Morgunblaðið - 09.06.2018, Page 41

Morgunblaðið - 09.06.2018, Page 41
Víkverji fór á fyrirlestur með JonKabat-Zinn í Hörpu, en Kabat- Zinn lagði fyrstur manna grunn að iðkun núvitundar í læknisfræði og sálfræði okkar daga. Víkverji var bú- inn að bíða spenntur eftir þessum fyrirlestri og langaði að fá innblástur til að fá meiri núvitund í líf sitt. x x x Ekki byrjaði það vel. Fyrirlesturinnhófst klukkan 19 og það endaði á því að vera talsvert stress hjá Vík- verja að ná í tæka tíð enda nóg að gera í vinnu og heima en það tókst að gefa börnum að borða og setjast nið- ur í Silfurbergi í tíma. Stressið yfir- tók allt og það hefði áreiðanlega verið gott að kunna að vera meira í núinu og sáttur við sjálfan sig á þessum tímapunkti. x x x Kabat-Zinn hefur skilgreint núvit-undarhugleiðslu sem „meðvit- undina sem kemur frá því að veita at- hygli, viljandi, á núlíðandi stund án þess að dæma“. Hann fékk gesti til þess að beina athyglinni inn á við um stund, nokkuð sem er mjög kærkom- ið í nútímasamfélagi og sérstök upp- lifun að sitja í þögn með öllu þessu fólki. x x x Það sem er merkilegt við hann ereinmitt það að hann vill ekki vera merkilegri en aðrir. Hann hefur náð ótrúlega miklum árangri í sínu starfi og líta mjög margir upp til hans. Hann vill samt ekki vera dýrkaður. Í fyrirspurn eftir fyrirlesturinn komu upp umræður um Donald Trump Bandaríkjaforseta og hvernig hann komst til valda. Hluti af því er að fólk skipar sér í hópa; það sjálft og hina, en það er það sem er svo hættulegt. Hinir eru þá eitthvað sem er öðruvísi, eitthvað til að óttast, og hrætt fólk getur gert alls konar vitleysu. x x x Þetta snýst nefnilega ekki um okk-ur og hina, fólk er fljótt að flokka allt niður í andstæður og sér þá ekk- ert nema andstæðinga. Lands- byggðin og Reykvíkingar, mið- borgarbúar og úthverfafólk. Þetta er óþarfi, við búum hér öll saman, í sama landi og á sömu jörð. vikverji@mbl.is Víkverji DÆGRADVÖL 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2018 Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi. Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú mátt eiga von á einhverju óvæntu í vinnunni í dag. Mundu að það getur tekið nokkur ár að ávinna sér traust en ekki nema nokkrar mínútur að brjóta það niður. 20. apríl - 20. maí  Naut Heillandi hugmyndir og geislandi gáfur einkenna þig í dag. Þú þarft að læra að nýta þér þann eiginleika sem fær fólk til þess að opna hjarta sitt fyrir þér 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú skalt forðast það sem heitan eldinn að gera áætlanir með vinum og kunn- ingjum í dag. Reyndu því ekki að troða mál- um þínum áfram. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur lofað upp í ermina á þér og sérð nú fram á að geta ekki staðið við orð þín nema biðja um aðstoð. Láttu ekki aðra fara í taugarnar á þér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert á öndverðum meiði gagnvart ættingja og þarft að hafa hemil á skapi þínu ef þú vilt ekki að allt fari úr böndunum. Við- brögðin munu koma þér á óvart. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Einhver sem gerði á hluta þinn á eftir að biðja þig afsökunar. Ef þú finnur til óánægju skaltu ekki byrgja hana innra með þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það gengur ekki að drottna einn yfir öllu, þegar um samstarf við aðra er að ræða. Tal- aðu hreint út og láttu engan fara í grafgötur um tilgang þinn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Reyndu að hressa upp á hugs- anaganginn sem er þarft en ekki létt verk. Láttu ekki hugfallast heldur gakktu æðrulaus til verks. Vertu þolinmóður. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það getur valdið andvaraleysi að allir hlutir gangi refjalaust fyrir sig. Aðstoð þín við aðra getur leitt til þess að mikilvægur árangur náist. 22. des. - 19. janúar Steingeit Stundum finnur maður ekki fyrir því að deila með einhverjum - eins og að deila kastljósinu með skapandi vini. Gamalt mál úr fortíðinni lifnar við og kemur þér á óvart. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú er komið að þeim tímamótum í lífi þínu að þú hrindir í framkvæmd þeirri áætlun sem þú hefur svo lengi verið með í undirbúningi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það myndi bjarga mörgu, ef þú gæfir þér tíma til þess að njóta návista vina þinna. Vertu óhræddur við að leita aðstoðar á þeim sviðum, sem ekki eru á þínu valdi. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Hryggur þrátt ver hana skaða. Hún vínanda færir þér. Gera þeir, sem heyi hlaða. Hálfgerð rola þetta er. Sigmar Ingason leysir gátuna þannig: Mænan liggur inní miðjum hrygg mörg er flaskan nefnd svo — að ég hygg, vel mænd sáta sérhvert prýðir engið, síst skal verk það hengilmænu fengið. Þessi er lausn Helga R. Einars- sonar: Hryggur, vínið, hey og skauð hugarfrónni ræna. Er lausnarorðið saman sauð mér sýndist birtast mæna. Guðrún Bjarnadóttir svarar: Heila mænu hryggur tryggir, hnarreist skal ég mæna á þjón. Mænir hátt er hey upp byggir hengilmænan lati Jón. Harpa á Hjarðarfelli svarar með þessum orðum: „Þá er sauðburðar- önnum að mestu lokið og hægt að gefa sér tíma fyrir gátur. Lausnin að þessu sinni er svona. Mæna er í mínum hrygg Mæna flaska er. Mæna heyið mjög vel hygg. Mæna hengils hér.“ Hér er lausn Helga Seljan: Mænuna vísast má ei skaða, á mænu þyrstir hafa trú. Upp í mæna heyi hlaða, hengilmænur finnast nú. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Hryggur mænu manns ver skaða. Mæna vínið færir þér. Mæna þeir, sem heyi hlaða. Hengilmæna rolan er. Þá er limra: Ein hænuréttinda hæna tók hana grobbinn til bæna og ærðan af ótta rak óðar á flótta, því haninn var hengilmæna. Að lokum er ný gáta eftir Guð- mund: Vorið góða vermir lönd, vindar hægt sér láta. Fagur dagur fer í hönd, fæðist lítil gáta: Brattur tindur birtist hér. Bátskríli, sem hrörlegt er. Lag það heyrist leikið á. Löngum má þar vísur sjá. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það er margur mænirinn Í klípu „TILFINNINGU HAFNAГ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG VEIT EKKI AF HVERJU ÉG ER AÐ ELDA FYRIR ÞIG.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... fyrsta „halló-ið“! EKKI EINS AUÐVELT OG ÞAÐ VIRÐIST VERA KJAMS! SNARF! ÉG VILDI ÉG ÆTTI FLEIRI! FLEIRI KJÚKLINGA- VÆNGI? FLEIRI MAGA!! Finnið og sjáið að Drottinn er góður, sæll er sá maður sem leitar hælis hjá honum. (Sálm: 34.9)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.