Morgunblaðið - 09.06.2018, Side 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2018
Elsku Adda mín.
Ég veit ekki hvað
ég get sagt, en þú
ert búin að vera
partur af lífi mínu alla ævi.
Minningarnar hrannast upp í
huga mínum.
Við bjuggum á móti hvor ann-
arri í Efstasundi og líklegast
hittumst við fyrst þegar þú varst
í göngutúr með ömmu þinni lítil
skotta og hljópst til og ætlaðir að
bjarga mér þar sem ég var
bundin við snúrustaurinn.
Eftir það var ekki aftur snúið
og urðum við bestu vinkonur öll
uppvaxtarárin. Á unglingsárun-
um kynntist þú honum Ingva
þínum og með árunum minnkaði
sambandið hjá okkur eins og
gengur og gerist. Við fylgdumst
þó alltaf hvor með annarri í
gegnum árin og ef það leið of
langur tími á milli, þá hringdum
við eða hittumst og það sem við
gátum alltaf talað, hlegið eða
grátið saman, alltaf var eins og
við hefðum hist í gær.
Það er líka svo stutt síðan við
hittumst síðast og glöddumst
saman. Þá ákváðum við að fara
reglulega í göngu, en henni verð-
um við víst að fresta um sinn.
Elsku vinkona, hvað ég á eftir
sakna þess að heyra, hitta og
knúsa þig. Ég veit að Svana þín
og allir hinir hafa tekið vel á
móti þér með opinn faðm.
Þar til næst.
Elsku Ingvi, Anton, Þórður og
fjölskyldur, Guð styrki ykkur og
blessi.
Ykkar vinkona,
Guðrún Júlíusdóttir (Gunna).
Látin er langt fyrir aldur
fram klúbbsystir okkar í Lions-
klúbbnum Seylu, Arnrún
Antonsdóttir. Við félagar í
klúbbnum erum harmi slegnar
vegna andláts Öddu, sem lést úti
í Berlín eftir stutt veikindi. Hún
fór með manni sínum, Ingva,
ásamt félögum hans í Lions-
klúbbi Álftaness og eiginkonum
þeirra í helgarferð til Berlínar,
þar sem átti að skoða þessa
miklu menningarborg, með
hennar miklu sögu og njóta sam-
vista við Lions-félaga og vin-
kvenna í hennar eigin klúbbi.
En það átti ekki eftir að
verða. Mikill er missir Ingva,
sona hennar, barnabarna hennar
og annarra ástvina.
Við Lions-konur söknum
hennar mikið, stórt skarð er
höggvið í okkar litla klúbb, þar
sem við höfum séð á bak þremur
klúbbsystrum á sex ára sögu
klúbbsins okkar, en við munum
halda minningu þeirra á lofti um
ókomin ár.
Adda var ein af stofnfélögum í
Lkl. Seylu á Álftanesi. Það var
mikill fengur að hafa hana með
þegar við lögðum upp í það að
stofna klúbbinn.
Hún varð fljótt kvödd til
ábyrgðarstarfs sem gjaldkeri.
Starfaði hún í mörgum nefndum
klúbbsins og var alltaf jákvæð og
hvetjandi, tilbúin hvort heldur í
fjöruhreinsun eða sörubakstur
og margt annað sem klúbburinn
tók sér fyrir hendur.
Ötul var Adda að koma með
nýja félaga í klúbbinn og sama
dag og hún lést kom inn um
bréfalúguna hjá mér bréf frá Al-
þjóðaforseta Lions, ásamt silfur-
merki til handa henni fyrir fé-
lagafjölgun á síðasta starfsári.
Adda var varaformaður næsta
starfsárs, og hefur hún örugg-
Arnrún
Antonsdóttir
✝ ArnrúnAntonsdóttir
fæddist 24. sept-
ember 1958. Hún
lést 23. maí 2018.
Minningarathöfn
um Arnrúnu fór
fram 8. júní 2018.
lega verið farin að
skipuleggja starfs-
árið sitt.
Hvers vegna er leikn-
um lokið?
Ég leita, en finn ekkert
svar.
En finn hjá mér þörf til
að þakka
þetta, sem eitt sinn
var.
(Starri í Garði)
Við klúbbsystur hennar þökk-
um henni að leiðarlokum fyrir
samfylgdina í gegnum árin og
biðjum góðan guð að varðveita
Ingva, synina Þórð og Anton,
fjölskyldur þeirra og aðra að-
standendur.
F.h. Lionsklúbbsins Seylu,
Guðrún H. Össurardóttir.
Hver getur siglt þó að blási ei byr,
bát sínum róið án ára?
Hver getur kvatt sinn kærasta vin,
kvatt hann án sárustu tára?
Ég get siglt þó að blási ei byr,
bát mínum róið án ára.
En ekki kvatt minn kærasta vin,
kvatt hann án sárustu tára.
(Þýð. Hulda Runólfsd. frá Hlíð)
Elsku frænka, þetta ljóð lýsir
líðan okkar þegar við kveðjum
þig í dag.
Við sitjum hér saman systk-
inin úr Háagerði 29 og rifjum
upp liðna tíð, allar stundir sem
við höfum átt með ykkur systr-
um í Efstasundi 70.
Nú hafa Eyrún og Guðrún
þurft að kveðja ykkur tvær
yngri systur sínar og er það
stórt skarð í systrahópinn. Þið
systur voruð ekki bara frænkur
heldur meira eins og systur okk-
ar, þar sem mæður okkar, syst-
urnar Jara og Helga, voru mjög
nánar og samgangur á milli
heimilanna var mikill.
Við erum að rifja upp stundir
úr jólaboðum, spiladögum, af-
mælum, ættarmótum og frábær-
um stundum á Skinnalóni og allt
eru þetta yndislegar minningar.
Í hvert sinn sem við hittumst var
knúsast af innileik og því fylgdi
þitt fallega bros og dillandi hlát-
ur. Í augunum á þér var fallegur
glampi af lífsgleði og hlýju að
ógleymdri kímni sem smitaði út
frá sér.
Þín verður sárt saknað úr
„systra-ferð“ vorsins og Canasta
verður að bíða uns við hittumst á
ný.
Nú eru þær mæðgur saman á
ný en ykkar missir er mikill
Elsku Ingvi, Toni, Þórður og
fjölskyldur.
Guð blessi ykkur og varðveiti.
Hákon, Hrafnhildur,
Guðrún og Jóhanna.
Fallin er frá, óvænt, og fyrir
aldur fram góð vinkona okkar
hjóna Arnrún Antonsdóttir.
Adda eins og hún var oftast köll-
uð var á ferðalagi í Berlín þegar
hún veiktist skyndilega og lést á
sjúkrahúsi þar í borg 23. maí.
Við kynntumst Öddu og Ingva
fyrir um 25 árum gegnum Lions
á Álftanesi og náðum strax vel
saman.
Þau voru samrýmd hjón, unnu
saman í sínu fyrirtæki, voru
mjög félagslynd og drífandi í öllu
því sem þau tóku sér fyrir hend-
ur. Margar skemmtilegar stund-
ir koma upp í hugann, matarboð
og sumarbústaðarferðir þar sem
þau hjónin nutu sín í eldhúsinu,
síðan voru gjarnan sungnir
skagfirskir slagarar eða gömul
ættjarðarlög í lok máltíðar og
flesta textana kunni Adda. Hún
elskaði að spila lögin hans Sig-
fúsar Halldórssonar og syngja
með.
Adda og Ingvi voru miklir
matgæðingar og stofnuðu þeir
nokkrir Lionsmenn matarklúbb
ásamt okkur konunum þar sem
boðið var í skemmtilegar mat-
arveislur með tilheyrandi söng
og gítarspili. Einnig höfum við
undanfarin 20 ár komið saman
með góðum vinum og skipst á að
halda jólaboð í desember, þessar
stundir eru ómetanlegir minn-
ingafjársjóðir. Að ferðast með
þeim erlendis var mikil skemmt-
un, aldrei nein vandamál, bara
gleði og jákvæðni hvort sem var
ferðast í bíl um Þýskaland eða
Ítalíu og gist í litlum þorpum í
heimagistingu eða ferðir þar
sem var gist á lúxushótelum.
Við vinkonurnar tókum okkur
til fyrir um 20 árum og keyptum
eiginmönnunum að óvörum
þriggja vikna ferð til Taílands og
Balí, sú ferð var oft rifjuð upp og
mikið hlegið að minningunum.
Einnig áttum við með þeim
skemmtilegar stundir á Flórída
fyrir tveimur árum ásamt vinum
okkar Hilmari og Elínborgu en
Elínborg Lionsvinkona okkar
lést skömmu síðar langt fyrir
aldur fram. Adda er ein af stofn-
félögum í Lionsklúbbnum Seyla
á Álftanesi. Þar naut hún sín og
bauð sig gjarnan fram til verka,
hún var gjaldkeri klúbbsins á
fyrstu árunum og oftar en einu
sinni í skemmtinefnd því konur
eins og Adda eru ómissandi á
þeim vettvangi. Ef klúbbkonur
voru beðnar að taka að sér verk-
efni var hún yfirleitt fyrst til að
bjóða sig fram. Hennar verður
sárt saknað af okkur í Seylu.
Sárastur er þó söknuður Ingva
og fjölskyldunnar sem hafa
misst svo mikið og svo skyndi-
lega bæði dóttur og eiginkonu á
innan við tveimur árum en
Svana, dóttir Öddu og Ingva lést
í september 2016.
Adda var máttarstólpi fjöl-
skyldunnar og bar hag Ingva,
barnanna og barnabarnanna
fyrst og fremst fyrir brjósti og
sá til þess að allir hefðu það sem
best en gleymdi sjálfri sér svolít-
ið í allri umhyggjunni þessi
elska. Við komum til með að
sakna og syrgja Öddu um ókom-
in ár. Við biðjum almættið að
styrkja fjölskyldu hennar sem
hefur misst svo mikið og vitum
að hún hefur fengið góðar mót-
tökur frá dóttur, systur, foreldr-
um og ættingjum í Sumarland-
inu.
Rut og Bragi.
Adda okkar er látin, það er
fjölskyldunni allri mikið áfall.
Hún barðist hetjulegri baráttu í
rúmar þrjár vikur á sjúkrahúsi í
Berlín. Við vorum alltaf svo viss
um að hún kæmi heim með
okkur.
Adda varð hluti af fjölskyld-
unni fyrir rúmum 45 árum síðan,
þá aðeins fimmtán ára. Hún
vann hug og hjörtu allra í fjöl-
skyldunni. Við hittum Öddu í
fyrsta skiptið þegar hún kom
með Ingva að passa börnin okk-
ar. Ingvi taldi öruggara að hafa
hana með því hún kunni að
skipta um bleyjur og var svo lag-
in með börn. Strax daginn eftir
spurði Sigfús sonur okkur hve-
nær þau kæmu aftur að passa.
Adda hafði einstakt lag á
börnum, hún spilaði við þau,
púslaði og fór í leiki. Adda
stjórnaði ófáum barnaafmælum í
fjölskyldunni, þar var hún í ess-
inu sínu og hreif alla með sér í
leikinn. Öll börn sem kynntust
henni elskuðu hana.
Adda og Ingvi eignuðust
börnin sín þrjú á fjórum árum
Anton, Þórð og Svönu. Oft á tíð-
um var nóg gera hjá Öddu en
aldrei kvartaði hún.
Adda var einstaklega lagin í
höndunum, hún saumaði og
prjónaði föt á krakkana. Hún fór
til að mynda á saumanámskeið
og saumaði dragt á sig og jakka-
föt á Ingva. Ég man að kenn-
arinn hafði á orði að margir
hefðu sótt þetta námskeiðið en
Adda var fyrsta manneskjan til
að sauma jakkaföt.
Adda var úrræðagóð ef halda
átti veislu hvort sem var að elda
eða bera fram matinn enda hafði
hún notið leiðsagnar hjá Tona
pabba sínum, sem var bryti.
Þegar komið var að því að ganga
frá eftir veisluna þá var Adda
fljótust allra og allt komið á rétt-
an stað á svipstundu.
Það var ekkert verkefni of
stórt fyrir hana Öddu.
Alltaf var mikill samgangur á
milli heimila okkar, fyrst á Sauð-
árkróki og síðar á Álftanesinu.
Við eigum margar góðar minn-
ingar frá jólum, áramótum og
ferðalögum með fjölskyldum
okkar bæði hér heima og erlend-
is.
Þar var alltaf glatt á hjalla og
góður matur á borðum enda
miklir sælkerar þar á ferð. Adda
og Ingvi unnu mikið saman,
fyrst ráku þau Bláfell á Sauð-
árkróki og síðan stofnuðu þau og
ráku Bílaspítalann í Hafnarfirði.
Adda sá um bókhaldið og fjár-
málin og þar var allt í röð og
reglu eins hennar var von og
vísa.
Þegar barnabörnin fæddust
þá fékk Adda nýtt hlutverk og
þar naut hún sín til fullnustu.
Hún hlakkaði til sumarsins sem
hún ætlaði að verja í sumarbú-
staðnum með barnabörnunum
sínum. Missir þeirra er mikill.
Andlát Svönu, sem lést fyrir
tæpum tveimur árum, var þeim
Öddu og Ingva afar þungbært.
Karen Líf, dótturdóttir þeirra,
dvaldi reglulega hjá ömmu sinni
og afa og var afar kært á milli
þeirra, enda er Karen Líf lifandi
eftirmynd móðir sinnar, vel gef-
in, skemmtileg og yndisleg í alla
staði.
Innilegar samúðarkveðjur til
Ingva, Antons, Þórðar, Karenar
og fjölskyldna þeirra.
Hvíl þú í friði, elsku vinkona,
þín verður sárt saknað. Guð
blessi þig.
Kveðja,
Stefanía og Snorri.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
HELGA AÐALSTEINSDÓTTIR,
Austurbyggð 17, (Hlíð) Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar sunnudaginn
3. júní.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 18. júní
klukkan 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Hollvinasamtökin í Hlíð.
Sigurður Reynir Gunnarsson Erla Sveinsdóttir
Kristín Gunnarsdóttir
Birgir Skjóldal Guðlaug Guðjónsdóttir
Anna Bára Gunnarsdóttir Svanur Kristófersson
Gunnar Páll Gunnarsson Guðríður Sveinmarsdóttir
Viðar Gunnarsson Arna Geirsdóttir
Garðar Gunnarsson
Harpa Hrönn Gunnarsdóttir Sigurður Ágústsson
Helga Skjóldal Guðmundur Ísidórsson
Gunnar Skjóldal Ómarsson Yvette Trolle Ómarsson
Aníta Gunnarsdóttir Skjóldal Benedikt Karlsson
ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn
Elskulegur eiginmaður minn, bróðir
og mágur,
VILHJÁLMUR FRIÐÞJÓFSSON,
Gullsmára 7, Kópavogi,
lést á heimili sínu laugardaginn 26. maí.
Útför fer fram frá Fíladelfíu í Reykjavík
þriðjudaginn 12. júní klukkan 13.
Herdís Eyþórsdóttir
Steinunn Erla Friðþjófsdóttir Björn Ingólfsson
Hallveig Friðþjófsdóttir Tonni Christiansen
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir
og aðrir aðstandendur
Okkar ástkæra
GUÐRÚN GARÐARSDÓTTIR,
Langagerði 7,
Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
mánudaginn 4. júní.
Útförin verður auglýst síðar.
Bjarni Kristinsson
Erlín Guðbjörg Bjarnadóttir Guðmundur Torfason
Ásta Bjarnadóttir Brynjólfur Gunnarsson
Kristinn Bjarnason Anna Sigríður Blöndal
Bjarney Bjarnadóttir Bjarki Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær sonur okkar, stjúpsonur, bróðir,
barnabarn og systursonur,
VIKTOR ARNARSSON,
Nýlendugötu 15 A, Reykjavík,
lést 26. maí.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 12. júní klukkan 15.
María Dís Cilia
Arnar Sigurbjartsson Unnur Malín Sigurðardóttir
Alexander Arnarsson Cilia Andri Freyr Arnarsson
Unnsteinn Magni Arnarsson
Margrét Guðmundsdóttir
Ása Jónsdóttir Sigurbjartur Helgason
Ivon Stefán Cilia Harpa Cilia Ingólfsdóttir
Victor Guðmundur Cilia Solveig Óladóttir
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ARNFRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 31. maí. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á
Skólabraut og á Grund fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót.
Guðmundur Örn Ingólfsson
Sóley Ingólfsdóttir
Auður Anna Ingólfsdóttir
Anna Auður Ingólfsdóttir
Helga Arnfríður Haraldsdóttir
og fjölskyldur