Morgunblaðið - 09.06.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2018
Sæbjúgu innihalda mikið kollagen og yfir 50
tegundir af næringarefnum sem hafa öll mjög
jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans
ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLA: Framleiðandi sæbjúgna er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fást á arcticstar.is
.
Arctic Star sæbjúgnahylki fást í flestum apótekum og heilsubúðum og í Hagkaupum.
Arctic Star Sæbjúgnahylki
Sæbjúgu
eru þekkt fyrir:
• Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið og mótstöðu
líkamans gegn ýmsum sjúkdómum
• Að auka blóðflæði sem minnkar líkur á blóðtappa
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla
að myndun húðpróteins
og insúlíns
Ljósmynd/Magni
Fyrsti leikur Fjöldi fólks mætti á fyrsta heimaleik Magna í sumar þegar liðið tók á móti Þrótti Reykjavík í blíð-
skaparveðri fyrr í vikunni. Liðið þurfti þó að lúta í lægri haldi en lokatölur voru 4-1 eftir jafnan leik framan af.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Þetta var unnið í sjálfboða-vinnu á kvöldin og í frí-tíma fólks héðan úrGrenivík og nágrenni,“
segir Heimir Ásgeirsson, eigandi
Eyjabita og einn bakhjarla knatt-
spyrnuliðsins Magna, um nýja
stúku félagsins sem tekin var í
notkun fyrr í vikunni. Magni hefur
undanfarin ár leikið í neðri deild-
um á Íslandi en komst í fyrra upp í
næstefstu deild í fyrsta sinn frá
árinu 1978, en þar er gerð krafa
um ákveðna stærð af stúku.
Alls tekur stúkan nú um 380
manns í sæti og rúmar því alla íbúa
Grýtubakkahrepps og rúmlega
það, en íbúar hreppsins eru 372
talsins. Heimir segir að það hafi
tekið um tvær vikur að reisa stúk-
una með aðstoð fjölda velunnara
félagsins.
620 klukkustundir af vinnu
„Það voru sex smiðir sem
unnu á kvöldin og í öllum sínum
frítíma við að reisa stúkuna með
góðri hjálp félagsmanna. Þess utan
héldum við eitt vinnukvöld þar sem
um 30 manns mættu, bæði gamlir
leikmenn Magna og íbúar í
bænum. Í heildina held ég að þetta
hafi verið um 620 klukkustundir af
vinnu. Efnið fengum við frá Byko
og Eyjabiti sá síðan um gámana
sem hýsa fjölmiðlamenn,“ segir
Heimir sem telur að ef verkið hefði
verið boðið út hefði kostnaður ver-
ið í kringum 15 milljónir króna.
Spurður um hvort stúkan sé
ekki of stór fyrir jafnlítinn bæ og
Grenivík segir Heimir að í fyrsta
leik hafi það sýnt sig að svo er
ekki.
„Í fyrsta leik á móti Þrótti
Reykjavík var stúkan þéttsetin og
mikil stemning. Næst er síðan ná-
grannaslagur á móti Þór Akureyri
og það er alveg klárt að það verður
fullt á þeim leik og rúmlega það,“
segir Heimir.
Heitur pottur í VIP-stúkunni
Nýlega kom fram hugmynd um
að búa til svokalla heiðursstúku við
hlið nýju stúkunnar, þar sem nú er
lítil geymsla. Þar yrði komið fyrir
heitum potti þar sem fólk gæti setið
og fylgst með leikjum liðsins. Á
þaki geymslunnar sem um ræðir er
pallur sem áður var hugsaður sem
aðstaða fyrir fjölmiðlamenn. Að-
spurður segir Heimir að sér hafi
verið bent á þessa hugmynd en hún
sé þó ekki á dagskrá á næstunni.
„Þetta var hugmynd sem fjöl-
miðlamenn að sunnan komu með og
ég heyrði nú bara fyrst af þessu
fyrir nokkrum dögum. Maður vill
ekki fara að lofa upp í ermina á sér
enda er þetta ekkert sem maður er
farinn að hugsa út í. Allur kraftur-
inn fór í að byggja þessa stúku en
svo veit maður aldrei í framtíðinni,“
segir Heimir, en framundan hjá
Magnamönnum er bygging nýs
vallarhúss. Hingað til hafa klefar
sundlaugar bæjarins verið notaðir
sem aðstaða fyrir knattspyrnuliðið
þegar leikir fara fram.
„Þegar leikir fara fram er
sundlauginni lokað auk götunnar
frá sundlauginni að vallarstæðinu.
Næst á dagskrá hjá okkur er því að
reisa aðstöðuhús við hlið vallarins
svo að sundlaugin geti verið opin og
ekki þurfi að loka götunni,“ segir
Heimir.
Reistu stúku
sem rúmar
alla íbúana
Íbúar Grýtubakkahrepps reistu í sameiningu nýja
stúku fyrir knattspyrnulið hreppsins, Magna. Stúkan,
sem reist var á um tveimur vikum, tekur nú 380
manns í sæti en íbúarnir eru 372 talsins. Heimamenn
eru sannfærðir um að um heimsmet sé að ræða.
Undirbúningur Jafnt ungir sem
aldnir komu að verkinu.
Vinna Margir íbúar Grenivíkur lögðu hönd
á plóg þegar kom að vinnu við stúkuna. Það
tók rétt rúmlega tvær vikur að reisa stúkuna.
Bláa lóns þrautin eða Blue Lagoon
Challenge, stærsta fjallahjólakeppni
ársins, fer fram í 22. skiptið í dag. Um
700 þátttakendur eru skráðir í
keppnina en þeir munu hjóla 60 kíló-
metra leið, frá Völlunum í Hafnarfirði,
um Reykjanesið og að bílastæðum
Bláa lónsins í Svartsengi í Grindavík.
Búast má við æsispennandi keppni
í ár en Ingvari Ómarssyni, Íslands-
meistara í fjallahjólreiðum, er spáð
velgengni.
Einnig má búast við harðri sam-
keppni í kvennaflokki en Anna Kristín
Sigurpálsdóttir sigraði í fyrra. Var þá
rétt rúma 2 tíma að hjóla kílómetrana
sextíu. Auk Önnu eru margar af bestu
hjólakonum landsins skráðar til leiks
sem og Vilborg Arna Gissurardóttir
pólfari.
Bláa lónið styrkir þátttöku Hjóla-
krafts og rennur allur ágóði keppn-
innar til uppbyggingar á starfi Hjól-
reiðafélags Reykjavíkur. Keppnin er
ræst kl. 19.40 frá Ásvallalaug í
Hafnarfirði. Hópurinn hjólar saman í
lögreglufylgd um 3 km til suðurs, þar
sem tímataka hefst.
700 þátttakendur eru skráðir í Bláa lóns þrautina
60 kílómetra hjólaleið og búast
má við afar spennandi keppni
Bláa lóns þraut Tekið verður á rás í stórbrotnu umhverfi á Reykjanesskaganum.