Morgunblaðið - 09.06.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.06.2018, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2018 Hestaleikur Nú þegar grænka tún, hvort sem úrkoma eða sól hefur meiri áhrif þar á, kætast ferfætlingar. Þessi ágætu hross léku listir sínar í þokunni undir Akrafjalli. Hari Senn eru þrír ára- tugir liðnir frá falli Sovétríkjanna sem var annar stólpi kalda stríðsins. Kapítalism- inn stóð eftir sem sigurvegari og auð- menn, glæpalýður og lukkuriddarar létu greipar sópa um rúss- neskt samfélag, fyrir- tæki og auðlindir. Jelz- ín sem tók við 1991 eftir Gorbatsjoff varð fljótt óvinsæll og afsalaði sér völdum í árslok 1999, þrotinn að heilsu og bað þjóðina afsökunar á viðskilnaðinum. Við tók Vladimir Pútin, sem síðan hefur verið ráðandi ýmist sem forseti eða forsætisráð- herra í þessu víðlendasta ríki jarðar, nú nýlega kjörinn forseti þess á ný með sögulegum kosningasigri. Eftir yfirtöku Rússlands á Krímskaga og átök í austanverðri Úkraínu samein- uðust Vesturveldin um viðskipta- hindranir gegn Rússum og hafa ný- lega bætt um betur út af meintri aðild rússneskra stjórnvalda að eiturefnaárás á Skripal-feðginin í Bretlandi. Sannanir liggja þar hins vegar ekki fyrir og málið er afar vandræðalegt. Rússum var árið 2014 vikið úr samráðshópi helstu stór- velda, nú G-7 ríkjahópnum, og Obama fyrrum forseti afskrifaði Rússland sem afgangsstærð (e. regional power). Þessi staða og viðbrögð, studd af forystu Nató sem aukið hefur hern- aðarumsvif sín að landamærum Rúss- lands, sætir nú vaxandi gagnrýni í röðum stjórnmálamanna á Vesturlöndum, sem telja einangrunar- stefnu gagnvart Rúss- landi hvorki þjóna friði né framtíð- arhagsmunum. Um þetta vitnar m.a. mikil umræða sem nú á sér stað meðal Þjóðverja. Þýskaland og ESB klofið í afstöðu til Rússa Innan Evrópusambandsins er nú deilt um margt, ekki síst um stefn- una gagnvart Rússlandi. Í nýrri ríkisstjórn Merkel eru uppi ólík sjónarmið, innanríkisráðherrann Seehofer, formaður CSU í Bæjara- landi, er andsnúinn áframhaldandi viðskiptaþvingunum gegn Rússum og einnig sumir í flokki kanslarans. Erfiðast er málið fyrir sósíal- demókrata þar sem ekki hefur tekist að sætta öndverð sjónarmið. Fyrr- um flokksformaður og utanríkis- ráðherra, Sigmar Gabriel, vildi hætta viðskiptaþvingunum en arf- takar hans Andrea Nahles nýr for- maður krata og Heiko Maas nýr utanríkisráðherra vilja halda þeim áfram þvert á afstöðu meirihluta flokksmanna. Frank-Walter Stein- meier, nú forseti Þýskalands og fyrr- um utanríkisráðherra, varaði nýlega eindregið við ört breikkandi gjá milli Vesturlanda og Rússlands. Þótt allir segist vilja halda talsambandi við Moskvu segir nýr sendiherra Rússa í Berlín að staðan milli ríkjanna sé nú verri en á dögum kalda stríðsins. Þetta gerist þótt nýleg skoðana- könnun Forsa-stofnunarinnar sýni að yfir 90% Þjóðverja vilji sjá góð samskipti milli ríkjanna og 68% telji rangt að ganga hart fram gegn Rússum, þar af yfir 80% flokksbund- inna krata (Der Spiegel nr. 19. maí 2018). Þar á bæ á stefna Willy Brandts djúpar rætur en hann breytti og mildaði afstöðu Þýska- lands til austurs í tíð Sovétríkjanna. Brestir í grunnstoðum Vesturveldanna Allt frá því Donald Trump settist við stýri í Hvíta húsinu hafa komið í ljós brestir í grunnstoðum Vestur- veldanna, bæði innbyrðis sem og í af- stöðu til heimsmála, þar á meðal gagnvart Rússum og Kínverjum og nú síðast varðandi samkomulagið við Íran. Ár er liðið síðan Merkel lét þau orð falla eftir fund G-7 ríkja að Evrópubúar gætu ekki lengur reitt sig á Bandaríkin. Síðan hefur stein- um í þessari götu fjölgað til muna, nú síðast með ákvörðunum Bandaríkja- forseta um tolla sem jafngilda við- skiptastríði. Heimsóknir Macrons og Merkel til Washington nýverið hafa komið fyrir ekkert, hvort sem um er að ræða samninginn við Írani um kjarnavopn eða að undanskilja ESB innflutningstollum. Á þetta mun reyna enn frekar á boðuðum fundi æðstu manna G-7 ríkjanna í lok þessarar viku (8.-9. júní). Í umræðu- þætti Presseclub um liðna helgi voru allir þýsku viðmælendurnir fimm talsins sammála um að taka ætti Rússland á ný inn í G-7 hópinn. Eng- in vandamál muni leysast án þátt- töku Rússa. Ætlar Ísland áfram að styðja viðskiptahindranir? Í skýrslu Guðlaugs Þórs Þórðar- sonar utanríkisráðherra til Alþingis í apríl síðastliðnum segir meðal annars: „Áratugahefð er fyrir mikl- um samskiptum milli Íslendinga og Rússa á sviði viðskipta og menning- ar. Viðskiptahindranir vegna Úkraínudeilunnar hafa haft mikil áhrif á viðskipti við Rússland og hefur útflutningur á fiskafurðum nær þurrkast út, en það voru mest loðna, makríll og síld. Eitt helsta forgangsverkefni sendiráðsins síð- ustu misseri hefur verið að bregðast við þessari erfiðu stöðu.“ Í máli ráð- herrans kom þá fram að „öllum tví- hliða fundum með rússneskum ráðamönnum og háttsettum emb- ættismönnum hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Af þeirri ákvörðun leiðir að íslenskir ráða- menn munu ekki sækja heims- meistaramótið í knattspyrnu í Rússlandi á komandi sumri“. – Fróðlegt er að bera þessa afstöðu saman við niðurstöðu blaðamanna Der Spiegel þegar þeir staðhæfa: „Pútin stefnir ekki að endurreisn Sovétríkjanna. Hann vill að Vest- urveldin virði rússneska hagsmuni og viðurkenni Rússland sem stór- veldi og gildan þátttakanda á al- þjóðasviði. Það hefur Pútín sýnt fram á í Sýrlandi.“ Er það að minnsta kosti ekki umræðunnar virði hér eins og í Þýskalandi, hvort við séum á réttri braut? Eftir Hjörleif Guttormsson » Frank-Walter Stein- meier, forseti Þýskalands og fyrrum utanríkisráðherra, var- aði nýlega eindregið við ört breikkandi gjá milli Vesturlanda og Rúss- lands. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Er Rússland „óvinurinn“ eða til samstarfs fallið? Ríkisfjármálaáætlun 2019-2023 liggur til grundvallar fjárheim- ildum mismunandi málaflokka. Nú þegar hún er til umræðu finnst mér mikilvægt að staldra við og skoða þróun framlaga á mik- ilvægum málefna- sviðum sem heyra und- ir mennta- og menn- ingarmálaráðuneytið. Fjárheimildir framhalds- skólastigsins voru auknar verulega á þessu ári, um rúma 1,2 milljarða frá fyrra ári, þær munu halda áfram að hækka miðað við ríkisfjár- málaáætlun, eða um 4,3% að raunvirði frá árinu 2017 til 2023. Framlög á hvern árs- nema á framhalds- skólastigi halda líka áfram að hækka, þau hækkuðu um 6,5% frá fyrra ári og gert er ráð fyrir 8% hækkun á næsta ári, miðað við að hækkun á málefnasvið- inu fari í rekstur framhaldsskól- anna. Áætlanir gera alls ráð fyrir 18,5% hækkun að raunvirði á hvern ársnemanda á tímabilinu 2017-2023, úr 1.338.000 kr. í 1.586.000 kr. Undanfarin ár hafa framlög til há- skólastigsins verið aukin töluvert. Framlögin jukust um 15,2% að nafn- virði milli áranna 2016 og 2018 en vísbendingar eru um að sú aukning sé umfram það sem gerst hefur í öðrum Evrópuríkjum. Ráðgert er að fjárveitingar til háskólastigsins muni halda áfram að aukast og hækki upp í 47,2 milljarða kr. árið 2023, sem þá er vöxtur upp á tæp 12% á tímabilinu. Heildarframlög til málaflokks menningar-, lista-, æskulýðs- og íþróttamála jukust um 1,5 milljarða króna að raunvirði milli áranna 2017 og 2018, eða um 12%. Ríkisfjármála- áætlun 2019-2023 gerir ráð fyrir að útgjaldasvigrúm málefnasviðsins muni haldast í því horfi út tímabilið. Að auki gefur ríkið eftir umtals- verðar skatttekjur þegar virðis- aukaskattur á bækur verður afnum- inn í byrjun árs 2019. Ekki liggur fyrir ennþá hversu mikil tekju- minnkun ríkissjóðs verður vegna þessa og margar breytur geta haft áhrif á þá endanlegu fjárhæð. Vonir standa til þess að þessi aðgerð muni hafa jákvæða keðjuverkun í för með sér fyrir bæði íslenska útgáfu og aðra menningarneyslu. Sem ráðherra fagna ég áhuga allra á þróun mennta- og menn- ingarmála í landinu og einnig þeim ríka samvinnuvilja sem ég skynja á vettvangi minna starfa. Hvoru tveggja er okkur mikilvægt til að ná þeim metnaðarfullu markmiðum sem við höfum sett okkur. Rétt skal vera rétt Eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur Lilja Dögg Alfreðsdóttir » Sem ráðherra fagna ég áhuga allra á þró- un mennta- og menn- ingarmála í landinu og einnig þeim ríka sam- vinnuvilja sem ég skynja á vettvangi minna starfa. Höfundur er mennta- og menningar- málaráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.