Morgunblaðið - 09.06.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.06.2018, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ríkisstjórningafst uppog bakkaði í vikunni frá mál- um sínum við minnsta mótbyr. Litlum minnihluta á þingi er leyft að taka völdin og eft- ir situr veikari ríkisstjórn sem hefur sýnt slíkt stefnu- og forystuleysi að erfitt er að sjá að hún muni ná tökum á því verkefni sem henni hefur verið falið. Á sama tíma og ríkis- stjórnin sýnir þessi veik- leikamerki gerist það – og ef til vill má segja að það sé önnur birtingarmynd veik- leikans – að heilbrigðis- ráðherra rekur af mikilli óbilgirni stefnu sem ekki verður séð að samstarfs- flokkarnir í ríkisstjórnar- samstarfinu hafi skrifað upp á. Heilbrigðisráðherrann er kominn í stríð við einkarekst- ur í heilbrigðiskerfinu og virðist hafa einsett sér að nýta tímann í ráðuneytinu til að þrengja eins og kostur er að einkarekinni heilbrigðis- starfsemi. Eitt fórnarlamb stefnu ráðherrans er forstjóri Sjúkratrygginga Íslands sem er að hætta eftir að ráð- herrann ákvað að auglýsa starf hans laust til umsóknar og honum var orðið ljóst að hann yrði ekki endurráðinn. Um leið undirbýr ráð- herrann að auka umsvif hins ríkisrekna kerfis á kostnað einkarekinnar þjónustu, þó að ljóst megi vera að hag- kvæmt sé að reka hluta heil- brigðiskerfisins utan stóra ríkisspítalans. Formaður Læknafélags Reykjavíkur og formaður Samtaka heilbrigðisfyrir- tækja lýsa áhyggjum sínum af þessari þróun mála í grein í Morgunblaðinu í gær. Þar benda þeir á að sjálfstætt starfandi sérfræðilæknar á rammasamningi við Sjúkra- tryggingar hafi sinnt 500.000 heimsóknum í fyrra. Á sama tíma hafi göngudeild Land- spítala og Heilsugæsla höfuð- borgarsvæðisins tekið samanlagt við 494.000 heim- sóknum. Þrátt fyrir þessi miklu umsvif einkageirans taki starfsemi sérfræðilækn- anna aðeins til sín um 6% af heildarútgjöldum til heil- brigðisþjónustunnar, enda sé sérfræðiþjónustan vel rekin. Læknarnir tveir benda einnig á að samningur sér- fræðilækna við Sjúkratrygg- ingar renni út um næstu áramót og að læknar hafi án árangurs kallað eftir áætlun ráð- herrans hvað samninginn varð- ar. Þeir hafi svo fengið vísbendingu í sjónvarpsfrétt þar sem fram hafi komið að ráðherrann telji samninginn til óþurftar og að stórfelld uppbygging göngudeilda sjúkrahúsanna sé það sem koma skuli í stað- inn. Þetta gangi þvert á þró- un í öðrum löndum og ekkert liggi fyrir um hvernig eigi að brúa bilið. Útlit er sem sagt fyrir að ráðherrann sé að setja kerfið í uppnám, sjúk- lingum að sjálfsögðu til ama, í þeim tilgangi að þrengja að einkarekstri og auka ríkis- rekstur. Í fyrradag ræddi Morgun- blaðið við tvo aðra lækna sem einnig starfa í einkarekna hluta heilbrigðiskerfisins og settu nýlega upp sérhæfðu meðferðarstöðina Corpus Medica. Þeir benda á að einkarekstur í heilbrigðis- kerfinu geti sparað mikið fé, enda sé kostnaðarvitund meiri. Þessir læknar eru meðal þeirra sem ekki hafa fengið samning við Sjúkra- tryggingar en benda á að slíkur samningur sé ekki fyr- ir læknana sjálfa heldur sjúk- lingana. Sjúklingarnir eigi rétt á endurgreiðslunum, en í umræðunni sé búið að snúa hlutunum á hvolf og segja að þetta sé samningur fyrir meðferðaraðilana. Það er mikið til í þessu og ef til vill myndi umræðan um þessi mál batna ef þau yrðu meira rædd út frá hagsmunum sjúklinga og minna út frá fordómum í garð þeirra heilbrigðisstarfs- manna sem kjósa að starfa í einkageiranum. Þó að margt megi vissulega bæta er íslenska heilbrigðis- kerfið í grunninn mjög gott og með því að auka svigrúm sjálfstætt starfandi lækna og fyrirtækja á heilbrigðissviði má nýta fjármuni enn betur og byggja upp framúrskar- andi heilbrigðiskerfi hér á landi. Hættan er þó sú, að heilbrigðisráðherra fái áfram óáreittur að brjóta niður kerfið og laga það að kredd- um um að ríkið eitt megi veita heilbrigðisþjónustu. Fari svo mun þjónustan versna mjög og fórnarlömbin verða þá þeir sem leita þurfa þjónustu heilbrigðiskerfisins; allur al- menningur í landinu. Hefur heilbrigðis- ráðherra stuðning samstarfsflokkanna til að brjóta niður einkareksturinn?} Kredda ráðherra og veikleiki ríkisstjórnar Í vikunni opinberuðust aftur fyrir okk- ur kerfisvillur í íslensku stjórn- og velferðarkerfi. Við fengum enn einu sinni að heyra sögur hugrakkra kvenna sem stigu fram með sögur sín- ar af alvarlegu heimilisofbeldi sem þær máttu þola. Af reynslu minni sem lögmaður get ég staðfest að þær sögur sem við heyrum nú af erfiðleikum við að losna úr slíkum ofbeldis- samböndum eru ekkert einsdæmi. Það er öll- um ljóst hvers kyns þjóðfélagsmein heimilis- ofbeldi er og því verður kerfið okkar, lög og reglur, framkvæmd stjórnvalda og rétt- arkerfið að virka til bjargar þeim sem út úr slíkum hörmungum sleppa. Að brjótast út úr ofbeldissambandi er af- skaplega flókið og þá þarf að tryggja að reglur og kerfið þvælist ekki fyrir og tefji úrlausn. Það þarf mikið hugrekki til að standa upp, segja frá og bjarga sér og börnum úr slíkum aðstæðum því framtíðin er í fullkominni óvissu. Ganga þarf frá lögformlegum atriðum eins og skilnaði, forsjá barna og eignaskiptum. Þetta þarf að afgreiða hjá sýslumönnum og þar er víða pottur brotinn. Í fyrsta lagi er málsmeðferðartími allt of langur vegna manneklu. Í öðru lagi lúta ofbeldismál engri sérstakri flýtimeðferð heldur fara einfaldlega neðst í bunkann. Ofbeldið heldur áfram, eins og við fengum að heyra af í vikunni, þegar of- beldismaðurinn frestaði stöðugt afgreiðslu máls hjá sýslumanni. Þetta hef ég margsinnis séð í störfum mínum, hvernig hægt er að fresta stöðugt af- greiðslu með því að afboða fundi, skila seint eða illa inn gögnum, fá sífellt lengri fresti og loks óska eftir sífellt fleiri tímum í sátta- meðferð með þeim sem beittur var ofbeldi. Ef ekki næst samkomulag um skilnað, forsjá og eignaskipti þá er málinu vísað frá og leita þarf úrlausnar dómstóla. Þar er málsmeðferð- artíminn ekkert styttri. Þetta má einnig sjá í umgengnismálum, þar sem fólk kemst allt of oft upp með að tefja, fresta fundum og þannig viðhalda ómögulegu ástandi. Á bak við slíkt mál sem dregst mánuðum og árum saman er fjölskylda sem þarf að halda áfram með líf sitt, oft á algjörlega nýjum stað án skýrrar framtíðar. Þegar framkvæmd eignaskipta og ákvörðunar um forsjá í kjölfar ofbeldis- sambands eru svo mikið undir ofbeldis- manninum komin er ljóst að kerfið verður að koma til að- stoðar af meiri festu. Það verður að koma í veg fyrir að ofbeldið haldi áfram og bregðast hratt við og minnka þannig þjáningar fjölskyldna. Við þurfum að taka þetta kerfi til endurskoðunar sem fyrst. Það er ýmislegt hvort tveggja í barnalögum sem og hjúskaparlögum sem þarfnast endurskoðunar og það er okkar að fara í það á þinginu. Ég lofa mínu liðsinni við verkið en skora einnig á stjórnvöld að efla þau embætti sem með málefnin fara. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Ofbeldið verður að víkja Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen erum gífurlega sátt og ánægð,“ segir Ari Kristinn. HR rataði á dögunum í 89. sæti á lista Times Higher Educa- tion yfir hundrað bestu unga háskóla í heiminum í dag. Ari segir viður- kenninguna mikla og hún feli í sér hvata til að gera enn betur og halda áfram að efla háskólann. Eldri hópur á Bifröst Í Háskólanum á Bifröst er ljóst að einhver fjölgun hefur orðið milli ára. Vilhjálmur Egilsson, rektor Há- skólans á Bifröst, segir ljóst að fjölga muni töluvert í grunnnáminu, þó töl- ur liggi ekki enn ljósar fyrir þar sem enn sé opið fyrir umsóknir. Nú sé þó vitað að fjöldi umsókna í framhalds- nám er svipaður og í fyrra eða um 200. Hans reynsla er sú að ekki sé alltaf að marka heildarfjölda um- sókna. „Við sjáum að margir sækja um á nokkrum stöðum og hafa ekki tekið lokaákvörðun með haustið. Þá verða nemendur að mæta okkar við- miðum um inntöku.“ Spurður hvort þeir hafi gert sérstakar ráðstafanir vegna aukins fjölda útskrifaðra nem- enda úr menntaskólunum segir Vil- hjálmur svo ekki vera. „Mjög stór hluti af þeim sem sækja um hjá okk- ur eru eldri nemendur. Meðalaldur er milli þrítugs og fertugs, svo að margir okkar nemenda hafa ein- hvern tíma tekið sér hlé frá námi. Svo við eigum ekki von á að stór hópur flæði til okkar núna.“ Metfjöldi umsókna í háskólunum í ár Morgunblaðið/Ómar Háskólasamfélag Margir sýna háskólum landsins athygli í ár. Ljóst er að háskólarnir leitast við að koma til móts við fjölbreyti- leika atvinnulífsins og nýjar námsleiðir endurspegla að miklu leyti flóru atvinnulífsins í dag. Morgunblaðið greindi frá því í vikunni að Háskólinn á Akureyri byði nú upp á sérhæfingu í kennslufræðum sem snýr að raf- rænum kennsluháttum og tækni. Háskólinn í Reykjavík hefur boð- ið upp á námsleiðir í haftengdri nýsköpun og stjórnun og forystu í ferðaþjónustu. Þá býður Há- skólinn á Bifröst nú upp á sér- hæfingu í samfélagsmiðlum og markaðssamskiptum og við- skiptagreind á viðskiptasviði sínu. „Það verður spennandi að sjá hverjir velja að leggja leið sína í slíkt nám,“ segir rektor Há- skólans á Bifröst. Rektor HÍ segir aldrei fleiri hafa sótt um í rafmagns- og tölvu- verkfræði, þar sem fjölgaði um 40% milli ára. Aukin fjöl- breytni í námi NÚTÍMALEGAR NÁMSKRÁR Jón Atli Benediktsson SVIÐSLJÓS Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Fjölgun umsókna í háskólalandsins er meiri en vonvar á. Í ár munu margirframhaldsskólar útskrifa tvo stúdentahópa, sem útskýrir að einhverju leyti þessa metaðsókn í há- skóla landsins. Ákveðið var að stytta nám framhaldsskólanna í þrjú ár frá og með hausti 2015. Í ár kemur því upp sú sérstaka staða að margir framhaldsskólanna útskrifa nú tvo hópa nemenda, en um er að ræða bæði þá sem ljúka við þriggja ára nám og einnig þann síðasta hóp nem- enda sem stunda nám í fjögur ár. Mesta fjölgun frá hruni Fjölgun í grunnnámi við Há- skóla Íslands var 12% milli ára, sem er ein mesta fjölgun sem skólinn hef- ur séð. 5.000 umsóknir bárust í grunnnám og 3.200 í framhaldsnám, sem er 12,5% aukning. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Ís- lands, segir að ekki hafi verið slík fjölgun umsókna við skólann frá því fyrir hrun. „Þetta er ekki metár, en eftir hrun fór fjöldi umsókna aðeins yfir 9.000, en þá höfðum við allar dyr opnar og tókum við stórum hópi nemenda. En þetta er mjög stórt.“ Jón Atli segir háskólann vera í stakk búinn til að taka við slíkum fjölda en það muni reynast áskorun. „Þetta er bara verkefni sem við tökum alvar- lega og við munum gera okkar besta til að mæta fjölguninni innan fjárlaga og þeirra fjármuna sem okkur er út- hlutað. Þetta mun auðvitað reyna á starfsfólk og innviði en við teljum okkur geta leyst þetta verkefni.“ Fjölgun var í flestum deildum en at- hygli vakti að í leikskólafræði var fjölgunin 60% og menntavísindin eru almennt í sókn. ,,Ánægjuleg þróun og nauðsynleg,“ segir Jón Atli. Metfjöldi í HR Yfir 3.000 umsóknir hafa borist Háskólanum í Reykjavík sem er metfjöldi í skólanum. Fjölgunin er heilt yfir 11% milli ára. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykja- vík, segir tölurnar hafa komið sér á óvart. „Vegna aðstæðna áttum við von á fjölgun en ekki endilega þess- ari fjölgun. Sérstaklega höfum við verið ánægð með mikla fjölgun í framhaldsnámi hjá okkur en þar fjölgaði umsóknum um 19%. Svo við

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.