðast með þeim erlendis var mikil skemmt- un, aldrei nein vandamál, bara gleði og jákvæðni hvort sem var ferðast í bíl um Þýskaland eða Ítalíu og gist í litlum þorpum í heimagistingu eða ferðir þar sem var gist á lúxushótelum. Við vinkonurnar tókum okkur til fyrir um 20 árum og keyptum eiginmönnunum að óvörum þriggja vikna ferð til Taílands og Balí, sú ferð var oft rifjuð upp og mikið hlegið að minningunum. Einnig áttum við með þeim skemmtilegar stundir á Flórída fyrir tveimur árum ásamt vinum okkar Hilmari og Elínborgu en Elínborg Lionsvinkona okkar lést skömmu síðar langt fyrir aldur fram. Adda er ein af stofn- félögum í Lionsklúbbnum Seyla á Álftanesi. Þar naut hún sín og bauð sig gjarnan fram til verka, hún var gjaldkeri klúbbsins á fyrstu árunum og oftar en einu sinni í skemmtinefnd því konur eins og Adda eru ómissandi á þeim vettvangi. Ef klúbbkonur voru beðnar að taka að sér verk- efni var hún yfirleitt fyrst til að bjóða sig fram. Hennar verður sárt saknað af okkur í Seylu. Sárastur er þó söknuður Ingva og fjölskyldunnar sem hafa misst svo mikið og svo skyndi- lega bæði dóttur og eiginkonu á innan við tveimur árum en Svana, dóttir Öddu og Ingva lést í september 2016. Adda var máttarstólpi fjöl- skyldunnar og bar hag Ingva, barnanna og barnabarnanna fyrst og fremst fyrir brjósti og sá til þess að allir hefðu það sem best en gleymdi sjálfri sér svolít- ið í allri umhyggjunni þessi elska. Við komum til með að sakna og syrgja Öddu um ókom- in ár. Við biðjum almættið að styrkja fjölskyldu hennar sem hefur misst svo mikið og vitum að hún hefur fengið góðar mót- tökur frá dóttur, systur, foreldr- um og ættingjum í Sumarland- inu. Rut og Bragi. Adda okkar er látin, það er fjölskyldunni allri mikið áfall. Hún barðist hetjulegri baráttu í rúmar þrjár vikur á sjúkrahúsi í Berlín. Við vorum alltaf svo viss um að hún kæmi heim með okkur. Adda varð hluti af fjölskyld- unni fyrir rúmum 45 árum síðan, þá aðeins fimmtán ára. Hún vann hug og hjörtu allra í fjöl- skyldunni. Við hittum Öddu í fyrsta skiptið þegar hún kom með Ingva að passa börnin okk- ar. Ingvi taldi öruggara að hafa hana með því hún kunni að skipta um bleyjur og var svo lag- in með börn. Strax daginn eftir spurði Sigfús sonur okkur hve- nær þau kæmu aftur að passa. Adda hafði einstakt lag á börnum, hún spilaði við þau, púslaði og fór í leiki. Adda stjórnaði ófáum barnaafmælum í fjölskyldunni, þar var hún í ess- inu sínu og hreif alla með sér í leikinn. Öll börn sem kynntust henni elskuðu hana. Adda og Ingvi eignuðust börnin sín þrjú á fjórum árum Anton, Þórð og Svönu. Oft á tíð- um var nóg gera hjá Öddu en aldrei kvartaði hún. Adda var einstaklega lagin í höndunum, hún saumaði og prjónaði föt á krakkana. Hún fór til að mynda á saumanámskeið og saumaði dragt á sig og jakka- föt á Ingva. Ég man að kenn- arinn hafði á orði að margir hefðu sótt þetta námskeiðið en Adda var fyrsta manneskjan til að sauma jakkaföt. Adda var úrræðagóð ef halda átti veislu hvort sem var að elda eða bera fram matinn enda hafði hún notið leiðsagnar hjá Tona pabba sínum, sem var bryti. Þegar komið var að því að ganga frá eftir veisluna þá var Adda fljótust allra og allt komið á rétt- an stað á svipstundu. Það var ekkert verkefni of stórt fyrir hana Öddu. Alltaf var mikill samgangur á milli heimila okkar, fyrst á Sauð- árkróki og síðar á Álftanesinu. Við eigum margar góðar minn- ingar frá jólum, áramótum og ferðalögum með fjölskyldum okkar bæði hér heima og erlend- is. Þar var alltaf glatt á hjalla og góður matur á borðum enda miklir sælkerar þar á ferð. Adda og Ingvi unnu mikið saman, fyrst ráku þau Bláfell á Sauð- árkróki og síðan stofnuðu þau og ráku Bílaspítalann í Hafnarfirði. Adda sá um bókhaldið og fjár- málin og þar var allt í röð og reglu eins hennar var von og vísa. Þegar barnabörnin fæddust þá fékk Adda nýtt hlutverk og þar naut hún sín til fullnustu. Hún hlakkaði til sumarsins sem hún ætlaði að verja í sumarbú- staðnum með barnabörnunum sínum. Missir þeirra er mikill. Andlát Svönu, sem lést fyrir tæpum tveimur árum, var þeim Öddu og Ingva afar þungbært. Karen Líf, dótturdóttir þeirra, dvaldi reglulega hjá ömmu sinni og afa og var afar kært á milli þeirra, enda er Karen Líf lifandi eftirmynd móðir sinnar, vel gef- in, skemmtileg og yndisleg í alla staði. Innilegar samúðarkveðjur til Ingva, Antons, Þórðar, Karenar og fjölskyldna þeirra. Hvíl þú í friði, elsku vinkona, þín verður sárt saknað. Guð blessi þig. Kveðja, Stefanía og Snorri. HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HELGA AÐALSTEINSDÓTTIR, Austurbyggð 17, (Hlíð) Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar sunnudaginn 3. júní. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 18. júní klukkan 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtökin í Hlíð. Sigurður Reynir Gunnarsson Erla Sveinsdóttir Kristín Gunnarsdóttir Birgir Skjóldal Guðlaug Guðjónsdóttir Anna Bára Gunnarsdóttir Svanur Kristófersson Gunnar Páll Gunnarsson Guðríður Sveinmarsdóttir Viðar Gunnarsson Arna Geirsdóttir Garðar Gunnarsson Harpa Hrönn Gunnarsdóttir Sigurður Ágústsson Helga Skjóldal Guðmundur Ísidórsson Gunnar Skjóldal Ómarsson Yvette Trolle Ómarsson Aníta Gunnarsdóttir Skjóldal Benedikt Karlsson ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn Elskulegur eiginmaður minn, bróðir og mágur, VILHJÁLMUR FRIÐÞJÓFSSON, Gullsmára 7, Kópavogi, lést á heimili sínu laugardaginn 26. maí. Útför fer fram frá Fíladelfíu í Reykjavík þriðjudaginn 12. júní klukkan 13. Herdís Eyþórsdóttir Steinunn Erla Friðþjófsdóttir Björn Ingólfsson Hallveig Friðþjófsdóttir Tonni Christiansen Jóna Lísa Þorsteinsdóttir og aðrir aðstandendur Okkar ástkæra GUÐRÚN GARÐARSDÓTTIR, Langagerði 7, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ mánudaginn 4. júní. Útförin verður auglýst síðar. Bjarni Kristinsson Erlín Guðbjörg Bjarnadóttir Guðmundur Torfason Ásta Bjarnadóttir Brynjólfur Gunnarsson Kristinn Bjarnason Anna Sigríður Blöndal Bjarney Bjarnadóttir Bjarki Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur okkar, stjúpsonur, bróðir, barnabarn og systursonur, VIKTOR ARNARSSON, Nýlendugötu 15 A, Reykjavík, lést 26. maí. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 12. júní klukkan 15. María Dís Cilia Arnar Sigurbjartsson Unnur Malín Sigurðardóttir Alexander Arnarsson Cilia Andri Freyr Arnarsson Unnsteinn Magni Arnarsson Margrét Guðmundsdóttir Ása Jónsdóttir Sigurbjartur Helgason Ivon Stefán Cilia Harpa Cilia Ingólfsdóttir Victor Guðmundur Cilia Solveig Óladóttir Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARNFRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, lést fimmtudaginn 31. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Skólabraut og á Grund fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót. Guðmundur Örn Ingólfsson Sóley Ingólfsdóttir Auður Anna Ingólfsdóttir Anna Auður Ingólfsdóttir Helga Arnfríður Haraldsdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.