Morgunblaðið - 09.06.2018, Page 32

Morgunblaðið - 09.06.2018, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2018 ✝ ÞorvaldurJónsson fædd- ist á Hólmum í Reyðarfirði 4. júní 1944. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaup- stað 30. maí 2018. Þorvaldur var sonur hjónanna Jóns Kristins Guð- jónssonar frá Kol- múla, Kolfreyju- staðarsókn, f. 5. júní 1906, d. 6. desember 1987, og Þóru Guð- nýjar Snædal Jónsdóttir frá Vopnafirði, f. 5. október 1910, d. 12. ágúst 1994. Þorvaldur átti níu systkini, þau eru: Ragn- hildur, f. 1929, d. 2017, Guðjón Þórdísi Björk Björnsdóttur og eiga þau tvær dætur Maríönnu Rögnu og Bergdísi Fjólu. 2) Margrét, f. 11.6. 1968, í sambúð með Elíasi Jónssyni og eiga þau þrjú börn; Víking Trausta, Þor- vald Má og Henný Marín, barnabarn Salka Dröfn. 3) Guð- björg Harpa, f. 6.8. 1971, gift Sævari Inga Sverrissyni og eiga þau tvö börn; Fjölni Frey og Emblu Dögg. 4) Hólmar Karl Þorvaldsson, f. 15.4. 1978, í sambúð með Heiðu Stein- grímsdóttir. Barnsmóðir Hólm- ars er Gunnþóra Valdís Gunn- arsdóttir, börn þeirra eru Kristín Ilmur og Dagur Karl. Stjúpdætur Hólmars eru Unnur Þóra Sigurðardóttir og Sigrún Eir Sigurðardóttir. Útförin fer fram frá Reyðar- fjarðarkirkju í dag, 9. júní 2018, klukkan 14. Einar, f. 1931, d. 2015, Kristinn Ill- ugi, f. 1932, d. 1939, Jón Snædal, f. 1933, d. 2011, Gísli, f. 1935, d. 1998, Helga Ósk, f. 1949, d. 2018, eft- irlifandi eru Guðni Þór, f. 1936, Krist- ín Selma, f. 1938, og Auðbergur, f. 1943. Þorvaldur kvæntist eftirlif- andi eiginkonu sinni Fjólu Jónsdóttur, f. 30. júlí 1947 frá Auðsbergi á Fáskrúðsfirði, 31. desember 1970. Börn þeirra eru: 1) Guðni Kristinn Þor- valdsson, f. 23.6. 1967, giftur Okkur langar að minnast elsku pabba okkar. Nú er komið að síðustu kveðjustund margs er að minnast og hugurinn leitar aftur í tímann. Allar útilegurnar sem við fórum í á rauða Saab- inum með toppgrindina hlaðna af dóti, appelsínugult plast yfir og toppgrindateygju. Þannig var brunað af stað í ferðalög og úti- legur með stóra Tjaldborgar- tjaldið, dásamlegar minningar. Pabbi var ansi lunkinn á harm- onikkuna og settist hann oft nið- ur og spilaði á nikkuna, okkur og sér til skemmtunar, hann kunni orðið lagið á okkur krökkunum, þegar allt var í háalofti hjá okkur systkinunum átti hann til að setj- ast niður og byrja að spila og alltaf náði hann að róa okkur nið- ur með tónlistinni, mamma segir nú að hann hafi byrjað að spila til að heyra ekki lætin í okkur. Oft settumst við niður hjá honum og fengum að ýta á eina og eina nótu, hjálpa aðeins til við spila- mennskuna ekki þótti okkur það leiðinlegt, fannst næstum eins og við kynnum að spila smá. Pabba féll sjaldan verk úr hendi og vann hann alltaf mikið til að sjá fyrir fjölskyldunni, og ýmsir vin- ir og kunningjar leituðu alltaf til hans til að fá aðstoð við viðgerð á bílum og fleiri. Hann var mjög handlaginn maður og gat gert allt. Foreldar okkar byggðu hús- ið sem við fluttum í 1978 og má segja að þau hafi að mestu byggt það allt sjálf. Eftir fullan vinnu- dag fóru kvöld og helgar í það að brasa í nýja húsinu og fengum við systkinin alltaf að hjálpa til og var pabbi duglegur við að setja okkur fyrir verkefni og kenna okkur hvernig ætti að vinna hlutina og hefur það verið gott veganesti fyrir okkur út í lífið. Húsið þeirra pabba og mömmu ber vott um það hversu dugleg þau voru hvort sem það var viðhald á húsinu eða að rækta garðinn og mega þau vera stolt af því, enda var það erfið ákvörðun þegar þau ákváðu að selja húsið. Það var eins og þau hefðu verið að gefa frá sér barnið sitt. Síðustu þrjú ár hafa verið pabba erfið, eftir að hann fékk krabbamein og missti heilsuna er það búið að taka á hjá honum. Erum við þakklát fyrir ferðina sem næstum öll fjölskyldan fór- um saman í júní 2017 í, tilefni 70 ára afmæli mömmu er við fórum í tveggja vikna ferð til Austur- ríkis, Ítalíu og Þýskalands og áttum við góðan tíma saman þó að ferðin hafi verið pabba erfið var hann mjög ánægður með þessa ferð. Hann sagði fyrir mánuði að líklega færum við ekki í aðra ferð í sumar en elsku pabbi er farinn í annað ferðalag. Erum við þakklát mömmu fyr- ir hvað hún hugsaði vel um pabba í veikindum hans og sagði pabbi fyrir nokkrum vikum að Fjóla væri besta hjúkrunar- konan. Missir mömmu er mikill og biðjum við góða guð að styrkja hana og styðja í sorginni. Guðni, Margrét (Magga), Guðbjörg og Hólmar. Elsku afi við kveðjum þig í síð- asta sinn með þessum fátæklegu orðum og þökkum fyrir allt sem þú gerði fyrir okkur og þær stundir sem við áttum saman. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Blessuð sé minning þín, afi okkar. Elsku amma, missir þinn er mikill guð gefi þér styrk og styðji í sorginni. Fjölnir Freyr og Embla Dögg. Enn er höggvið skarð í hóp sveitunga og vina, enn einu sinni hefur sami vágestur lagt að velli enn eitt Hólmasystkinanna, sem ég kýs að kalla svo. Þar og á Eskifirði áttu þau svo langa veru, barnahópurinn hressi og bráðvel greindi. Foreldrar þeirra áttu einkar farsæla ævi- göngu, þar sem dugnaðurinn skilaði þeim svo vel á veg fram, stefnufestunni fékk ég heldur betur vel kynnst, félagshyggju- fólk vel til vinstri, sem alltaf mátti treysta á og þessi stefnu- festa skilaði sér svo sannarlega áfram til ljómandi afkomenda. Í dag kveðjum við Þorvald Jónsson, þann mæta dugnaðar- dreng hinna ágætustu hæfileika, sem bæði var vinsæll og vel lát- inn. Mér verður hugsað til ársins 1978, en þá hélt Alþýðubanda- lagið heima forval með mikilli og góðri þátttöku. Úrslit voru ótví- ræð, þar fóru tveir ungir og vaskir menn fremst: Þorvaldur Jónsson og Árni Ragnarsson og unnu glæsilegan sigur, urðu svo langhæsta framboðið og fjórum árum seinna varð Alþýðubanda- lagið aftur sigurvegari og enn frekar raunar, því nú flaug hún Nína inn ásamt þeim. Hlutur Þorvaldar í þessum sigrum var geysilega mikill, ótrúlegasta fólk fylkti sér um listann, fann þar einmitt sína fulltrúa til að fylgja og Þorvaldur aflaði fylgis á ótrú- legustu miðum. Hann var enda góður málafylgjumaður þó ekki færi hátt og náði ýmsu mætu fram með þeirri elskulegu ýtni sem oft dugar bezt til margra góðra verka. Hann sat lengi í sveitarstjórninni heima á Reyð- arfirði, jafnhliða því að vera verkstjóri allra framkvæmda heima og þar var að mörgu að hyggja. Þetta fórst honum einkar vel úr hendi enda forsjáll og verkhagur og einstaklega vel liðinn af samstarfsmönnum. Hann var samvizkusamur og sanngjarn vel, enda í þannig starfi í nærumhverfi sveitung- anna þar sem vandalaust var ýmsum að finna að. Þorvald var alltaf jafngott að hitta, glaðsinna og ekki má ég gleyma því hversu góður dansmaður hann var, það var yndi að sjá þau Fjólu á dans- gólfinu í Félagslundi. Honum var falinn mikill trúnaður auk sveitarstjórnarmálanna heima, því hann var lengi formaður FOSA, Félags opinberra starfs- manna á Austurlandi og rækti það af þeirri miklu trúmennsku sem honum var ætíð huga næst. Það gladdi alltaf geð okkar Hönnu að hitta þau Þorvald og Fjólu, enda var hún systir al- beztu vinkonu Hönnu, hennar Dubbu sem dó svo langt fyrir aldur fram. Lífslán hans Þor- valdar okkar var innsiglað af hans indælu og dugmiklu eigin- konu, sem stóð við hlið hans til hinztu stundar. Svo alltof fljótt er að kveðju- stund komið, en kallið mikla varð ekki umflúið eftir harða baráttu við illvíga meinsemd. Við Hanna sendum henni Fjólu, börnum þeirra hjóna og aðstandendum öðrum okkar saknaðar- og samúðarkveðjur. Dugmikill drengur kveður eft- ir dáðríkt starf þar sem margir eiga mikla þökk að gjalda. Hans er sannlega saknað í heima- byggð. Blessuð sé vorbjört minning Þorvaldar Jónssonar. Helgi Seljan. Þorvaldur Jónsson Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í inn- sendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomulag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ALBERT RÚNAR ÁGÚSTSSON, Miðnestorgi 3, Sandgerði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 26. maí. Útförin hefur farið fram. Aðstandendur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TRAUSTI BJÖRNSSON, Aðalgötu 5, Keflavík, áður til heimilis að Smáratúni 40, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 1. júní. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, Áslaug Hilmarsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN B. BJÖRNSDÓTTIR, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í faðmi fjölskyldunnar þriðjudaginn 5. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Guðmundur Bergsson Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJARNHEIÐUR GÍSLADÓTTIR, frá Hausthúsum lést umvafin ástvinum sínum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands miðvikudaginn 6. júní. Auðbjörg Friðgeirsdóttir Úlfar Ragnarsson Þórarinn M. Friðgeirsson Ásdís H. Júlíusdóttir Arnar Þ. Friðgeirsson Guðjón Viggósson og fjölskylda ömmu og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI JÓNSSON rafvirkjameistari, Freyvangi 20, Hellu, lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 5. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar. Esther Markúsdóttir Svava Þuríður Árnadóttir Jón Árnason Sigurður Grétar Árnason Sandra Árnadóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, HAFSTEINN SIGURVINSSON múrari, Vesturbraut 11, Keflavík, lést á Landspítalanum v/Hringbraut, laugardaginn 2. júní. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 13. júní klukkan 11. Þóra Kristrún Hafsteinsd. Þórarinn Pétursson Hanna Dís Hafsteinsdóttir Friðrik Þór Steingrímssson Fríður Hilda Hafsteinsdóttir Gunnar Stígur Reynisson afabörn og systkini

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.